Ég veit ekki hvort þetta sé sami textinn en fyrir nokkrum árum horfði maður í augun á mér og sagði: Alltaf þegar ég horfi í augun á Ástu þá dettur mér í hug textinn Ég vil (sic) finna kærustu... Þetta og margt, margt fleira varð til þess að ég hélt að maðurinn væri að stíga í vænginn við mig. Seinna kom reyndar upp úr dúrnum að þetta var bara einn stór djóker. Verra var að mér fannst hann ekkert fyndinn.
Nýja lagið með Hjálmum fer sem sagt í taugarnar á mér.

Ummæli

  1. Þetta er sem sagt gamall texti sem Hjálmar eru að syngja. Þá er þetta væntanlega sami textinn.

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir