tag:blogger.com,1999:blog-3905679.post7132724799594731112..comments2023-04-17T11:29:49.336+00:00Comments on Gamall, reiður femmi.: MótvægisaðgerðirnarNNhttp://www.blogger.com/profile/17409360008375942377noreply@blogger.comBlogger1125tag:blogger.com,1999:blog-3905679.post-6478904017852378612016-06-24T23:40:17.586+00:002016-06-24T23:40:17.586+00:00Ég svara fúslega þeim fyrirspurnum/vangaveltum sem...Ég svara fúslega þeim fyrirspurnum/vangaveltum sem beinast að starfi mínu sem verkefnastjóri. Það verður ekki tæmandi hér, en ákvað að setja inn hér það sem mér finnst mest aðkallandi að ég svari. Sumt er álitamál einsog þú sjálf bendir á og eitthvað lítur lögmálum pólitískra ákvarðanna og hvaða leiðir eru valdar að settu markmiði. En svona hér og nú vil ég taka af vafann um framtíð mína og verkefnisins, að ég er ekki að láta af störfum í haust þó ég fari líka í kennslu, ég mun sinna þeim báðum samhliða...enda bæði hlutastörf.
Ég er ráðin út árið 2016, framhaldið mun skýrast við gerð fjárhagsáætlunar í haust. Það er rétt hjá þér að þetta gefur takmarkaða mynd af framtíð þessa verkefnis og allt í fínu að benda á það. En það má þó líka lesa út úr framvindu verkefnisins að ekki er verið að tjalda til einnar nætur og vinn ég eftir þeirri framtíðarsýn að gefa þessu að lágmarki einhver ár svo það nái að taka á sig einhverja mynd og gefi okkur einhverja reynslu. Þannig hef ég talað á öllum kynningafundum og er ég þá bara að tala út frá einhverju hyggjuviti því það væri sérstakt að fara af stað í þróunarverkefni og taka svo vindinn undan vélinni í flugtaki. En það er fleira sem kemur til svo þetta gangi vel einsog vilji samfélagsins fyrir svona nýsköpunarmiðstöð með meiru. Því komi í ljós að samfélagið vilji þetta alls ekki þá er auðvitað fullt af fínum lausnum fyrir þetta fallega húsnæði einsog þú bendir réttilega á.
Í þessu verkefni, mótvægisaðgerð, er verið að nýta húsnæði til atvinnusköpunar en fyrst og fremst með því að búa til jarðveginn. Og ég legg áherslu á "búa til" því það vex kannski lítið og ómarkvisst ef ekki er hlúð að grunninum og það tekur bara tíma. Og ég tel að jöfnuður þurfi að ríkja að þessum jarðvegi en ekki að hann sé skapaður fyrir ákveðna einstaklinga í samfélaginu. Það er grunnstefið í nýsköpun að frumkvæðið og krafturinn komi frá fólkinu. Það skiptir bara máli fyrir afkomu sprotafyrirtækja að þau/stofnendur þurfi að berjast aðeins áfram í því að koma þeim á legg. Það gerist ekki nema að fólkið sjálft hafi eitthvað undir og hafi þennan drifkraft og kapp og vilja til að eitthvað takist. Þess vegna verður Seigla og sú mótvægisaðgerð ekki staður þar sem þú skilar inn hugmynd og sveitarfélagið framkvæmir. Heldur staður sem veitir þér stuðning í formi samtals, ráðgjafar, aðgang að nauðsynlegum innviðum skrifstofu, lágrar leigu til að styðja við þig að koma undir fyrirtækinu fótunum.
Svo verðum við líka að vera raunsæ að þetta verkefni sprettur upp úr sársaukafullri ákvörðun sem samfélagið þarf tíma til að jafna sig á. Það má líta á þetta sem áfall og sjálfsagt erfitt fyrir marga að sjá eitthvað nýtt verða til á grunni þess sem það vildi alls ekki sleppa. Þess vegna verður líka af þeirri ástæðu að gefa samfélaginu tíma til að jafna sig áður en það er kannski tilbúið að sjá nýja möguleika. Ég vona auðvitað að samfélagið okkar í Þingeyjarsveit sýni þessu þolinmæði og stuðning .... fái með tímanum meiri trú á að þetta og að nokkrum árum liðnum þá stöndum við uppi með eitthvað fyrir tilstuðlan þessa verkefnis.
Kær kveðja
Anita Karin, verkefnastjóri mótvægisaðgerðaAnonymoushttps://www.blogger.com/profile/13249589813962857263noreply@blogger.com