PS. Varðandi síðustu færslu. Ef það á að stytta framhaldsskólann um helming og færa nám í grunnskólann þá hlýtur stöðugildum í framhaldsskólum að fækka um helming. Eru framhaldsskólakennarar sáttir við það. ,,Takk fyrir starfið síðastliðin X ár. Þurfum ekki lengur á þér að halda. Bæ bæ."

Ummæli

  1. Jæja, mér finnst ágætt að fjöldauppsagnir séu ekki í bígerð, ég hefði alveg trúað Ríkinu til þess. En þar sem stöðugildum fækkar klárlega þá er verið að grisja starfsmöguleika háskólamenntaðra og þá í framhaldi að lækka meðallaun hins almenna launþega.
    Hvað viðkemur afstöðu FG til vinnustaðasamninga þá er ég fullkomlega sammála þeirri afstöðu. Launagreiðendur eru undarlega hrifnir af þessu fyrirkomulagi og launagreiðendur eru aldrei hrifnir af neinu nema því sem þeir græða á. Þó svo að einhverjir græði á þessu þá er ég hrædd um að meirihlutinn tapi.

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir