miðvikudagur, apríl 25, 2012

Þegar ég fékk kvíðakastið.

Fyrir rúmu ári greindist ég með gallsteina. (Undarlega algengt hér í sveit, held svei mér að það þurfi eitthvað að rannsaka vatnið!) Eftir að ég hafði legið sárþjáð í 6 klukkutíma og ælt lifur og lungum var ég svo heppin að vinkona mín hringdi í mig og skipaði mér að tala við lækni þar sem hljóðið í mér var skrítið og ,,nei Ásta, þetta er ekki bara svæsin ælupest!"
Ég fór á spítalann og gisti þar eina nótt, guð minn góður hvað verkjalyf eru dásamleg uppfinning, og var greind með gallsteinakast sem síðar var staðfest.
Ekki veit ég hvað gallblaðran mín hefur gert lækninum en honum er mikið í mun að ég losi mig við hana. Hann uppástendur að þegar steinar eru komnir í gallblöðruna þá sé hún ónýt hvort sem er og aðeins til óþurfta. Ég hins vegar er uppfull af tilfinningasemi gagnvart líffærunum mínum og vil gjarna halda þeim.
Og hvað gerir viðkvæmt lítið blóm sem stendur frammi fyrir læknamafíunni sem vill bara taka úr því líffærin? Jú, það leggst á netið og leitar að einhverju óhefðbundnu. Auðvitað.
Fyrst fann ég trilljón síður þar sem mælt var með ómældu magni af ólífuolíu og sítrónum sem áttu að ,,hreinsa út" gallblöðruna. Einhvers staðar vottaði fyrir heilbrigðri skynsemi í höfðinu á mér því þetta fannst mér ekki geta staðist. Svona mikil fituneysla hlyti að ýta undir annað kast og gera hlutina verri svo ekki féll ég fyrir þessu. Einhverjum bætiefnum var mælt með sem áttu að ,,minnka" steinana og ég borðaði þau samviskusamlega. Svo undir vor fann ég út að fíflarót (í hófi) gæti haft góð áhrif svo ég keypti hana auðvitað samdægurs.
Stuttu eftir að ég byrja að taka fíflarótina daglega tala ég við konu sem var með gallsteina en nú var búið að taka úr henni gallblöðruna. En það mátti litlu muna því blaðran rofnaði í höndunum á lækninum, hún var orðin svo þunn. Gallblaðran þjónar nefnilega þeim tilgangi að framleiða gall sem meltir fitu, er sem sagt fituleysir. Og ef blaðran springur inni í manni þá er maður í vondum málum. Jú, jú, ég vissi þetta svo sem en ég hélt að blaðran yrði að vera full af steinum til að vera í sprengjuhættu. Þá fer mig svona að ráma í það að amma mín var með gallsteina á sínum tíma og lenti í því að blaðran sprakk. Hún var eiginlega sjúklingur eftir það. Hmmm....
Ég man nú ekki hvort það leið einn dagur eða tveir en ég er svona að hugsa um þetta. Svo finn ég það að ég er eitthvað að verða skrítin í munninum. Mér finnst tungan vera að bólgna upp og kokið að lokast. Já, ókey, indælt. Þetta heldur áfram þótt ég reyni að ignora það svo ég fer að hafa áhyggjur af þessu og kemst að þeirri niðurstöðu að það komi bara tvennt til greina: Ég er að koma mér upp ofnæmi fyrir fíflarótinni og kafna fljótlega eða ég er að fá kvíðakast í fyrsta skipti á ævinni.
Ég geng um gólf og velti fyrir mér hvað ég eigi að gera. Ef ég er að bólgna upp af ofnæmi þá verð ég auðvitað að fara til læknis . Það er líka betra að fara til læknis ef þetta er kvíðakast. Ef þetta er hins vegar eitthvað hysteríu shit-fit þá vil ég helst ekki opinbera það mjög mikið. What to do? What to do?
Að lokum kemst ég að þeirri niðurstöðu að af tvennu illu sé betra að lifa kjánalega en deyja kjánalega svo ég hringi í lækninn og fæ að koma akút.
Ég lýsi fyrir honum þessum einkennum og hann tekur strok úr munninum á mér til að útiloka streptókokka. Á meðan við bíðum eftir niðurstöðunni ræðum við um gallsteina og andlega líðan mína sem er bara nokkuð góð á þessum tímapunkti og ég er frekar hissa á þessu kvíðakasti. ,,En við þurfum ekkert að velta okkur mikið upp úr því" segir hann ,,því þú ert með streptókokka." Ha!?
Það er sem sagt hægt að fá streptókokka án þess að fá hita. Þetta vissi ég ekki. Svo huggaði hann mig með því að einkennin sem ég fyndi ,,væru ekki ímyndun." Mér létti nú mikið við það. Svo fór ég heim með pensílín og kvíðakastið fjaraði út í sandinn.
En þetta var mjög raunverulegt panikk á meðan á því stóð:)

þriðjudagur, apríl 24, 2012

Ég hlæ og ég hlæ....

Við erum auðvitað komin ofan í vinstri-hægri skotgrafirnar og erum búin að vera lengi lengi þannig að eflaust þýðir ekkert að tala um þetta. Ég er vinstrisinnuð og þ.a.l. ómarktæk skv. hægrifólki.
Það er samt eitt sem mig langar til að segja.
Fyrir tæpum fjórum árum varð efnahagshrun á Íslandi. Þjóðargjaldþrot blasti við. Það eru mjög margir búnir að eiga mjög erfitt síðan og í rauninni ekki útséð hvernig þetta fer.
Það ber enginn ábyrgð á þessu. Það eru allir saklausir. ,,Nei, ég gerði ekkert rangt. Það var einhver annar." Það hafna allir ábyrgð.
Það sem ég myndi vilja sjá er þetta:
,,Allt í lagi. Ég sé það núna að eflaust hefði verið betra að gera eitthvað öðruvísi en á þessum tímapunkti hélt ég að ég væri að gera rétt. Verði ég fundin/n sek/ur fyrir mistök í starfi mun ég axla þá ábyrgð og bið þjóðina jafnframt afsökunar á mistökum mínum. Þá langar mig nú samt til að biðja fólk að muna að það er auðvelt að vera vitur eftir á."
Ég er að bíða eftir einhverju svona.
Já, ég veit. Ég má bíða lengi.

þriðjudagur, apríl 10, 2012

Helv... bændurnir alltaf hreint.


Í gær birtist frétt á dv.is um íslenskan mann búsettan í Noregi sem þakkar fyrir að fá ,,niðurgreitt” íslenskt lambakjöt. Athugasemdakerfið er opið og ekki leið á löngu að halinn sem fylgdi fréttinni var orðinn ansi langur.  Inntakið í mörgum athugasemdunum, alls ekki öllum, var í stuttu máli; helvíts bændurnir.
Nú reyndu nokkrir að benda á að það er enginn útflutningsstyrkur á útfluttu kjöti en það vakti litla athygli. Aðrir reyndu að benda á að bændur fá um 400-500 kr/kg á meðan það væri selt á 1100-1200 út úr búð. (Skv. einni Facebook færslu sem gengur á milli er kjötið ívið dýrara í Noregi. Sel ekki dýrar en ég keypti.)
Nú er þetta ekki ný umræða en kemur mér samt alltaf á óvart. Ég skil ekki alveg af hverju bændum er kennt um hátt matarverð. Þ.e.a.s. ef matarverðið er hærra hér en annars staðar. Reikniskúnstir eru margvíslegar. Er matarkarfan hér dýr miðað við laun, t.d.? Spyr sú sem ekki veit.
Muni ég rétt þá eru íslenskar landbúnaðarafurðir innan við 10% af heildarneyslu. Mig minnir að hún sé um 6%. Það er ekki hægt að kenna þessum tæpu 10% um allt sem aflaga fer í rekstri þjóðarskútunnar og heimilanna, það gengur bara ekki upp.
Það sem kemur mér alltaf mest á óvart í umræðunni er þessi fullvissa fólks að stórkaupmennirnir séu vinir þess. Engum dettur í hug að skoða álagningu smávöruverslunarinnar. Nei, þeir Bónusfeðgar voru sko vinir litla mannsins. Engin álagning hj ﷽﷽﷽﷽﷽﷽﷽﷽annsins. Þess vegna  allt sem aflaga fer að benda á  þeim. Þess vegna gátu þeir keypt upp verslanir í útlöndum og lúxusíbúðir í New York og einkasnekkjur. Mennirnir búnir að nurla í 20 ár. Það er auðvitað ekkert mál að vera ,,vinur” litla mannsins og selja ódýrt í Bónus þegar maður á líka dýru verslanirnar. Maður bara hækkar verðið þar og þá er allt svo ódýrt í lágvöruversluninni. Svo er auðvitað ekki verið að borga stjórnendunum nein laun. Að ráði.
Ég veit ekki um einn einasta bónda sem á einkasnekkju. Hvað þá þotu.

miðvikudagur, apríl 04, 2012

,,Nei. Þú!"

Nýverið bloggaði ég um kjaftagang í sveitinni. Ég var óánægð með að mjög persónuleg og erfið mál mín væru borin á torg af öðrum. Ég hef ekki fengið viðbrögð frá viðkomandi aðila enda áttar hún sig kannski ekki á því að um hana er rætt en ég hef fengið viðbrögð frá öðrum. Flestir eru ánægðir með bloggið og þá kannski aðallega þeir aðilar sem hafa orðið fyrir barðinu á kjaftagangi. Nú skal tekið fram að oftast er þetta saklaust slúður og bara áhugi á öðru fólki. En sumir hafa orðið fyrir mjög svæsnum og lífsseigum kjaftasögum. (Hefur einhver heyrt minnst á ,,makaskiptaklúbbinn"?) Þá er það bara þreytandi til lengdar að lifa alltaf ,,í beinni", að það sé ekki hægt að bora í nefið án þess að allir viti það.
En ég hef fengið önnur viðbrögð sem koma mér á óvart. Það að ég skuli leyfa mér, eða eigum við að segja; ég þessi aðflutta skuli dirfast, að gagnrýna hefur gert mig að skotspóni ásakana. Það að ég skuli hafa bloggað um þetta hefur orðið til þess, að sumra viti, að ég eigi bara að grjóthalda kjafti. Um allt. Það að ég skuli leyfa mér að segja frá einhverju gerir mig umsvifalaust að hinni örgustu kjaftatífu. Það virðist allt vera sambærilegt. Jafnvel opinber mál eru lögð að jöfnu við þau persónulegustu. ,,Svo ert þú að tala um kjaftagang. Þú ert greinilega ekkert betri."
Ég er eiginlega alveg bit.

Update.
Manneskjunni fannst það að ég segði frá því að Atvinnumálanefnd væri að íhuga að banna lausagöngu stórgripa alveg á pari við óvissa meðgöngu mína. Alveg. Á. Pari.😪

mánudagur, apríl 02, 2012

Update.

Það hljóp ég á mig. Mér skildist að skv. 50. gr. Vegalaga þá væri lausaganga búfjár á vegstæðum bönnuð. Því er ekki að heilsa. Lausaöngubann á vegstæðum byggist algjörlega á Búfjársamþykkt viðkomandi sveitarfélags.
Viðmælandi minn hjá Bændasamtökunum sagði mér í dag að verði slys og dómarar sjá að það sé lausagöngubann í sveitarfélaginu þá er búfjárhaldari með tapað mál. Algjörlega án tillits til allra aðstæðna. T.d. bíll fór út af og rauf girðinguna og þá sluppu hrossin út og urðu fyrir bíl. Þá þarf búfjárhaldari að bæta allt tjón á bílnum (Gef mér að það verði ekki slys á fólki því mér er illa við allt svoleiðis.) og situr uppi með tjón á gripunum.
Það sem ég þarf núna að vita er eftirfarandi:
Ef bóndinn er með (sic.) búfjártryggingu en girðing heldur ekki einhverra hluta vegna, fellur hún þá úr gildi?
Ef við skellum á  lausagöngubanni stórgripa í sveitarfélaginu, kvíga sleppur út á götu, fellur tryggingin þá úr gildi af því það vantaði ristarhlið á heimreiðina?
Veit þetta einhver?

þriðjudagur, mars 27, 2012

Lausaganga búfjár - Leyfa eða banna?


Atvinnumálanefnd Þingeyjarsveitar vinnur að því þessa dagana að útbúa Búfjársamþykkt fyrir sveitarfélagið. Eru uppi hugmyndir um lausagöngubann stórgripa. Ég aðhyllist það hins vegar ekki og vil gjarna gera grein fyrir af hverju.

Við búum í landbúnaðarhéraði.
Hverjir eru það sem halda samfélaginu okkar uppi? Það eru þeir einstaklingar sem koma með tekjur utan frá. Þeir sem skaffa útsvarið en lifa ekki á því. Fólk sem vinnur utan sveitarfélagsins eða eru með sjálfstæðan atvinnurekstur innan þess. Bændur eru þar í miklum meirihluta. Leyfi ég mér að fullyrða að búskapur er hryggjarstykkið í samfélaginu okkar.  Að mínu viti væri nær að koma meira til móts við bændur og gera þeim lífið auðveldara en að vera sífellt að auka á þeim kröfur. Nóg er nú samt.
Skv. Vegalögum 50. gr. er lausaganga búfjár á stofn- og tengivegum bönnuð. Verði slys þar sem lausaganga er ekki bönnuð fær búfjárhaldari bætur fyrir sína gripi. Sé hún bönnuð þarf hann að hafa sérstaka tryggingu. Ber þess að geta að dómstólar eru nú farnir að dæma eftir aðstæðum og búfjárhaldari ekki sjálfkrafa dæmdur bótaskyldur.
Hins vegar verða bændur að gæta þess að kaupa tryggingu ef lausagöngubann verður sett. Sum félögin eru með svona tryggingu inni í tryggingarpakkanum en þykir mér nokkuð ljóst að allar viðbótatryggingar lækka ekki iðgjaldið.

Ég er ekki að firra bændur ábyrgð á sínum skepnum. Mér finnst bara eðlilegt að ganga út frá því að fólk sé almennt ábyrgðarfullt og skynsamt og annað heyri til undantekninga. (Sbr. hugmyndin um bonus pater familias í lögfræði.)

Mismunun.
Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.

Eignarréttur er afskaplega lítils virði ef nýtingarréttur fylgir ekki með. Og það er afskaplega lítil sanngirni  í því að sumir megi nýta afréttir en aðrir ekki.
Þá er það óþolandi að fólk sé sett í þá aðstöðu að vera algjörlega upp á meðeigendur sína komið um það hvort og hvernig það má nýta sína eigin eign á meðan meðeigandinn má nýta hana að hentugleikum.
Þá er það undarlegt að sauðfjárbændur séu ekki settir undir sömu kvaðir og aðrir bændur þar sem nokkur umræða hefur skapast í samfélaginu um ágang búfjár á gróðurlendi og þá kvöð á landeigendur að þurfa að girða lönd sín gegn ágangi búfjár svo ekki sé talað um skylduna til að smala skepnum annarra.
Engin lög hindra lausafjárgöngu búfjár á jörðum annarra og hefð gerir ráð fyrir að hún sé heimiluð þrátt fyrir að vera í algerri andstöðu við nútíma búhætti í hinum vestræna heimi. Dæmi um þetta er hvernig sauðfjárbændur nýta gróðurþekju og skógarbeit á jörðum annarra til eigin atvinnustarfsemi, þar á meðal skógarbænda. Þeir verða fyrir miklum búsifjum með atvinnustarfsemi sína og engin lög vernda þolendur fyrir ágangi búsmala né eru viðeigandi stofnanir tilbúnar að hlutast til um þetta ágreiningsefni.
Vil ég nú taka fram að ég hef enga löngun til hefta nýtingarrétt sauðfjárbænda og styð heils hugar lausagöngu sauðfjár. Ég tel það hins vegar mismunun að setja aðeins lausagöngubann á stórgripi og bendi vinsamlega á að einnig eru til rök gegn lausagöngu sauðfjár. Miklu eðlilegra er að miða við ítölu þegar ákveðið er hversu mikið hver landeigandi má beita.

Matvælaöryggi.
Mikið hefur verið rætt um matvælaöryggi. Sérstaklega af andstæðingum ESB aðildar en það hangir talsvert meira á spýtunni en bara það. Mannkyninu fjölgar með ógnarhraða og telur Christian Anton Smedshaug sem kom hingað til lands í boði Bændasamtakanna það vera skyldu allra þjóða að framleiða eins mikinn mat og mögulegt er.. Ein af leiðunum til þess er að nýta allt það land sem hægt er undir matvælaframleiðslu.
,,Hins vegar ættu öll lönd að einbeita sér að því að framleiða svo mikið korn sem mögulegt er. Það þýðir að mikilvægi aukinnar beitar í úthögum, skógum og á fjöllum eykst.” Bændablaðið 13.01. 2011
 Það hlýtur að skjóta skökku við að nú eigi að meina bændum að beita lönd sín.

Dýravernd.
Að lokum vil ég benda á að umræða um dýravernd hefur aukist talsvert og verksmiðjubúskapur gagnrýndur. Við hljótum öll að vilja aðbúnað skepna sem bestan og útivera og möguleiki á hreyfingu hlýtur að vera ein forsenda þess.
Að meina bændum að nýta afréttir sínar á sama tíma og auknar kröfur um útiveru koma fram í samfélaginu stuðlar að meiri útgjöldum og kjaraskerðingu í framhaldinu. Bændur eru nú þegar að kikna undan hækkandi eldsneytis- og áburðarverði. Þá er reglugerðarfarganið orðið yfirgengilegt. Það síðasta sem atvinnulífið vantar er fleiri boð og bönn. 


Viðbót 4. apríl 2012.
Það kemur fram í opinberri fundargerð sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar frá 3. nóvember 2011 að sveitarstjórn felur  Atvinnumálanefnd að vinna að tillögu að búfjársamþykkt fyrir sveitarfélagið undir liðnum Lausaganga.

Bréf til bankanna

Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...