Færslur

Sýnir færslur frá september 7, 2014

Markaðssetning kannabisefna

Mynd
Magnús Stefánsson, betur þekktur sem Maggi Stef, hélt fyrirlestur í skólanum í dag. Fyrirlesturinn heitir „ Satt eða logið um kannabis “ frá Marita í boði Landlæknisembættisins .   Það var margt gott í fyrirlestrinum og hann var mjög fræðandi. En svo fór Magnús að tala um markaðssetningu kannabis. Þá birtust á skjánum hjá honum myndir af vörum með kannabisplöntunni og í bakgrunni voru myndir af fáklæddum stúlkum með kannabismerkið húðflúrað á sig, aðallega rassinn. Magnús útskýrði myndbirtinguna svona: ,,Strákar hafa gaman að því að horfa á stelpur, sérstaklega í þessu formi“ glennulegu klámmyndaformi ,,og stelpur vilja líta svona út.“  Ein af myndunum. (Alla vega áþekk.) Jahá. Í alvöru? Ég er algjörlega sammála því að reynt sé að sporna við eiturlyfjaneyslu. En ekki á kostnað sjálfsmyndar stúlkna. Skv. Magnúsi er markaðssetningu kannabisefna aðeins og eingöngu beint að ungum mönnum. Það er nú gott að henni er ekki beint að stúlkum. Eða eiga stúlkurnar kannski ekki p