Færslur

Sýnir færslur frá febrúar 13, 2005
Mynd
Alien Attack!!! Á heimili múttu minnar er kista og á henni eru tveir rauðir púðar hvor ofan á öðrum. Dúlli prins liggur oftast þarna og tekur sig einstaklega vel út svona svartur. Kolfinna er farin að stela staðnum og lá þarna urrandi og var nýbúin að slengja loppinni utan í múttu. Ég fór og settist á hækjur mér fyrir framan hana og ætlaði að klappa henni og tala róandi til hennar þá fleygir hún fram hausnum og reynir að bíta af mér nefið!!!! Hún náði reyndar ekki og ósköp lítil hætta á ferð en samt! Ég sá fyrir mér fjölmörg atriði úr Alien myndunum og er frekar illa við þennan varg þessa stundina.
Það er kannski hrikalega ljótt af mér en mér finnst einn keppandinn í Idol (ekki nágranni minn samt) svo tlgerðarlegur og með þvílíka klámmyndasvipinn á andlitinu að ég fæ alveg grænar.
   Once upon a midnight dreary, while I pondered, weak and weary, Over many a quaint and curious volume of forgotten lore,    While I nodded, nearly napping, suddenly there came a tapping, As of some one gently rapping, rapping at my chamber door. "'Tis some visitor," I muttered, "tapping at my chamber door-                  Only this, and nothing more." Edgar Allan Poe Alveg þrusugóður hann Eddi , vinur minn. Vinsamlegast takið eftir miðríminu. 18 erindi með enda- og miðrími og flæðið hikstar aldrei. Fann þetta í flutningi Cristopher Walken og James Earl Jones ásamt Simpson fjölskyldunni. Báðar útgáfurnar flottar þó önnur hafi verið mun dramatískari. Kolfinna hin klikkaða fór upp á Dýraspítala í dag þar sem ,,einhver" hafði bitið hana í loppuna og hún var komin með sýkingu. Ég vona að það hafi verið Snotra. Kolfinna vílaði það nú samt ekki fyrir sér að ráðast á og hlaupa á eftir Snotru á þremur jafnfljótum bara af því að
Jemundur eini. ,,Maðurinn" er búinn að hringja. Ég var að vísu ekki heima en sé það á birtinum. Nettur sjokker. Nú þarf ég væntanlega að taka til og þykjast vera húsmóðir. Já btw., ef svo ólíklega vildi til að einhver hafi verið nursing a crush on me þá eru að verða síðustu forvöð. Ég hafði hugsað mér að ganga út fljótlega. (Það var fullyrt að maðurinn hefði ekki tölvu. Vona að það sé rétt og ég sé ekki að klúðra neinu.)
O jæja, Fellaskóli féll úr keppni í kvöld í Nema hvað. Munaði bara 4 stigum. Þetta er samt vel að verki staðið, ég er hæstánægð með hverfismeistara titilinn. Það voru nú spurningar þarna sem ég vissi ekki svarið við. Þetta var í beinni á Rás 2 svo það er örugglega hægt að nálgast þetta á netinu ef einhver hefur áhuga. Ef það heyrist í nöldrandi kerlingu á bak við þá er það ég. Í staðinn fyrir að fara heim og undibúa kennslu þá ætla ég að festast í heimsókn og glápa á vídeó. Er að kynna krakkana fyrir góðvini mínum Edgar Allan Poe svo það ætti ekki að vera mikill undirbúningur.
Hugstyrking Við skulum ekki víla hót; það varla léttir trega. Það er þó ávallt búningsbót að bera sig karlmannlega. Kristján Jónsson fjallaskáld.
SIGUR! Eftir hatramma baráttu og blóðug átök stöndum við nágrannakonan uppi sem sigurvegarar! Ein sú svæsnasta stífla norðan Alpafjalla síðustu ár varð að láta í minni pokann og leka niður í ræsið nú undir morgun. EUREKA!
Mynd
Once there was a Drama-Queen who dreamed of pastures, rich and green. What she never understood was that what she had was very good. Now that old and weary witch does nothing but complain and bitch.
Mér reiknast það til að stíflu-eyðis-kaup mín séu farin að slaga hátt upp í píparaheimsókn. Ég er samt sem áður að velta því fyrir mér að kaupa aðra dollu af One-shot og drullusokk. Veit samt ekki hvort það er skynsamlegt.. Drullusokkurinn mun náttúrulega endast. Þarf að jafnhatta einu baðkari, get velt þessu fyrir mér á meðan.