Tinni


Ég sé að frændi minn hefur sett upp lista með uppáhalds Tinna bókunum sínum. Ég er pínu móðguð þar sem hann endurtekur að Tinni hafi verið í uppáhaldi þegar hann var 6 ára. Ég er nefnilega að lesa Tinna aftur núna og skemmti mér alveg konunglega. Reyndar verð ég að viðurkenna að mér finnst Tinni before Kolbeinn verri en eftir að kafteinninn kom til sögunnar. Ég las Tinna í Tíbet um daginn og hló nánast út í eitt. Ég las líka Sjö kraftmiklar kristalskúlur en vantar Fangana í sólhofinu svona til að klára söguna.

Ummæli

  1. Nei Tinni er enn í uppáhaldi; ég er bara sjálfur alltaf að hugsa til baka til tímans þegar ég var sex ára.

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir