Eins og allir vita var tekin ákvörðun um að
,,sameina" Litlulaugaskóla og Hafralækjarskóla 2012.
Sú ,,sameining" hefur ekki gengið vel og
kemur fáum á óvart. Enda engan veginn er hægt að tala um að sameining hafi átt
sér stað.
Forsaga.
Það er auðvitað til að æra óstöðugan að rifja
upp þetta ferli en förum samt lítillega í gegnum það.
Fólki og börnum fer því miður fækkandi í
sveitinni okkar. Litlir skólar eru eitt en þeir örskólar* sem við búum við
annað. Enda hefur komið í ljós að foreldrar hafa áhyggjur af félagslegri stöðu
barna sinna og vilja sameiningu. Hagræðingin sem væntanlega myndi fylgja í
kjölfarið er í raun aukaatriði. Ánægjulegur bónus engu að síður.
En engin(n) vill missa ,,sinn" skóla og
er það skiljanlegt. Þess vegna vill nokkuð tilfinningarót fylgja umræðunni.
Til að hjálpa við (fresta/forðast)
ákvarðanatöku hafa nokkrar skýrslur verið skrifaðar.
Vel metnir fræðimenn við Háskóla Íslands voru
fengnir til að skrifa eina. Leiddi hún í ljós vilja til sameiningar. Þeirri
skýrslu var gefin sú einkunn af skýrslubeiðendum að hún væri ,,ekki
skeinipappírsins virði" sem hún var skrifuð á. Ég hafði á þeim tíma
samband við einn skýrsluhöfunda og spurði hverju þessu sætti. Viðkomandi, sem
var miður sín vegna þessara viðbragða, sagði að erfitt hefði verið að svara
þeim spurningum sem lagt var upp með. M.a. vegna þess að bókhaldslyklar skólanna
væru ólíkir en Hafralækjarskóli var þá í sama bókhaldskerfi og Norðurþing. Þá höfðu skýrsluhöfundar boðist til að gera
skoðanakönnun meðal allra íbúa sveitarfélagsins en því verið hafnað vegna
kostnaðar. (Og kannski ótta við niðurstöðuna?)
Í sveitarstjórnarkosningunum 2010 náði
Framtíðarlistinn sem hafði sameiningu skólanna efst á sínum aðgerðalista inn
tveimur mönnum. Þá var skrifuð enn ein skýrslan sem gaf til kynna sameiningarvilja
foreldra. Minnstan þó í nærsamfélagi Stórutjarnaskóla.
Þá ber að hafa í huga að Samstaða sem náði
meirihluta í kosningunum lofaði að hreyfa ekkert við skólunum næstu tvö ár
eftir kosningar. Aldrei kom skýrt svar um hvað yrði gert þá þótt spurt væri
eftir á íbúafundi.
,,Sameiningin."
Á haustdögum 2011 sagði skólastjóri
Litlulaugaskóla heldur skyndilega upp starfi sínu. (Var í tveimur 50% stöðum en
í raun 200% vinnu svo eitthvað varð undan að láta, skiljanlega.)
Var ákveðið að ráða ekki nýjan skólastjóra
strax heldur láta aðstoðarskólastjórann taka við út skólaárið. Þarna sköpuðust
óvæntar aðstæður til breytinga.
Núna mætti taka umræðu um hversu gott það er
að taka stefnumótandi ákvarðanir af því að eitthvað gerist fremur en að stjórna
atburðarásinni með stefnumótandi ákvörðunum en sú umræða verður að bíða betri
tíma.
Ályktun Fræðslunefndar.
Þann 11. 10. 2011 fundar Fræðslunefnd
og setur fram eftirfarandi ályktun:
Fundarmenn sammála um að það verði að fara að taka ákvörðun um framtíðarskipan skólamála í Þingeyjarsveit.
Fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að hún láti bera sama kostnað við rekstur 3ja skóla eins og nú er annars vegar og hins vegar kostnað við rekstur tveggja skóla þ.e. Stórutjararskóla, og Litlulaugaskóla og Hafralækjarskóla sameinaða að Hafralæk annars vegar og hins vegar Litlulaugaskóla og Hafralækjarskóla sameinaða að Laugum.
Vinsamlegast veitið athygli að þeim tilmælum
er beint til sveitarstjórnar að kostnaðarreikna: ,,rekstur tveggja skóla þ.e. Stórutjarnarskóla, og
Litlulaugaskóla og Hafralækjarskóla sameinaða að Hafralæk annars vegar
og hins vegar Litlulaugaskóla og Hafralækjarskóla sameinaða að Laugum.”
Fagnefnd sveitarfélagsins í skólamálum,
virðist finnast eðlilegast að skólarnir tveir, Litlulauga- og Hafralækjarskóli,
verði sameinaðir á einum stað.
Skv. lögum er sveitarstjórnarfulltrúar
einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu. Þó hefur sú umræða komið upp að
rétt sé að fara eftir tilmælum fagnefnda því í þeim er valið fólk sem
sveitarstjórn treystir fyrir tilteknum málefnum. Þetta er auðvitað sjónarmið.
Sjálf hef ég valið að fara eftir eigin sannfæringu og get upplýst það hér að ég
mun ekki samþykkja 50 milljóna króna framlag til breytinga á húsnæði
Hafralækjarskóla þótt Fræðslunefnd hafi lagt það til. Mér þætti öðru sæta ef sú
ákvörðun hefði verið tekin að sameina skólana í Hafralækjarskóla en það hefur
ekki enn verið gert.
Mér þykir hins vegar rétt að ef fólk tekur þá
ákvörðun að fara að tilmælum fagnefnda að eftir þeim sé þá alltaf farið en ekki
bara eftir hentugleikum.
Meirihluti sveitarstjórnar ákvað á fundi sínum
þann 20. október 2011 að fara ekki að tilmælum Fræðslunefndar heldur lagði fram
eftirfarandi bókun:
Sveitarstjórn samþykkir að Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli verði sameinaðir í eina stofnun með tveimur starfsstöðvum. Þessi breyting taki gildi frá og með 1/8 2012.
Skipaður verður starfshópur til að undirbúa breytinguna.
Stórutjarnaskóli starfi áfram sem sérstök stofnun.
Þessi tillaga kom minnihlutanum algjörlega í
opna skjöldu enda ekki getið í fundarboði að svo stór ákvörðun lægi fyrir
fundinum. Aðeins var tilgreint að farið yrði yfir fundargerð Fræðslunefndar.
Að lestri loknum var málið rætt, m.a. kom fram
að auglýst yrði eftir nýjum skólastjóra og ýmiss konar útfærslur á tveimur starfsstöðvum enda engan veginn
sjálfgefið hvernig slíkt yrði útfært. Ákvað minnihlutinn að samþykkja þessa
bókun því að með því væri alla vega stigið skref í rétta átt.
Hér þykir mér rétt að taka fram að fundir
sveitarstjórnar eru opnir og engin ákvörðun tekin um að trúnaður skyldi vera um
þessa umræðu.
Starfshópurinn.
Þann 3. nóvember var starfshópurinn skipaður.
Í honum áttu sæti 3 sveitarstjórnarfulltrúar, oddviti, formaður Fræðslunefndar
og fulltrúi þaðan, virtur maður í sveitarfélaginu af lista meirihlutans og
starfandi skólastjórar sitthvors skólans. Skólastjóri Hafralækjarskóla var í
námsleyfi á þessum tíma.
Fyrsti fundur hópsins var haldinn rúmum mánuði
síðar eða þann 6. desember 2011. Var ýmislegt rætt en lítið ákveðið annað en að
biðja sveitarstjórn um erindisbréf.
Á sveitarstjórnarfundi þann 29. des. 2011 var
lagt fram eftirfarandi erindisbréf sem hópurinn eða hluti hópsins hafði sett
sér sjálfur:
Erindisbréf starfshóps um sameiningu Hafralækjarskóla og Litlulaugaskóla
Erindisbréf
fyrir starfshóp sem sveitarstjórn skipaði 3. nóvember 2011, til að leggja til
leiðir við sameiningu Hafralækjarskóla og Litlulaugaskóla í nýja stofnun með
tveimur starfsstöðvum frá 1. ágúst 2012.
Markmið
sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar með sameiningu skólanna í nýja stofnun með
tveimur starfsstöðvum er að halda starfsemi á báðum stöðum en þróa jafnframt
aukið samstarf starfsfólks, nemenda og foreldra. Sú þróun og það samstarf verði
leitt af skólastjórnendum, starfsfólki, nemendum og foreldrum í samráði við
fræðsluyfirvöld sveitarfélagsins. Gengið verði út frá því að óbreyttu að allar
deildir skólanna verði reknar áfram þar sem þær eru í dag og hvor
grunnskóladeild bjóði upp á kennslu 1. – 10. bekkjar á báðum starfsstöðvunum.
- Starfshópurinn leggi til leiðir til að
sameina þessar stofnanir og leggi til stjórnskipulag nýrrar stofnunar. Hópurinn
skili tillögum til sveitarstjórnar.
- Gætt verði að hagsmunum nemenda og
starfsfólks.
- Starfshópurinn getur leitað eftir
utanaðkomandi sérfræðiaðstoð m.a. lögfræðiálita.
- Starfshópurinn leggi til nafn á nýja
stofnun.
-
Starfshópurinn haldi fundargerðir sem lagðar eru fyrir sveitarstjórn og birtar
á heimasíðu sveitarfélagsins til upplýsinga fyrir íbúa.
29. desember 2011
Líkaði mér bréfið illa enda var þar fastneglt
hvernig sameiningunni yrði háttað. Fyrir utan það eitt að einn skólastjóri ætti
að sitja yfir báðum skólum var engin önnur breyting í farvatninu. M.ö.o. það er
engin sameining í raun.
Skilningur minn á samþykkt sveitarstjórnar frá
20. október um tvær starfsstöðvar og umræðunum í kringum þá ákvörðun var sá að
nýr skólastjóri og starfsfólkið, fagfólkið í skólunum, mæti það hvor staðurinn
hentaði betur og hefði lokaákvörðun um það á sínum höndum.
Hins vegar verður umræðan á þann veg að þau
leggja annan skilning í þetta en ég. Að aðalmálið væri stjórnskipulag nýrrar stofnunar,
t.d. hvort leggja ætti niður aðstoðarskólastjórastöðurnar (sjá síðar) og
ítrekað að auglýst yrði eftir nýjum skólastjóra sem myndi þá taka við
sameiningarferlinu og leiða það til lykta. Eftir að þáverandi sveitarstjóri
lagði til orðalagsbreytingu þar sem bætt er inn orðunum að óbreyttu samþykkti ég bréfið. Skal því ekki neitað að ég tel það
nú hafa verið mistök.
Á sveitarstjórnarfundi þann 2. feb. 2012. er
farið yfir tvær nýjustu fundargerðir starfshópsins. Aðalefni fundanna eru
réttindi starfsfólks. Ekki var haft samband við Samband íslenskra sveitarfélaga
né verkalýðsfélög fyrr en í janúar og fullnægjandi svör höfðu ekki borist að
öllu leyti að mati nefndarinnar.
Skv. svörum frá Sambandinu er hægt að fara
tvær leiðir í sameiningu: annars vegar að leggja niður báðar stofnanirnar og
búa til nýja en þá þarf að segja öllum upp og það hefur aldrei staðið til eða
hins vegar að setja þær undir sama hatt svo ekki þurfi að segja neinum upp.
Kemur upp úr dúrnum að nú er meirihlutinn að gæla við þá hugmynd að auglýsa
ekki eftir nýjum skólastjóra heldur láta þann sem enn situr yfir báða skóla. Jafnvel
þótt viðkomandi hafi lýst því opinberlega yfir að hann telji breytingar ekki
til góðs.
Þegar grannt er skoðað þá blasir við að
starfshópurinn var ekki að fjalla um skólamál á neinn hátt. Sú hlið var afgreidd
í erindisbréfinu sem var afar nákvæmt um það hvernig skólahaldi í nýrri stofnun
ætti að vera háttað. Starfshópurinn hafði þ.a.l. ekkert um það að segja.
Það sem starfshópurinn var að fjalla um er
annars vegar hvernig sameina ætti skólanna tæknilega. Það hlýtur að vera
pólitísk ákvörðun sem pólitískt kjörnir fulltrúar sveitarfélagsins eiga að
standa að og bera ábyrgð á.
Hins vegar var hópurinn að fjalla um
starfsmannamál sveitarfélagsins.
Í hópnum sátu starfandi skólastjórar, ráðnir
aðstoðarskólastjórar beggja skóla. Það er engan veginn við hæfi að
einstaklingar, hversu hæfir sem þeir eru,
séu settir í þær aðstæður að bera ábyrgð á hlutum sem snerta þá, vini
þeirra og samstarfsmenn mjög persónulega. Aðstoðarskólastjórarnir áttu m.a. skv.
ofansögðu að taka ákvörðun um það hvort leggja bæri niður
aðstoðarskólastjórastöðurnar. Það hlýtur hver maður að sjá að þetta gengur ekki
upp.
Þetta væri allt annað mál ef þetta væri
fagnefnd sem væri að fjalla um skólastarf sem slíkt og hvernig sameiningu þess
væri best háttað en því var ekki að heilsa. Sveitarstjórn hreinlega varpaði
pólitískri ábyrgð sinni á afar erfiðu og viðkvæmu máli, atvinnu fólks, yfir á annað fólk.
Tillaga starfshópsins.
Að lokum kom sú eina tillaga frá Starfshópnum
sem frá Starfshópnum gat komið:
Starfshópurinn
leggur til að farin verði sú leið við að sameina Hafralækjarskóla og
Litlulaugaskóla í eina stofnun að um samruna tveggja stofnana sé að ræða
. Sú stofnun fái nýtt nafn og nýja kennitölu.
Með
samrunanum er horft til þess að hægt verði að þróa aukið samstarf nemenda,
starfsfólks og foreldra á þessum tveimur starfsstöðvum. Við þá
þróun verði hagsmunir nemenda hafðir að leiðarljósi. Með
samrunanum verði sköpuð aukin tækifæri til að bæta stöðu
nemenda námslega og félagslega.
Lagt
er til að beitt verði ákvæðum laga nr. 72/2002 um réttarstöðu starfsmanna við
aðilaskipti að fyrirtækjum sem almennt vernda hag starfsfólks. Starfsfólk
færist þá yfir til nýrrar stofnunar án uppsagnar enda er það heimilt skv. þeim
upplýsingum sem starfshópur hefur aflað sér. Sjá einnig meðfylgjandi
greinargerð.
[....]
Greinargerð
með tillögu: Starfshópurinn er einhuga um þessa tillögu í heild sinni,
nema hvað varðar yfirfærslu starfsmanna í efstu stjórnunarlögum yfir til
nýrrar stofnunar. Starfshópurinn vísar því til sveitarstjórnar að taka
ákvörðun um hugsanlegar uppsagnir og ráðningar í efstu stjórnunarlögum
þar sem einstaklingar innan starfshópsins eru vanhæfir til þeirrar ákvarðanatöku.
Starfshópur
beinir því til sveitarstjórnar að hún tilgreini nánar hvaða ávinningur á
að nást með samrunanum.
Starfshópurinn fer nákvæmlega eftir sínu
erindisbréfi og tekur engar ákvarðanir um atvinnu fólks, nema þá einu sem hann
gat tekið, reyna að halda öllum í vinnu. HIns vegar er síðasta málsgreinin
athygliverð:
Starfshópur beinir því til sveitarstjórnar að hún tilgreini nánar
hvaða ávinningur á að nást með samrunanum.
Það hlýtur að teljast ljóst að starfshópurinn
sjálfur skildi ekki hverju meirihluti sveitarstjórnar vildi ná fram. Enda er
það nánast öllum óskiljanlegt nema vonandi meirihlutanum sjálfum.
Þegar meirihlutinn var búinn að koma sínu í gegn með meirihlutavaldi lagði minnihlutinn fram eftirfarandi bókun:
„Minnihlutinn harmar ákvörðun
meirihluta um hvernig staðið er að sameiningu Litlulaugaskóla og
Hafralækjarskóla, enda óljóst hvaða ávinningur eigi að nást með samrunanum
þegar engar breytingar eiga sér stað þ.m.t. engar breytingar á efsta
stjórnunarlagi skólans.“
Reynslan.
Hvernig hefur svo gengið? Nákvæmlega eins lagt
var upp með; illa.
Hagræðingin er engin og allir óánægðir. Starfsfólki
skólanna (því þetta eru enn tveir skólar sama hvað hver segir) er full vorkunn
því það á að breyta því sem má ekki breyta. Sameina það sem má ekki sameina. Auðvitað
gengur það ekki.
Það eru þrír möguleikar í stöðunni:
Halda þessari þrautargöngu áfram og bíða eftir að
eitthvað gerist sem kallar á eftir á stefnumótun.
Bakka og fara aftur í gamla farið.
Eða sú leið sem hugnast mér best: Bíta á jaxlinn og
fara alla leið. Sameina skólanna í fullri alvöru annað hvort í húsnæði
Litlilaugaskóla eða Hafralækjarskóla.
*Sjá aðsenda grein Bergljótar Hallgrímsdóttur á eldri vef 641.
*Sjá aðsenda grein Bergljótar Hallgrímsdóttur á eldri vef 641.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli