laugardagur, júlí 24, 2004

Var að bæta við grunnskólakennurunum sem Hrund benti mér á en tókst einhvern veginn að klúðra. Vona að það sé komið í lag núna. Það hefur dálítið truflandi áhrif að ég er í heimsókn hjá múttunni og kisan mín sem er þar í fóstri er eins og franskur rennilás á mér.
Ég hélt haus en hef verið að vinna upp svefnleysi og njóta veðurblíðunnar.

miðvikudagur, júlí 21, 2004

Úpsibúbbsi, þar urðu mér á nett mistök. Verð væntanlega afhausuð í fyrramálið.
Ja hér, Erlingur er strax byrjaður að pæla í næsta vetri, það er aldeilis dugnaður. Ég tók reyndar með mér fullt af bókum í fríið. Þær eru reyndar enn þá ofan í tösku en... Ég dró þær með mér á næturvaktirnaren einhverra hluta vegna voru þær alltaf í töskunni. Ég hef svo sem engar áhyggjur af þessu, það er enn rúmur mánuður til stefnu. Áður en krakkarnir mæta í skólann nota bene, kennararnir mæta auðvitað viku fyrr.

Ég hef fundið slatta af framhaldsskólakennurum en mig vantar fleiri grunnskólakennara. Alltaf gott að hafa partners in crime ef maður skyldi nú vera kallaður á teppið... aftur.

þriðjudagur, júlí 20, 2004

Búin að vera örlítið duglegri í húsmóðurleiknum. Mig dreymir um að komast í Innlit-Útlit.
Að öðrum og mikilvægari málum. Gvöð minn góður! Hvað hefur komið fyrir goðið!!!

Í alvöru talað, maðurinn er ekki nema 41 árs. Þetta er alveg arfaslök ending. Held þetta sé gott dæmi um það hvernig daglegar hassreykingar árum saman fara með fólk.

Svo var ég líka að sjá að það á að gefa Live Aid út á DVD 1. nóv. Get ekki beðið.
Það er mikið að maðurinn áttaði sig á þessu. Nei, þú getur ekki beitt fyrir þig löggjafarvaldinu í persónulegu stríði þínu við ákveðna einstaklinga úti í bæ. Alveg sama þótt þú sért forsætisráðherra og sért búinn að vera það lengst allra. Það skiptir engu máli.

Kaffi á Ketilsbraut

Upp úr djúpi draumahallar dansar skynjun vitundar. Í eldhúsinu eitthvað kallar, ókunnugur situr þar. Við hans fætur Seifur sefur, sakl...