Ég er búin að fá nokkur bréf á stefnumótasíðunni en kemst ekki í þau! Frekar fúlt. Hvað ef maðurinn minn er búinn að senda mér bréf og ég kemst ekki til að lesa það! Og við förumst á mis! Gvöð minn góður, þetta er bara of dramatískt. Verð bara að leggja mig eða eitthvað.

Ummæli

  1. Í öllum alvöru rómönsum eru allskonar hindranir i byrjun...

    SvaraEyða
  2. Ég hef mikið verið að forvitnast um svona síður undanfarið en er ekki ennþá orðin það kjörkuð að skrá mig. Ég er líka að spá í hvaða síður eru öruggar. Nenni ekki að lenda í einhverjum perraskap.

    SvaraEyða
  3. Ég held að því miður séu einhverjir perrar alls staðar. Maður verður bara að vinsa þá úr. Hins vegar leynist almennilegir menn inn á milli og vonandi í meirihluta. Annars veit ég það ekki, ég hef ekki komist í bréfin til mín:)

    SvaraEyða
  4. Ég ætla mér að fullyrða að um 60% af þeim sem eru á svona stefnumótasíðum eru perrar eða eru á höttunum eftir einhverju sem telst ekki til makaleitar.

    Maður hefur heyrt sögurnar af tugum bréfa sem hrúgast inn með allskonar perraskap og vibba.

    En það er ágætt fólk inn á milli...

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir