miðvikudagur, apríl 22, 2026

Varðandi fána – Seinni hluti

 Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur orðið stórkostlegt bakslag í kvenréttindabaráttunni. Hvar er fáninn fyrir kvenfrelsið? Hann sést hvergi. Það eru til einhverjir fánar en ekki neinn einn sameiginlegur eins og regnbogafáninn. Og nú verð ég að segja að þótt femínisminn hafi tekið LGBTQ+ undir verndarvæng sinn þá get ég ekki séð að LGBTQ+ hafi tekið kvenfrelsið undir sinn verndarvæng. Ég sé ekkert F (nema við séum partur af plúsnum) þannig að ég upplifi regnbogafánann ekki sem minn fána. Það er vissulega rétt að hinsegin börnum líður hvað verst í skólanum en stúlkum líður ekkert sérstaklega vel heldur.

Gervigreindin benti mér á þennan fána.


Fyrir nokkru kom upp umræða um kynferðisofbeldi/-áreiti gagnvart stúlkum í framhaldsskólum. Hvar er fáninn sem segir: „Við trúum brotaþolum“? Hann er náttúrulega ekki til en það mætti alveg búa hann til.

Þá vantar líka fána fyrir innflytjendur sem eru væntanlega ekki að upplifa sig neitt sérstaklega velkomna með Útlendingastofnun á hælunum.

Kvenfrelsið stendur hjarta mínu næst og mér finnst að það megi alveg beina athyglinni að því í smástund. Það græða allir á því líka.

Gervigreindin bjó til þennan fyrir mig.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Varðandi fána – Seinni hluti

  Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...