laugardagur, apríl 15, 2006

Herinn

Mér láðist að fagna brottför hersins og geri það hér með. Ég er ekki alveg viss um að við eigum að segjaokkur úr Atlantshafsbandalaginu. Kemur það ekki á fullri fart ef á okkur verður ráðist? Ekki það að ég geti ímyndað mér hverjir ættu að ráðast á okkur en mér sýnist Bush samt á fullu að starta þriðju heimsstyrjöldinni svo allur er varinn góður. Íslenskir ráðamenn ættu að hætta þessu væli um varnir landsins. Það vita allir að það eru gróðasjónarmið þarna á bak við og þetta er bara orðið skammarlegt.

fimmtudagur, apríl 13, 2006

Ég er búin að fá nokkur bréf á stefnumótasíðunni en kemst ekki í þau! Frekar fúlt. Hvað ef maðurinn minn er búinn að senda mér bréf og ég kemst ekki til að lesa það! Og við förumst á mis! Gvöð minn góður, þetta er bara of dramatískt. Verð bara að leggja mig eða eitthvað.

miðvikudagur, apríl 12, 2006

Búin að eyða fullt af peningum og fara með bílinn í skoðun. Það er ekki að spyrja að dugnaðinum!
Ég ætla rétt að vona að það verði byrjað að vora í Aðaldalnum eftir páska eins og er byrjað nú þegar í Reykjavík.

þriðjudagur, apríl 11, 2006



Eitthvað verður maður að gera sér til dundurs. Mér leiðist dálítið í fríinu.

laugardagur, apríl 08, 2006

Ferðin til Reykjavíkur gekk ágætlega. Ég var líka með tvo farþega sem styttu mér stundir. Það er að vísu slæmt þegar ég er að koma til Reykjavíkur eftir rúmlega 5 tíma keyrslu og er orðin þreytt að enda þá í trafíkinni. Óskaplega fer þessi trafík í taugarnar á mér. Enda flutti ég út á land:)
Fáránlegt að koma úr 20 sentimetra snjó inn í byrjandi vor. Það er nú ekki eins og landið sé stórt.
Fór með kortið mitt lagarsölu hjá Senu. Ekki sniðugt.

fimmtudagur, apríl 06, 2006

Mér tókst að búa til prófið og leggja það fyrir. Núna er það bara búið og ég að fatta að ég er að fara í páskafrí á morgun. Undarlegt. Ég ætla suður á morgun ef veður leyfir. Ég er komin með fullan bíl af börnum svo ég tek enga sénsa. Hér er leiðindaveður en færð á vegum virðist ágæt. Þetta kemur allt í ljós.

miðvikudagur, apríl 05, 2006

Samstarfsmaður minn var að hræða mig með því að hann hefði fundið bloggið mitt. Ég er ekki alveg sannfærð en sé samt fram á að þurfa að ritskoða framvegis og gæta tungu minnar. (Damn you! Damn you to hell!)
Fór á tónleika í gær með Braveheart (hugaða piparsveininum). Það var mjög gaman. Nú ætla ég ekki að segja meira. Bæði vegna samstarfsmannsins og þess að þótt ég lifi mínu lífi í beinni þá get ég ekki sett annað fólk í þá stöðu.
Ég á að hafa enskupróf á morgun. Ætli það sé ekki best að fara að búa það til.

Bréf til bankanna

Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...