föstudagur, apríl 25, 2014

Varðandi Pallinn - Til Þóru og Völla

Þóra Sigurðardóttir og Völundur Snær Völundarson skrífa grein í nýjasta Skarp vegna lokunar Pallsins.
Mig og mág minn (hans hugmynd) langar að benda Þóru og Völla á að hér í Þingeyjarsveit, sem æskustöðvar Völla tilheyra nú, er til fínasta hús sem er því miður vannýtt.
Ljósvetningabúð í Kaldakinn er stórt og mikið hús, með löggiltu eldhúsi og góðum sal sem hentar bæði til tónlistarhalds og leiksýninga.
Hér er því hús sem vantar kraftmikið og áhættusækið fólk og Þóra og Völli eru kraftmikið og áhættusækið fólk sem vantar hús.
Ef þetta er ekki match made in heaven þá veit ég ekki hvað.


PS.
Ég ræð að vísu engu en ég er alveg viss um að meirihlutinn er tilbúinn til samninga.

sunnudagur, apríl 20, 2014

Löglegt en hversu siðlegt?

Á haustdögum 2010 var eignarhaldsfélagið Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. stofnað:

,,Sveitarstjórn samþykkir að stofna einkahlutafélag sem hafi það að markmiði að efla og styrkja atvinnustarfsemi og búsetu í Þingeyjarsveit og nágrenni. Það fari með eignarhluti Þingeyjarsveitar í hinum ýmsu félögum sem stofnuð hafa verið í þeim tilgangi."

Var eignarhaldsfélagið stofnað, sveitarstjóri, oddviti og varaoddviti sett í stjórn og svo seldi Þingeyjarsveit Atvinnueflingu Þingeyjarsveitar ehf. fyrirtækin sín. Og já, ég samþykkti þetta allt saman og er sekari en syndin þegar kemur að stofnun þessa fyrirtækis.
Nýverið ákvað Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. að leggja til örlítinn part í fyrirtækið Aurora Observatory sem er sjálfseignarfélag. Það getur vel verið að Aurora Observatory sé ægilega fínt fyrirtæki sem á eftir að gera fullt af góðum hlutum enda er það ekki það sem truflar mig.
Það sem truflar mig er að stjórn Atvinnueflingar (fulltrúar meirihlutans) geti ákveðið algjörlega einhliða að setja fé sveitarfélagsins í fyrirtæki án þess að það sé rætt við eða borið undir sveitarstjórn og minnihlutinn fær ekkert tækifæri til athugasemda. Þá getur sveitarstjórn borið það fyrir sig að fyrirtækið sem hún leggur fé til og á fulltrúa í stjórn sé sjálfseignarfélag og þurfi þ.a.l. ekki að hlíta innkaupareglum Þingeyjarsveitar.
Nú má vera að það hafi ekki verið lögð há upphæð í Kárhólsævintýrið og má alveg líta í gegnum fingur með það. Hins vegar finnst mér þetta fyrirkomulag bjóða hættunni heim og því þarf að breyta sem fyrst.



laugardagur, apríl 12, 2014

Flísin og bjálkinn.

Þann 16. janúar sl. var ákveðið að setja kjörnum fulltrúum Þingeyjarsveitar siðareglur. Tímasetningin er ótrúlega skemmtileg en við skulum gefa okkur að hún sé tilviljun.
Siðareglurnar eru ágætar, ég gat alveg samþykkt þær. Nr. 2. er t.d. góð:


1.      Ábyrgð
Kjörnum fulltrúum ber að starfa af kostgæfni, fyrir opnum tjöldum og vera tilbúnir
að axla ábyrgð á ákvörðunum sínum og rökstyðja þær. Þeir skulu svara íbúum sveitarfélagsins eins og kostur er um framkvæmd þeirra starfa sem þeir bera ábyrgð á sem kjörnir fulltrúar. 

Nógu vel hljómar hún en við skulum ekki gleyma að það er ekki nóg að hafa góðar reglur ef eftir þeim er ekki farið. Það eru t.d. til ágætar reglur um opinbera stjórnsýslu og þarf ekki að setja fram einhverjar tillögur þeim til breytinga. Það þarf bara að fara eftir þeim. Eins og t.d. ráða hæfasta umsækjandann.

Þá er 4. grein ágæt líka en þar kveður á um Háttvísi, virðingu og valdamörk.



4.      gr. Háttvísi, virðing og valdamörk
Í störfum sínum skulu kjörnir fulltrúar koma fram af háttvísi og sýna hver öðrum, íbúum, viðskiptavinum og starfsmönnum Þingeyjarsveitar fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu. Þeir skulu í störfum sínum og í umræðu um málefni sveitarfélagsins stuðla að og viðhafa orð og athafnir sem samrýmst geta fyrirmyndar samskiptum. Þeim ber að virða ákvörðunarvald og réttindi annarra kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins. Þeir mega ekki hvetja eða aðstoða kjörinn fulltrúa eða starfsmann  við að brjóta þær meginreglur sem hér eru settar fram. Þeir mega ekki hlutast til um að starfsmenn geri neitt það sem hefur þann tilgang að verða kjörnum fulltrúa á beinan eða óbeinan hátt til hagsmunalegs ávinnings, né heldur aðila nátengdum honum eða ákveðnum hópum eða fyrirtækjum.

Ég hef í störfum mínum sem sveitarstjórnarfulltrúi ekki gagnrýnt einn eða neinn utan funda. Titillinn sveitarstjórnarfulltrúi stendur ekki undir neinum minna pistla. Ég hef hins vegar sem einstaklingur, útsvarsgreiðandi, íbúi og ekki sérstaklega velkominn starfsmaður  þessu sveitarfélagi gagnrýnt framkomu og stjórnarhætti og ætti að vera í fullum rétti til þess í lýðræðisþjóðfélagi.

Það skemmtilega er að til verksins voru fengin sveitarstjóri, oddviti meirihluta og meintur oddviti minnihlutans .* Þessir siðapostular sáu um svipað leyti allir ástæðu til að ráðast að mér opinberlega í fjölmiðlum undir starfsheitum.







* Fyrrverandi oddviti minnihlutans og núverandi 6. maður Samstöðu. Hann var á biðilsbuxunum á þessum tímapunkti.

miðvikudagur, apríl 09, 2014

Víkjandi vanhæfi

Ég er gift og ósköp sátt við það. Tengdapabbi minn átti fjóra bræður. Einn þeirra flutti til Reykjavíkur, gifti sig og eignaðist börn og svo barnabörn. Fyrir fjórum árum síðan flutti eitt þessara barnabarna til Þingeyjarsveitar og fékk viðskiptahugmynd. Sendi erindi til sveitarstjórnar. Þá var ég nýsest í sveitarstjórn og fannst eðlilegt að láta vita af þessum tengslum. Varð niðurstaðan sú að ég véki af fundi meðan erindið væri rætt.
Svona erum við nú ströng í Þingeyjarsveit.

Bara gagnvart sumum samt auðvitað, ekki öllum.

mánudagur, apríl 07, 2014

Hvatning til íbúa Þingeyjarsveitar


Samstaða efnir til fundar í Ljósvetningabúð í kvöld. Þar eiga að vera framsögur og málefnavinna. Þetta er vel gert og vert að þakka.
Það virðist ekki nást samkomulag um mótframboð svo Samstaða verður sjálfkjörin í vor og situr ein að völdum næstu fjögur árin.
Ef þið viljið hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins þá verðið þið að mæta í kvöld.
Þið fáið að vísu ekki að raða á listann en þið getið haft áhrif á málefnavinnuna.

Sérstaklega hvet ég foreldra barna í Þingeyjarskóla til að mæta.




PS:
Það má vera þversagnakennt að ég mæti ekki en ég er búin að reyna að leggja Samstöðu eins mikið lið og ég mögulega get.


Kaffi á Ketilsbraut

Upp úr djúpi draumahallar dansar skynjun vitundar. Í eldhúsinu eitthvað kallar, ókunnugur situr þar. Við hans fætur Seifur sefur, sakl...