Það var margt gott í fyrirlestrinum og hann var mjög
fræðandi. En svo fór Magnús að tala um markaðssetningu kannabis. Þá birtust á
skjánum hjá honum myndir af vörum með kannabisplöntunni og í bakgrunni voru
myndir af fáklæddum stúlkum með kannabismerkið húðflúrað á sig, aðallega
rassinn.
Magnús útskýrði myndbirtinguna svona: ,,Strákar hafa gaman
að því að horfa á stelpur, sérstaklega í þessu formi“ glennulegu klámmyndaformi
,,og stelpur vilja líta svona út.“
Ein af myndunum. (Alla vega áþekk.)
Jahá. Í alvöru?
Ég er algjörlega sammála því að reynt sé að sporna við
eiturlyfjaneyslu. En ekki á kostnað sjálfsmyndar stúlkna.
Skv. Magnúsi er markaðssetningu kannabisefna aðeins og
eingöngu beint að ungum mönnum. Það er nú gott að henni er ekki beint að
stúlkum. Eða eiga stúlkurnar kannski ekki peninga? Hvernig skyldi nú standa á
því? Uppteknar af útlitinu, kannski, með lítið sem ekkert sjálfstraust?
Það er til fullt af myndum af mönnum með kannabis tattú.
Hann birti enga svoleiðis mynd. Það er til fullt af karlkyns listamönnum sem
styðja kannabisneyslu, margir mjög myndarlegir. Ekki ein einasta mynd af
slíkum.
Þegar ég gúggla ,,marijuana
marketing“ þá kemur ekki upp ein einasta glennumynd. Hvernig er sú
fullyrðing rökstudd að kannabisefni séu „markaðssett“ svona?
Má ég vinsamlegast biðja um að Landlæknisembættið sé ekki að
ýta undir átröskunarsjúkdóma og kvenfyrirlitningu.
Í gærkvöldi var fjölskyldunni boðið í mat sem er svo sem
ekki í frásögur færandi. Við keyrðum svo heim í ljósaskiptunum. Fegurðin
heimsins var þvílík að konu setti hljóða.
Ég hef þótt heldur neikvæð svo mig langar, af því að það er
alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt, að nefna til það sem mér þykir gott við
Þingeyjarsveit. Listakonan Fía á Sandi hefur næmt auga fyrir fegurð og fékk ég
góðfúslegt leyfi til að birta nokkrar myndir
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
Fyrstan ber vissulega að nefna rauðhærða bóndann sem hefur
fært mér hamingjuna sjálfa með tilveru sinni. Þá koma drengirnir
okkar, bornir og barnfæddir Þingeyjarsveitungar. Þeir eru tilgangur lífs míns.
Í Þingeyjarsveit býr hamingja mín en sorg mín hvílir hér
líka, litla englastúlkan mín í Þóroddsstaðarkirkjugarði.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
Í Þingeyjarsveit hef ég kynnst mínum bestu vinkonum. Konur
sem eru til staðar þegar á reynir. Veita mér styrk og vináttu. Og gleði. Það
sem þið getið látið mig hlæja, stelpur.
Hér býr mikið af flottu fólki sem vill allt fyrir alla gera
og hleypur undir bagga eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Stórutjarnaskóla og Tjarnaskjól hef ég marglofað í hástert, svo mjög að ég er
nánast farin að fyrirverða mig fyrir það. Drengirnir mínir eyða þar dögum sínum og þeim
líður vel.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
Hér býr fólk í nánum tengslum við náttúruna og tekur
duttlungum hennar af æðruleysi.
Jafn ofsafengin og náttúran getur verið þá er hún jafn
dásamlega falleg. Hér hef ég séð þann fallegasta himinn sem ég hef nokkurn tíma
séð. Litadýrð haustsins er þvílík að það er erfitt að halda einbeitingunni.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
Að sitja úti á síðsumarkvöldi og njóta friðar og fegurðar er
ómetanlegt. Allt gull heimsins dugir ekki. Slíkur er kraftbirtingarhljómur guðdómsins.
Það hefur væntanlega ekki farið
fram hjá neinum að Mamma Mia! var
sýnd í sjónvarpinu síðastliðið föstudagskvöld. Mér finnst hún æðisleg. Búin að
sjá hana alla vega fimm sinnum, gladdist mikið þegar ég sá hana á dagskránni,
tengdi í græjurnar, poppaði og söng svo með.
Spunnust nokkrar umræður um
myndina á fésbók á meðan á sýningu stóð. Konur, aðallega miðaldra, eru í
meirihluta þeirra sem elska myndina á meðan karlmönnum þykir hún svona heldur
klén.
Ég fór í kjölfarið að velta fyrir
mér hvað veldur þessu mun sem og hvað veldur hrifningu minni á myndinni.
Greiningin sem hér fer á eftir er ekki fræðileg heldur persónuleg og aðeins
gerð sjálfri mér og vonandi einhverjum öðrum til skemmtunar.
Tónlistin
Tónlistin er burðarás myndarinnar
enda allt byggt upp í kringum hana. Þetta er tónlist sem allir þekkja og minnir
okkur á gamla tíð. Þetta er hress og skemmtileg tónlist sem fær blóðið á
hreyfingu. Textarnir eru sumir svolítið dimmir en við þekkjum flest alla vega
viðlagið og getum sungið með.
Myndin.
Myndin er byggð á söngleik
byggðum á tónlist Björn og Benny og var frumfluttur 1999. Allar tímasetningar í
myndinni eru út úr kú, aldur sumra leikara á skjön við persónusköpunina og
ýmislegt sem gengur ekki upp. Enda skiptir það engu máli. Þetta er fantasía.
Mamman.
Það er móðirin, Donna, sem er
aðal söguhetja myndarinnar. Hún á sennilega að vera á milli fertugs og fimmtugs
en Meryl var 58 ára þegar hún lék hana. Hún er einstæð móðir sem rekur hótel á
grískri eyju. Dóttirin er að fara að gifta sig, fullung að virðist, og býður
mögulegum feðrum sínum í veisluna.
Það heyrir til algjörra
undantekninga að sterk, miðaldra kona sé aðalsöguhetjan í bíó og það m.a.s.
tiltölulega eðlileg. Þá á hún líka svolítið fjöruga fortíð sem hún hefur þó
bætt upp með skírlífi síðustu árin. „Góðar“ konur virðast ekki mega vera
kynferðislega virkar í bíó.
Fyrirbærið „mamma“, eins algengt
og það nú er, virðist óskaplega vandmeðfarið í fantasíuheiminum. Í flestum
ævintýrum eru mömmurnar horfnar á vit formæðra sinna og vondan stjúpan komin í
staðinn. Nú eða bara engin mamma tiltæk, eins og t.d. í Finding Nemo. Ef þær eru til staðar þá er eitthvað að eins og t.d.
mamman í Hunger Games.
Tvær vinkonur hennar koma í
brúðkaupið og þær eru fjörugar og skemmta sér og gera grín að aldrinum. Svona
myndir hafa svo sem sést áður eins og t.d. First
wifes club en þar eru konurnar skilgreindar út frá eiginmönnum sínum. Það
má segja að Donna sé skilgreind út frá samskiptum sínum við karlmenn, einstæð
móðir, en vinkonurnar eru það ekki. Önnur ógift en hin marggift.
Sex, drugs and rock‘n‘roll
Kunningi minn, sérfræðimenntaður,
segir að lífið gangi út á þetta þrennt; sex, drugs and rock‘n‘roll. Það er gott
partí í myndinni og góð tónlist en það er líka heilmikið kynlíf þótt vel sé með
það farið. Því er nefnilega beint að miðaldra konum og kynhneigð þeirra.
Fyrir það fyrsta er viðurkennt að
miðaldra konur hafi kynhneigð. Það er nú ekki sjálfgefið í Hollíwúddinu. Þá er
það líka viðurkennt að við höfum gaman af því að sjá myndarlega karlmenn. Svo er okkur sýnt það sem okkur langar að sjá.
Og hvað haldið þið að það sé? Jú, miðaldra konur vilja sjá myndarlega miðaldra
karla. Og þeir birtast á skjánum einn af öðrum, Pierce Brosnan, Stellan
Skarsgard og Colin Firth.
Við sjáum þá bera á ofan, bringuhár fyrir þær sem það
vilja. Og við sjáum m.a.s. bossa líka.* Konur
vilja ekki klám. Þær vilja það
alla vega fallega innpakkað.
Það er líka ungur og sprækur
foli, ef löngunin leitar þangað. Hann gengur á eftir Tönju með grasið í skónum.
Þetta er væntanlega ástæðan fyrir
því að karlmenn fíla ekki myndina. Þeir eru allt í einu orðnir viðfang
kynferðislegrar girndar. Það er vandlega undirstrikað þegar Rosie gengur á
eftir Bill.
Yfirleitt er einn karl og fullt
af ungum konum sem hann getur valið úr. Núna eru þeir þrír og konan getur valið
og hafnað. Það er ekki lengur kvenkyns lambakjöt á boðstólnum heldur hrútakjöt.
Á Skemmunni er að finna lokaverkefni háskólanema og jafnvel rannsóknarverkefni. Þetta gnægtarbrunnur upplýsinga en samt fann ég bara eina ritgerð (opna) um vanhæfi skv. sveitarstjórnarlögum.
Ritgerðin heitir Hæfisreglur 19. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og er eftir Ólaf Pál Vignisson.
Nú er rétt að benda á að ný sveitarstjórnarlög töku gildi 2012 en hæfiákvæðin eru svo keimlík að mér finnst ritgerðin alveg jafngild þrátt fyrir það. (Hægt að sjá ákvæðin hér.)
Ritgerðin er 112 síður og ég veit að fáir nenna að lesa svo langan texta. Hún er engu að síður mjög fróðleg og skrifuð á mannamáli. Því miður hefur óyfirlesna eintakið slæðst á vefinn svo einstaka ásláttarvillur eru í textanum. Er það miður.
Ég tók mér það bessaleyfi að taka út nokkra kafla sem mér þykir eiga við.
Um þetta sagði Ólafur (Jóhannesson) einnig:
,,Nú sýnir reynslan, að dómgreind stjórnvalds er
varlega treystandi, þegar það sjálft eða nánir vandamenn þess eru við mál riðnir og eiga hagsmuna
að gæta í sambandi við málsúrslit. Afstaða þess mótast þá oft – vitandi eða óafvitandi – af
þessum persónulegum hagsmunum. Þegar þannig stendur á, er næsta lítil trygging fyrir réttum og
hlutlægum ákvörðunum stjórnvalds.
Réttaröryggi sýnist því best borgið, ef
stjórnvald er almennt talið vanhæft til ákvörðunar í máli, þegar
málsúrslit varða það sjálft eða nákomna venslamenn þess verulega.(leturbr. mín) “24 (bls. 14)
Hefur því hin síðustu ár ekki
þótt nægilegt að byggja eingöngu á öryggisjónarmið við
túlkun á hæfisreglum, þar sem
tengls starfsmanns við hið tiltekna mál kann að vera með þeim hætti að það vekji upp spurningar
um óhlutdrægni hans, jafnvel þó leiða megi að því líkur að hann teljist málefnalegur í sinni
vinnu. Í því sambandi skiptir ekki máli hvort starfsmaður eða nefndarmaður hafi komist að
réttri niðurstöðu ef aðstæður við úrlausn máls hafa verið með þeim hætti að þau hafa dregið úr
tiltrú á óhlutdrægni hans.47
Þannig
kemst Páll Hreinsson að orði, að ef trú skortir almennt á
það að komist hafi verið að málefnanlegri niðurtöðu ríkir óöryggi og því í raun skert
réttaröryggi. Því sé talið nauðsynlegt að komið sé í veg fyrir að starfsmaður leysi úr máli ef hann
er tengdur því eða aðilum þess með þeim hætti að út frá sjónarhóli hlutlauss og skynsams
þriðja manns megi draga óhlutdrægni hans í efa með skynsamlegum hætti.48 (bls. 20)
Þannig getur þátttaka í
undirbúningi máls falið það í sér að ekki verði unnt að telja
sveitarstjórnarmann líta óhlutdrægt til umfjöllunar þess fyrir
sveitarstjórn. Hafi sveitarstjórnarmenn sem jafnframt eru t.d. kennarar, leikskólastjórar,
hafnarstjórar komið að undirbúningi tiltekins máls verða þeir taldir vanhæfir til meðferðar þess
þegar það kemur til kasta sveitarstjórnar.
Eftir því sem hagsmunir tiltekins
máls teljast miklir og varða sveitarstjórnarmanninn
verulega, t.d. ef um er að ræða
mál er lýtur að atvinnuöryggi hans, fjárhagslegum
hagsmunum, launagreiðslum eða
öðru þess þess háttar verður að telja hann vanhæfan til
meðferðar þess tiltekna
og fyrirliggjandi máls. (bls 28)
Í málinu lág fyrir að sameina ætti tvo skóla í
hreppnum í einn. Ágreiningur var uppi um hæfi þriggja hreppsnefndarmanna. Einn hreppsnefndarmanna
sinnti ræstingarstarfi í 86%
starfshlutfalli við þann skóla. Með sameiningu
skólanna yrði tali að einungis væri þörf fyrir eitt ræstingarstarf í hinum sameinaða skóla. Að mati ráðuneytisins
stóðu hagsmunir
sveitarstjórnarmannsins af að skólahald haldi áfram
í þeim skóla er hann sinnri ræstingum væru sérstakir og verulegir og því væri hætta á því að
þeir hefðu að einhverju leyti mótað afstöðu hans til þeirra valkosta sem hreppsnefnd stóð frammi
fyrir. Því hafi hann verið vanhæfur til meðferðar málsins.
Samkvæmt framangreindu skipti
sköpum í þessu máli þeir hagsmunir sem
sveitarstjórnarmaðurinn kynni að
hafa af úrlausn málsins. Í þessu sambandi litu þeir að
atvinnu hans og því um verulega
og sérstaka hagsmuni að ræða. (bls
28-29)
Álit
félagsmálaráðuneytisins 5. desember 1996 (ÚFS 1996:154) þar sem
talið var að skólastjóri tónskóla
sveitarfélagsins sem jafnframt var varafulltrúi í sveitarstjórn, yrði vanhæfur þegar málefni
tónskólans kæmu til kasta sveitarstjórnarinnar og þau vörðuðu skólann sérstaklega. (bls. 33)
Varði mál í sveitarstjórn,
foreldra sveitarstjórnarmanns, systkini, ömmu og afa, börn og
barnabörn yrði hann talinn
vanhæfur til meðferðar máls enda um afar nána venslamenn að ræða, eða það sem í
stjórnsýslurétti hefur verið kallað skyldmenni í beinan legg91 Verður jafnframt að telja að sé
sveitarstjórnarmaður mægður aðila máls í beinan legg, þ.e ef mál varðar t.d tengdaforeldri92 sveitarstjórnarmanns,
mág eða mágkonu, afa og ömmu maka, jafnvel svili aðila máls
o.s.frv., teljist hann vanhæfur á sama hátt. Sjá í þessu sambandiúrskurðfélagsmálaráðuneytisns 20. júlí 1998 (ÚFS 1998:109), þar sem
sveitarstjórnarmaður var talinn vanhæfur í samræmi við
45. gr. þág. svsl. þar sem hann var svili aðila máls. Fram að þessu hafði ráðuneytið þó ekki
viðurkennt að slík vensl leiddu til vanhæfis, sbr. t.d. úrskurð
félagsmálaráðuneytisins 19. maí 1989 (ÚFS 1989:67) (bls. 43)
Hér verðum við aðeins að staldra við. Mágur aðstoðarskólastjóra, fyrst Litlulaugaskóla og svo Þingeyjarskóla, hefur setið í sveitarstjórn frá sic. 2008. Á þessum tíma hafa nokkrar ákvarðanir verið teknar um skólamál. Má þá viðamestu telja sameiningu Hafralækjar- og Litlulaugaskóla 2011. Er vert að hafa í huga að sveitarstjórnarlög 45/1998 voru í gildi. Þá hef ég ekki ástæðu til að ætla að nánir venslamenn séu orðnir eitthvað ónánari með nýju lögunum.
Af ákvæði 1. málsl. 5. tölul. 1.
mgr. 3.gr. ssl. leiðir að sveitarstjórnarmaður teljist vanhæfur til meðferðar máls, jafnvel þó hann
teljist ekki aðili þess, né heldur að vensla maður hans, en þeir hafi engu að síður sérstakra og
verulegra hagsmun að gæta af úrlausn málsins. 109
Undir framangreinda
vanhæfisástæðu falla t.a.m. tilvik þegar sveitarstjórnarmaður hefur
fyrirsjáanlega sérstakra og
verulegra fjárhagslegra framtíðarhagsmuna að gæta, hvort sem um tap eða hagnað væri að ræða. Í
því sambandi má nefna álit umboðsmanns Alþingis, UA 19. október 1998
(2110:1997).
(bls 51)
Í seinni tíð virðist
tilhneygingin vera sú, varðandi það hvort sjónarmiðið um fámenni
sveitarfélaga geti leitt til
tilslakana á hæfisreglum, að ef hægt verður að kalla til varamann eða þannig að sveitarstjórnarfundur
teljist ályktunarbær í samræmi við 20. gr. svl., að þá megi leiða fremur að því líkur að
sjónarmiðið um fámenni sveitarfélaga leiði ekki til þess að víkja megi frá hæfisreglum
sveitarstjórnarlaga.175 (bls. 87)
Í þessum kafla er vitnað til ca. 50 manna sveitarfélaga sem fámennra. Rúmlega 900 manna sveitarfélag getur því varla flokkast sem fámennt í skilningi laganna.
Í 6. mgr. 19. gr. svsl. er vikið
að því að vanhæfum sveitarstjórnarmanni beri að yfirgefa
fundarsal við meðferð og
afgreiðsli málsins. Honum ber að hlýta niðurstöðu atvkæðagreiðslu um hæfi sitt sbr. t.d. álit
félagsmálaráðuneytisins 30. mars 1995 (ÚFS 1995:54)
Ákvæðið er ekki skýrt nánar í
athugasemdum með frumvarpinu en ákvæðið engu að síður hvílir á þeim rökum, sbr. FOB
1983:154, að tryggja að meðferð málsins fyrir sveitarstjórn geti farið fram frjálst og óhindrað án
áhrifa frá hinum vanhæfa sveitarstjórnarmanni á fundinum. (bls 96)