Jemundur eini. ,,Maðurinn" er búinn að hringja. Ég var að vísu ekki heima en sé það á birtinum. Nettur sjokker. Nú þarf ég væntanlega að taka til og þykjast vera húsmóðir. Já btw., ef svo ólíklega vildi til að einhver hafi verið nursing a crush on me þá eru að verða síðustu forvöð. Ég hafði hugsað mér að ganga út fljótlega.
(Það var fullyrt að maðurinn hefði ekki tölvu. Vona að það sé rétt og ég sé ekki að klúðra neinu.)
(Það var fullyrt að maðurinn hefði ekki tölvu. Vona að það sé rétt og ég sé ekki að klúðra neinu.)
úúú, spennandi :-) keep us posted...
SvaraEyðaÉg er nú reyndar ekki búin að hitta hann enn þá. Dálítið erfitt fyrir rólegar og heimakærar konur að hitta karlmenn. En það er víst rólegur og heimakær ógiftur maður í fjölskyldu manns frænku minnar og voila! Þessu var komið í kring í gegnum miklar krókaleiðir og ég ákvað bara að taka sénsinn og samþykkja svona blind date. Maður gengur víst ekki út ef maður situr bara heima.
SvaraEyðaÉg hélt ekki að svona "blind date" tíðkuðust á Íslandi. En spennandi.
SvaraEyðaVonandi er hann flottari en fyrsta "blinda" deitið mitt í Ameríkunni, þegar ég var 18 ára. Hann mætti, með hormottu og í kúrekastígvélum, og ég var alveg að spá í að ljúga og segjast vera einhver önnur. Mér leiddist svo mikið þetta kvöld að ég sofnaði. ;)