Það er ekki gallalaust

Gleðileg jól og farsælt nýtt ár og svoleiðis.
Bloggletin stafar að miklu leyti af símalínusambandinu, ég nenni bara ekki að sitja við tölvuna og svo var bara allt meinhægt. Þar til núna. Verð aðeins að hella úr skálum pirringsins.

Þar sem það er allt útlit fyrir að ég sé flutt alfarin út á land þá ákvað ég að selja íbúðina mína í Reykjavík. Ég var með fína leigjendur sem fengu aðra íbúð svo ég ákvað að skella íbúðina bara í sölu. Hún er metin lægra heldur en eins íbúðir í nærliggjnadi húsum og er ég nú ekkert sérstaklega sátt við það en fasteignasalinn bendir á að hinar íbúðirnar séu nú ekkert að fljúga út svo ég sætti mig við þetta. Ungur maður hefur áhuga og skoðar og gerir svo tilboð milljón lægra en beðið er um. Ókey, strákinn langar að leika svo ég geri gagntilboð sem er 250 þús. lægra en upphaflega var beðið um. Daginn eftir fæ ég gagn-gagntilboð þar sem ungi maðurinn hefur hækkað sig um alveg heilar 200 þús. Ég segi fasteignasalanum ég nenni nú ekki einu sinni að svara þessu. Ég sé ekki tilbúin að lækka mig um meira en 400 þús. frá uppsettu verði. Ég sé búin að hafa talsverðan kostnað af íbúðinni, borgaði utanhússviðgerð upp á rúmar 600 þús. og væri nýbúin að borga viðgerð í stigaganginum upp á 160 þús. Fasteignasalinn spyr hann megi segja stráknum þessa tölu og ég játa því. Seinna um daginn klukkan hálf fimm þegar ég er stödd í jólainnkaupum á Akureyri hringir fasteignasalinn og kemur með enn eitt tilboðið frá stráknum sem er 650 þús. lægra en upphaflega var farið fram á. Þetta sé það hæsta sem hann er tilbúinn að fara og, til að kóróna allt saman, tilboðið gildir bara til klukkan 18:00 þennan dag. Svaka stælar. Ægilegur töffari. Ég var tilbúin að skoða þetta tilboð en þessir stælar fóru bara það mikið í mig ég gat ekki tekið því. Mér líkaði ekki maðurinn, mér líkaði ekki framkoman og hann gat bara átt sig. Mér lá ekkert á að selja íbúðina. Ég gat bara fundið nýja leigjendur og beðið. Þar með slítum við fasteignasalinn samtalið.
Daginn eftir þegar ég er að keyra suður hringir síminn. Fasteignasalinn vildi endilega fara yfir stöðu markaðsins og íbúðarinnar og svona. Drengurinn er búinn að hækka sig um alveg heilar 50 þús. og fasteignasalinn mælir eindregið með að ég taki tilboðinu. Þá er hann búinn að ná henni niður um 600 þús. frá því sem sett var upp. Ég ákveð að samþykkja það. Það er gengið frá sölunni stuttu eftir áramót.
Fyrir rúmri viku síðan hringir fasteignasalinn. Kaupandinn er að heimta skaðabætur vegna leynds galla. Það voru viðarþiljur í svefnherbergisveggnum og stofuveggnum, sami veggurinn hann bara dekkar bæði stofu og svefnherbergi. Viðarþiljurnar voru þarna þegar ég keypti og voru þarna ósnertar þegar hann kaupir. Þetta rífur hann niður og undir eru sprungur. Viðgerðir upp á hundruði þúsunda. Þetta er innveggur í 50 ára gömlu húsi svo hvernig hann fær þetta út er mér óskiljanlegt.
Persónulega held ég að drengurinn hafi aldrei ætlað sér að standa við samninginn að fullu. Hann vildi fá íbúðina á lægra verði og hann ætlar sér að fá það fram með öllum ráðum. Ef það hefði ekki verið þetta þá hefði það bara verið eitthvað annað. Mér finnst það hins vegar engan veginn í lagi að það sé hægt að gera manni tilboð í eign, fá hana afhenta og eyðileggja hana fyrir mér því hann ætlaði sér alla vega að rífa allt út, og fara svo fram á afslátt. Ef hann vildi ekki borga svona mikið fyrir íbúðina þá átti hann ekki að bjóða svona hátt. Bara drullast í burtu og leyfa mér að selja einhverjum öðrum.
Hann fór með þetta í fasteignasöluna en hún virðist vera alveg stikkfrí.
Mér finnst líka skrítið að fasteignasalan fær 1.95% af söluhagnaði og sú þóknun rýrnar ekkert þótt söluverðið lækki í raun ef hann fær sínu framgengt.
Best að taka það fram að það segja mér allir að ég þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu, lögin og dómafordæmin séu öll mér í hag. Þetta er bara ves.

Ummæli

  1. Ég myndi ekki hafa miklar áhyggjur. Í nýjum lögum er búið að þrengja verulega svigrúm kverúlanta til að finna "leynda galla" á íbúðum sem þeir kaupa. Venjulegar sprungur hrökkva ekki til.

    SvaraEyða
  2. Það reyna þetta margir til að ná niður verði, en eins og Sverrir segir túlka lögin "leynda galla" mjög þröngt og þeir gallar þurfa að vera stórvægilegir.

    Ég lenti í svona þegar ég seldi síðustu íbúðina mína fyrir nokkrum árum. Eitthvað kvart yfir smá raka, sem ekki varð neitt úr. Þetta líður hjá. :)

    Til hamingju annars með að hafa selt íbúðina.

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir