föstudagur, júlí 18, 2008

Samfylkingin og stóriðjustefnan

Húsvíkingar eru sannfærðir um að þeir séu að fá álver. Þ.a.l. er ekki lagt í neitt annað og ekkert annað skoðað, eins og t.d. heilsuþjónusta í Heiðarbæ.
Sjálf sé ég fyrir mér Spa-City á Þeistareykjum þar sem ríkir og feitir Ameríkanar koma í afvötnun og megrun en sú hugmynd nýtur ekki almennrar hylli.
Þeir sem eru á móti álverinu hafa mjög hljótt um það. Það er farið með það eins og mannsmorð. Eða eins og maður sé að taka matinn af diskum barnanna. Þess vegna hefur fólk mjög hljótt um það. Nema ég, það vita allir að ég er á móti álverinu. En ég er auðvitað aðflutt, við erum ekki að tala um ættingja eða aldagamla vini.
Ég hef hins vegar ekki lagst í harða baráttu því ég er ekkert viss um að þetta álver komi hér yfir höfuð. Það sem styrkir mig í þeirri skoðun núna er samfylkingin sem slær í og úr.
Í kosningabaráttunni setti Samfylkingin fram Fagra Ísland. Margt hefur nú verið rætt og ritað um það og Samfylkingin túlkar Fagra Ísland út og suður. Hins vegar skrifaðu Össur undir viljayfirlýsingu fyrir luktum dyrum og nú vill hann að Gjástykki fari í umhverfismat. Gott og blessað, ekki mótmæli ég. Skoðanakannanir sýna líka að meirihluti þjóðarinnar vill ekki frekari virkjanir og álver eru virkilega að hrapa niður vinsældalistann. Samfó verður að hugsa um fylgið. Hún verður líka að hugsa um grænu prósentin sem hún laðaði til sín frá Vinstri-Grænum í síðustu kosningum. Svo mér sýnist á öllu að Samfylkingin sé að reyna að koma sér undan álverinu án þess að segja það beint út. Og það þykir mér afar slæmt. Fólkið hérna treystir á þetta álver og að það leysi allan vanda. Ef það stendur til að slá þetta álver út af borðinu þá er rétt að það komi fram og hætt sé að draga fólk á asnaeyrunum. Ef það á að halda því til stefnu þá vil ég gjarnan vita það svo ég geti byrjað á mótmælaaðgerðum:)

2 ummæli:

  1. Þorbjörn bróðir minn og hans fjölskylda voru eitilharðir andálvers- og virkjunarsinnar fyrir austan, það var ekkert alltaf auðvelt.

    En ég er alveg sammála, það verður að hætta að draga fólk á asnaeyrunum, og leyfa því að bjarga sér sjálfu. Átti ekki byggð hjá Mývatni að leggjast af þegar kísilgúrinn fór? Og hvað gerðist? Sama með herinn, Reykjanes átti nú aldeilis að verða auðn, atvinnuleysi að snaraukast. Það hefur aldrei verið svona gott ástand þar, held ég.

    Björgunaraðgerðir stjórnvalda hafa nefnilega tendens til að verða verra en ekki. Vilji fólk fara, þá fer það. Vilji það VIRKILEGA vera, þá finnur það sér eitthvað að gera, hafi það einhverja smá sjálfsbjargarviðleitni.

    Læt ég nú frjálshyggjufyrirlestrinum lokið ;)

    SvaraEyða
  2. Ég vona að það sé rétt hjá þér að Samfylkingin ætli ekki að styðja álver á Húsavík. En ég veit það samt ekki...

    SvaraEyða

Færsla Lögreglunnar á Norðurlandi eystra

Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhor...