Ástþór og forsetafrúin

Nýverið var viðtal í síforsetaframbjóðandann Ástþór Magnússon í útvarpsþættinum Harmageddon.Viðtalinu var nokkuð dreift á samfélagsmiðlum og ég skrollaði alltaf fram hjá því enda orðin nokkuð langþreytt á Ástþóri sannast sagna. Það var ekki fyrr en fésbókarvinur mælti sérstaklega með því að ég lagði á mig að hlusta á viðtalið. 
Ástþór er gífuryrtur, því verður ekki neitað. Í stuttri endursögn segir Ástþór að Shlomo Moussaieff, tengdafaðir forsetans, hafi verið hálfgerður glæpamaður sem hafi auðgast á vafasaman hátt, m.a. með smygli á demöntum yfir landamæri. Þá sé fjölskyldufyrirtækið ekki búið að vera í "marga ættliði" í
fjölskyldunni heldur hafi Shlomo stofnað það upp úr 1960.
Dorrit sjálf sé heldur sérstök og nefnir hann að hún hafi fengið á sig nálgunarbann í London og svo telur hann að hún og fjölskyldufyrirtækið hafi sérstaka hagsmuni af því að hún hafi diplómapassa frá Íslandi. Nefnir hann uppákomu við landamæraeftirlit í Ísrael.

Ókey, ég er ekki aðdáandi forsetahjónanna. Það að ég sé ekki hrifin af manninum á auðvitað ekki að bitna á konunni en satt best að segja finnst mér framkoma hennar á stundum jaðra við kjánaskap sem er hreint ekkert krúttlegur.

Þrátt fyrir þetta hugsaði ég með mér "nei, andskotinn, Ástþór." En hann sagðist hafa fundið þetta allt á netinu svo það ætti að vera hægur vandi að staðfesta eða hnekkja frásögnina. Sjálf fann ég strax í fréttum að nágranni Dorritar í London hafi fengið á hana nálgunarbann ( kjánahrollur, úff) að til "öskurkeppni" hafi komið á milli hennar og landamæravarðar.
Vera Illugadóttir tók fyrir ásakanirnar á hendur Shlomo og gerir það faglega.
Fyrir utan hversu hjákátlegt margt af þessu er þá er ákveðið skemmtanagildi fólgið í þessu og ég er ekki að ætlast til að fjölmiðlar velti upp mörgum steinum í leitinni að sannleikanum. Hins vegar er eitt sem mig langar virkilega til að vita og óska eftir upplýsingum um og það er þetta:
Hvaða starfsheiti hefur Dorrit Moussaieff hjá skartgripasölunni Moussaieff Jewellers sem er svo ábyrgðarfullt og mikilvægt að hún þurfti að flytja lögheimilið sitt frá Íslandi til að geta sinnt því?

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir