þriðjudagur, september 06, 2005

Það er fullt að gerast í kennslunni. En það er ekki þorandi að blogga um það:)


MUHAAHAAAA!!!!!

mánudagur, september 05, 2005

Frjálst flæði leiðir stundum sannleikann í ljós. Var á kjaftatörn með 10. bekknum sem er algjört undantekningartilfelli í mínum kennslustundum og gerist bara örsjaldan, og við fórum að ræða um bíla. Ég sagði þeim að ég hefði átt Plymouth Volare '79, strætókort og Ford Orion '87. Kosturinn við þessa bíla væri sá að þeir hefði verið sérstakir og ég hefði alltaf fundið þá á augabragði á bílastæðum. Nú þegar ég ætti týpískan, japanskan fjölskyldubíl þá lenti ég alltaf í stökustu vandræðum að finna hann. Þá benti einhver nemandi á að það væri nú ekki mikill bílafloti á stæðunum hér. ,,Nei, einmitt. Þess vegna flutti ég út á land. Til að finna bílinn." A-ha!

sunnudagur, september 04, 2005

laugardagur, september 03, 2005

Bak við veggi martraðar
myndin af þér lifir,
margoft hef ég gullið mitt
reynt að komast yfir.


Know the feeling.

Meistari Morthens

föstudagur, september 02, 2005

Undur og stórmerki hafa gerst! Ég fékk bólu á kinnina en ekki hökuna!
Svona er lífið fábrotið í sveitunum:)

(Ég hélt einmitt að bólur væru teen terrors!)

fimmtudagur, september 01, 2005

Útborgunardagur, eða þannig. Það liggur fyrir nú þegar að tekjurnar dekka ekki útgjöldin. Sem þýðir að ég verð að taka út af bankabókinni og ég þoli það alls ekki. Mér líður illa ef ég á ekki pening í bankanum. Það hefur ekkert með það að gera að ég er í krabbamerkinu, það er bara óheppileg tilviljun. Netbankinn hjá KB banka var í tvö ár að hlaðast inn á ADSL-inu í Reykjavík. Ég er að verða gjörsamlega vitstola að sitja yfir innhringisambandinu í Aðaldælahreppi. Þessir bankastjórar ættu að setja eitthvað af millónunum sínum í að laga þessa heimasíðu. Eða gefa landsbyggðum háhraðasamband. Það er náttúrulega ferlega sniðugt að gera kröfu um upplýsingatækni í Aðalnámskrá en tryggja ekki öllum nemendum aðgang að netinu. Netsamband lá niðri í Hafralækjarskóla lon og don síðasta vetur. Fólk hlær kuldalegum hlátri ef maður nefnir netið.
Hins vegar fékk ég þær dásamlegu fréttir í gær að skattur af leigutekjum er ekki nema 10%. Skelfing varð ég ánægð, hélt nefnilega að það væri 40% eins og af öðrum tekjum. Já, ég leigði út íbúðina mína svo ég ætti afturkvæmt ef þetta yrði allt voðalegt:)

Bréf til bankanna

Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...