Ég er að fikta mig áfram með nýtt template. Vistaði það gamla samt til öryggis ef mér tækist nú eitthvað að klúðra þessu. Það eru einhver smáatriði sem þarf að laga en svona annars...
Látið ekki sakleysislegt útlitið blekkja!
Já, við fyrstu sýn virðist þetta ósköp eðlilegur köttur. En hún er það ekki!
Ég var hringd út um tvöleytið í dag því að þessi vargur, þessi glæpaköttur hafði ráðist á litlu, sætu kisustelpuna mína þar sem hún svaf í sakleysi sínu. Þær voru í fangbrögðum þegar litla systir sleit þær í sundur! Og litla, sæta kisustelpan mín var öll útklóruð með, ég er gjörsamlega miður mín, bitsár á bringunni. Svo það var brunað upp á Dýraspítala þar sem hún var sprautuð með pensilínsprautu. Það er ekki nóg með að verða fyrir svona svívirðulegu launsátri heldur þurfti hún að fara í bíl! Og fá sprautu! Á meðan skraðræðisgripurinn var heima og hrósaði sigri og þóttist aldeilis hafa tekist að hrekja keppinautinn að heiman.
Þegar við komum aftur heim og Snotra litla, fórnarlambið, faldi sig uppi í glugga og rétt gjóaði einu auga í genum rifu til að fylgjast með ofbeldisseggnum, þá lá Kolfinna í leyni fyrir Dúlla. Ég ætlaði að taka hana upp og ræða þessa hegðun
Þetta er ferlega sætt. :)
SvaraEyðaRosalega sumarlegt og Garfield klikkar aldrei.
SvaraEyðaógyssla flott :-)
SvaraEyðadanke, danke :)
SvaraEyða