Gyðingaljósið mitt var með ónýta peru svo ég keypti nýjar. Rauðar. Rosa flott. Er alveg a fullu að taka þátt í jólunum. Eða miðsvetrarhátíðinni. Hey! Ættum við að halda borgaraleg jól? Svo getum við haldið borgaralega páska og borgaralega hvítasunnu. Svo getum við skírt og jarðað borgaralega.
Látið ekki sakleysislegt útlitið blekkja!
Já, við fyrstu sýn virðist þetta ósköp eðlilegur köttur. En hún er það ekki!
Ég var hringd út um tvöleytið í dag því að þessi vargur, þessi glæpaköttur hafði ráðist á litlu, sætu kisustelpuna mína þar sem hún svaf í sakleysi sínu. Þær voru í fangbrögðum þegar litla systir sleit þær í sundur! Og litla, sæta kisustelpan mín var öll útklóruð með, ég er gjörsamlega miður mín, bitsár á bringunni. Svo það var brunað upp á Dýraspítala þar sem hún var sprautuð með pensilínsprautu. Það er ekki nóg með að verða fyrir svona svívirðulegu launsátri heldur þurfti hún að fara í bíl! Og fá sprautu! Á meðan skraðræðisgripurinn var heima og hrósaði sigri og þóttist aldeilis hafa tekist að hrekja keppinautinn að heiman.
Þegar við komum aftur heim og Snotra litla, fórnarlambið, faldi sig uppi í glugga og rétt gjóaði einu auga í genum rifu til að fylgjast með ofbeldisseggnum, þá lá Kolfinna í leyni fyrir Dúlla. Ég ætlaði að taka hana upp og ræða þessa hegðun
Þetta er allt heiðið og því í góðu lagi fyrir okkur trúleysingja að halda jól og páska með góðri samvisku. Jólatré, jólakúlur, jólaljós, páskakanínur og páskaegg hafa ekki baun með kristni að gera. :)
SvaraEyðaÞað var náttúrulega stefnan hjá kirkjunni að innlima bara heiðnar hátíðir svo umskiptin gengju betur.
SvaraEyðaNúna er verið að gera allt ,,borgaralegt". Ef við viljum halda ljósahátíð í svartasta skammdeginu þá að það bara að heita það. Ef fólk vill halda manndómsvígslur þá eiga þær að heita það, ekki ferming. Ef við viljum ekki vera kristin þá eigum við bara að sleppa því. Það truflar mig bara að fólk afneiti kristni en sukki svo í hátíðarhöldunum.
PS. Þetta er ekkert persónulegt gagnvart einum eða neinum. Þetta er bara eitthvað sem er að velkjast hjá mér.
SvaraEyðaOrðið "jól" á ekki rætur sínar að rekja til kristninnar, heldur er það miklu eldra. Sá sem heldur JÓL heldur heiðna hátíð. Það þarf því ekki að halda borgaraleg jól eða breyta nafninu, þó að maður sé ekki kristinn.
SvaraEyðaEf þú vilt vera kórrétt í kristninni ættirðu kannski að kalla þetta Kristsmessu eins og enskumælandi fólk gerir. ;)
öö...
SvaraEyðaJá þú getur verið með Borgaralega jarðaför, giftingu o.s.frv.
http://www.sidmennt.is/
En ég skil ekki þessa áráttu við að hnussa svona yfir þessu. Hvers vegna? Þetta er valkostur fyrir fólk. Er rangt að aðlaga hinum ýmsu siðum okkar þjóðfélags að hópum sem vilja hafa þetta öðruvísi?
Ég hlýt nú að mega ,,hnussa" yfir því sem mér sýnist á mínu bloggi.
SvaraEyðaAuðvitað máttu það! Og þó að ég sé ósámmála þér algjörlega þá vonandi tekuru það ekkert voðalega illa.
SvaraEyðaMig langaði bara að benda á aðrar hliðar málsins. Og segja mitt álit á þessu. Ef ég er að skjóta eitthvað yfir markið þá skal ég draga úr orðum mínum.