Hávaðinn

Ég er búin að vita það alla mína ævi að það eru skemmtistaðir í miðborginni. Ævi mín er talin í nokkrum tugum svo þetta er ekkert nýtt fyrirbrigði. Það hefur aldrei nokkurn tíma hvarflað að mér að kaupa mér húsnæði í miðbænum einmitt vegna þess að ég veit að drukkið fólk er hávaðasamt og getur verið til vandræða. Þess vegna finnst mér svolítið sérstakt að kaupa sér íbúð í miðbænum þar sem er vitað að eru skemmtistaðir, kvarta svo undan hávaða og ætlast til að skemmtistaðirnir loki. En það er kannski bara ég.

Ummæli

  1. tjah, fer kannski pínulítið eftir því hvenær þú keyptir íbúðina, hvort reglurnar þar voru - loka klukkan þrjú - þú sættir þig við það en ert ekki alveg glaður með að geta ekki farið að sofa fyrr en klukkan 7...

    (nei, ég hef aldrei ekki getað sofið fyrir látum, enda er ég nógu fjarri látunum, en ég skil samt þetta fólk ágætlega)

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir