fimmtudagur, ágúst 30, 2012
þriðjudagur, ágúst 21, 2012
Smokkur eður ei.
Nú hef ég lítillega fylgst með máli Julian Assange og hef í sjálfu sér litla skoðun á því hvort um ,,samsæri" sé að ræða til að koma honum til Bandaríkjanna. Hins vegar finnst mér varhugavert að grunaður glæpamaður geti sett einhverja skilmála fyrir því hvort honum náðsamlegast þóknast að mæta í yfirheyrslu.
En það var ekki það sem ég ætlaði að tala um heldur smokkaleysið.
Nú sá ég á dv.is (nenni ekki að leita að því) frétt um málið og í umræðuhalanum sem fylgdi var mörgum sem þótti sakarefnið mjög ómerkilegt en Assange er sakaður um kynferðisbrot að því leyti að hafa ekki notað smokk í annars samþykktum samförum. Þetta er alveg sorglega gamaldags og fyrirsjáanlegt viðhorf. Gamaldags að því leyti að það felur í sér að kona sem stundar frjálsar ástir á í raun allt illt skilið.
Nú er ég af AIDS-kynslóðinni og það var hamrað á því að við ættum að nota smokkinn. Þess vegna finnst mér sjálfsagt að fólk noti smokk í one-night-stand. Og mér finnst fullkomlega eðlilegt að annar aðilinn geri það að skilyrði hvort sem það er karlinn eða konan. Í þessu tilviki voru það konurnar. Í tilfelli kvenna er það ekki bara hætta á kynsjúkdómum sem smokkurinn minnkar, og Assange er greinilega mjög léttur á bárunni, heldur er hann einnig getnaðarvörn.
Að fólki finnist það í alvöru ómerkilegt smámál að kona fái kynsjúkdóm eða verði þunguð gegn vilja sínum bara til að karlinn fái það betur er sorglegt.

miðvikudagur, júlí 25, 2012
Að gera fólk vanhæft.
Ég hef gaman af flestu bresku sem og
glæpasögum. Það leiðir því af líkum að ég hef afskaplega gaman af bæði Lewis og
Barnaby ræður gátuna.
Síðastliðna helgi var sýnd Barnaby –mynd og
gott sjónvarpskvöld því í vændum. Því miður missti ég af byrjuninni en þegar ég
kem inn í myndina þá er e.k. yfirmaður á staðnum, nefndur Undradrengurinn ef
minnið bregst ekki, sem er að líta eftir vinnubrögðum vina okkar. Líklega hefur
hann átt að bæta afköst deildarinnar eða eitthvað þvíumlíkt en eins og fyrr
sagði þá missti ég af byrjuninni. Undradrengurinn fór í taugarnar á Barnaby og
hann sinnti ekki því sem hann lagði til. Henti m.a. tímaskema sem hann átti að
fylla út. Þetta átti klárlega að vera hliðarbrandari í myndinni og fyrst í stað
hló ég að þessu. Þegar líða fór á þá fannst mér þið? ﷽﷽﷽﷽﷽﷽ er ir ekki vinnunni sinni. En hvað nfn skoða afköst
deildarinnar eða þvra yfirmaður einhvers staðar og njetta ekki alveg
jafnfyndið. Þetta minnti mig nefnilega leiðinlega mikið á viðbjóðs fyrirbærið
einelti á vinnustað.
Ég ætla aðeins að greina þetta þótt mér sé að
sjálfsögðu fyllilega ljóst að þetta er bara bíómynd og allt í plati.
Nú var þessu stillt upp þannig að
Undradrengurinn var yfirmaður Barnaby svo hann var klárlega í
yfirburðastöðunni. En Barnaby er gamall jaxl og eðlilegt að ætla að upp til
hans sé litið og álit hans skipti máli. Enda fylgdi félagi Barnabys honum
algjörlega að málum og öll deildin að því er virtist. Þannig að yfirmaðurinn
naut engrar virðingar. Það er væntanlega mjög erfitt að vera yfirmaður einhvers
staðar og njóta ekki virðingar og fólk fer sínu bara fram. Sbr. þegar Barnaby
laug því að allir á Tæknideildinni væru veikir.
Þá var maðurinn sífelldlega uppnefndur, aldrei
kallaður neitt annað en Undradrengurinn og vissulega í háðungarskyni.
Það sem stakk mig mest var þegar Barnaby henti
tímaskemanu. Því ,,Undradrengurinn” hefur væntanlega verið fenginn til að
hagræða eða skoða afköst deildarinnar eða þvíumlíkt. Þegar deildin neitar að
vinna með honum þá er verið að koma í veg fyrir að hann geti unnið vinnuna sína.
M.ö.o. hann er gerður vanhæfur.
Þarna langar mig að staldra við því við tölum
oft svo fjálglega um hæfi og vanhæfi eins og það sé öllum auðþekkjanlegt og
auðvitað eigi bara að reka fólk ef það sinnir ekki vinnunni sinni. En hvað nú
ef svona er í pottinn búið? Það er
nefnilega ekkert erfitt að gera fólk vanhæft. Það er vissulega erfiðara fyrir
undirmann að gera yfirmann sinn vanhæfan en ef undirmennirnir flestir eða allir
taka sig saman þá er það ekkert svo ýkja erfitt. Þá hlýtur það að vera mun
auðveldara fyrir yfirmann að gera undirmann sinn vanhæfan.*
Nú ætla ég ekki að fabúlera upp einhver dæmi önnur en það sem nefnt er. En mér sýnist þetta vera hægðarleikur fyrir einhvern sem þannig er innréttaður. Nú eða ef það þarf að losa sig við óæskilegt fólk og/eða rýma til fyrir því rétta.
* People bullied at work recognize when they are being set up to fail. They are typically targeted because of their superior technical or social skills. Objectively they are not poor performers or failures. So, bullies engineer ways to sabotage and undermine the good worker. Then, when the outcome falls short, the target takes the blame. But the entire problem was manufactured by the bully.

fimmtudagur, júlí 19, 2012
Tannlæknaraunir - framhald
Fyrir ári síðan fyrir ég til tannlæknis eins og ég gerði ítarlega grein fyrir hér. Tönnin hefur verið tiltölulega í lagi síðan ég fór til hins tannlæknisins, ekki alveg 100% en tiltölulega í lagi. Ég ætlaði bara að bíða eftir að minn tannlæknir kæmi aftur en þá tekur hann upp á þeim óskunda að hætta! Lovely.Í júní tek ég eftir því að tannófetið er farið að verða viðkvæmt aftur. Þolir illa að fá á sig eitthvað hart. Brauð með korni og múslí er stórhættulegt. Svo ég ákveð að hringja í hinn tannlækninn og þá jafnvel að óska eftir að verða hans skjólstæðingur til frambúðar. Þá er hann farinn í frí í einhverjar 6 vikur. Fine.
Ég ákveð þá að venda mínu kvæði í kross og finna tannlækni á Akureyri. Hitti ég hann í gær. Jú, það er alveg ljóst að það er viðkvæmur blettur í tönninni. Hann heldur að það sé slit. (Okey?) En hann gæti þurft að taka upp alla fyllinguna þótt honum finnist það ólíklegt. Já, þakka þér fyrir.
Nú skulum við fara í gegnum þetta:
Ég er hjá tannlækni sem ég er ánægð með.
Fyrir ári síðan er hringt frá HANS stofu og mér boðinn tími hjá nema. Ég held í fávisku minni að þá hljóti tannlæknirinn minn að bera ábyrgð á nemanum.
Neminn klúðrar. Það er ekki hægt að kalla þetta neitt annað.
Það er í sjálfu sér allt í lagi svo framarlega sem það verður lagað. Nei. Neminn fer auðvitað aftur suður í skólann um haustið.
Nú myndi einhverjum detta í hug að tannlæknirinn minn myndi koma aftur úr fríi eða hvar sem hann var en nei. Hann lætur ekki sjá sig.
Þa´ fer ég til annars tannlæknis sem ber auðvitað ekki a´byrgð á hinum svo ég borga honum fyrir hans framlag, eðlilega. Hefði ég farið aftur til hans vegna þessarar viðgerðar þá hefði viðgerðin á viðgerðinni verið ókeypis. Þegar mig vantar viðgerð á viðgerðinni þá er hann kominn í sumarfrí. Í millitíðinni hættir minn tannlæknir.
Þegar ég er að vega kosti mína og meta þá geri ég mér grein fyrir því að með því að fara til tannlæknis á Akureyri þá verð ég að borga þriðja aðilanum fyrir viðgerð á sömu (djöf...) viðgerðinni. En ég ákveð að láta mig hafa það því í rauninni held ég að tannhálsinn sé enn ber og það sé ekki svo dýrt að laga það.
En nú er sá möguleiki kominn upp að kannski þurfi að taka upp alla fyllinguna. Hvað kostar það? Hver á að bera kostnaðinn af því?
Við hvern á ég að tala? Tannlæknadeildina? Tannlækninn minn, þann upphaflega? Hver ber ábyrgð á nemanum?
þriðjudagur, júlí 10, 2012
Tómatsósubrandarinn og strætóferðin eilífa
Best að ég klári þetta fyrst ég byrjaði á því.
Þegar ég var krakki, sennilega einhvers staðar á forgelgjunni, gekk brandari. Hann var einhvern veginn svona:
Tveir gamlir menn sitja saman á bekk. Þá sjá þeir álengdar þriðja manninn. -Er þetta ekki Jón? spyr annar. -Nei, þetta er Jón, svarar hinn. -Ó, mér sýndist þetta vera Jón segir þá hinn fyrri.
Brandarinn gekk sem sagt út á það að þeir væru orðnir heyrnarsljóir, ha,ha.
Svo gerist það eitt sinn heima að fjölskyldan sest að snæðingi og það vantar tómatsósu á borðið. Pabbi stendur upp til að sækja hana. Þá segir mamma: -Tómatsósan er í ísskápnum. Pabbi er eitthvað annars hugar eða hefur misheyrt og svarar: -Nei, tómatsósan er í ísskápnum. Þá fer eldri systir mín að hlæja og klykkir út minnug brandarans. -Ó, ég hélt að tómatsósan væri í ísskápnum.
Þetta fannst fjölskyldunni óskaplega fyndið.
Verandi það barn sem ég var þá áttaði ég mig greinilega ekki á að þetta var svona 'staður og stund' brandari og asnast til að segja frá þessu í skólanum. Asnalegasti brandari ever. Og hann var rifjaður upp. Aftur og aftur og aftur og aftur. Og einu sinni til. Jafnvel tvisvar. Árum ef ekki áratugum saman. Því saumaklúbburinn var starfræktur áfram eftir útskrift og óskiljanlegi brandarinn var reglulega rifjaður upp þar.
Ég var bráðþroska. Þegar ég var tólf ára þá var eitthvað vesen með strætó, sumir bílstjórarnir vildu rukka fullorðinsgjald en aðrir ekki. Ég hafði staðið í svona stappi nokkrum sinnum en það var alveg á hreinu að 12 ára áttu að borga barnafargjald. Í eitt skiptið er ég að taka strætó og bílstjórinn rukkar mig fullorðinsgjald. Ég segi honum að ég sé ekki nema tólf ára og enn þá í barnaskóla. Hét 6. bekkur þá. Það skipti engu máli, ég átti að borga fullorðinsgjald. Á næstu stoppistöð koma tvær bekkjarsystur mínar inn og þær borga barnafargjald. Ég var enn þá frekar reið eftir samskiptin svo ég fer fram í og segi honum að við séum bekkjarsystur og hvort þær eigi ekki að borga fullorðinsfargjald eins og ég. Minn tilgangur var sá að þær staðfestu að ég væri bara tólf ára. Það kemur eitthvað á blessaðan bílstjórann en til að vera sjálfum sér samkvæmur rukkar hann þær um fullorðinsgjald. Frekar óheppilegt, vissulega. Ég man ekki hversu fljótlega þær tóku þetta upp en það var tekið upp og ég útskýrði málið, að ég hélt og því væri þar með lokið. Nei. Þetta var eitt af því sem var tekið upp aftur og aftur og aftur....
Það liðu því miður nokkuð mörg ár þar til ég spyrnti við fótum og lét vita að mér þættu þessar eilífu upprifjanir alveg óskaplega leiðinlegar.
Eins og ég hef áður sagt frá þá varð ég fyrir einelti í grunnskóla. Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að það hefðu bara verið ákveðnir einstaklingar sem stóðu fyrir því. En ég er að átta mig á því núna að auðvitað var þetta hluti af eineltispakkanum þótt ómeðvitað hafi verið.
Því einelti viðgengst ekki í tómarúmi, það viðgengst þar sem það er viðurkennt.

Að klippa vængina af englunum
Það eru notaðar ýmsar aðferðir við uppeldi á börnum. Ein er að segja sögur og ævintýri sem fela í sér ákveðinn boðskap. Stundum eru ævintýrin mjög einföld og til þess ætluð að stöðva ákveðna hegðun.
Á mínu æskuheimili var sagt við okkur systurnar að ef við klipptum út í loftið með skærum þá værum við að klippa vængina af englunum. Ég man ekki nákvæmlega hvenær þetta var sagt við mig fyrst, ég man bara að ég var barn og mamma sagði þetta og við ræddum það eitthvað nánar mæðgurnar að það væru litlir englar allt í kringum okkur. Ég held ég fari rétt með að þetta komi frá ömmu minni. Svona ævintýri eitthvert sem oft fylgir fjölskyldum. Nú má vissulega ræða um hindurvitni og annað slíkt en auðvitað var þessu ætlað að stöðva óæskilega hegðun. Í sjálfu sér sé ég ekkert rangt við að nota fallega hugmynd til þess að stöðva hegðun. Nægar eru skammirnir.
Fyrir mér var þetta alveg skýrt; ég klippti ekki út í loftið með skærunum. Hins vegar varð mér það á seinna meir í handavinnutíma í skólanum að segja þetta þegar einhver var að klippa út í loftið. Bekkjarsystur mínar höfðu sjaldan eða aldrei heyrt neitt jafn hallærislegt. Þetta var rifjað upp reglulega og ég fékk að heyra árum saman. Þótti ógurlega fyndið.
Um daginn náði sonur minn í skæri og klippti út í loftið.
Ég veit hvað mig langar að segja.
Ég veit líka af hverju ég segi það ekki.

sunnudagur, júní 10, 2012
Bara að spá.
Eins og flestir sveitungar mínir vita þá var settir Starfshópur til að vinna að sameiningu skólanna. Starfshópurinn skilaði síðan af sér tillögu. Í greinargerð með tillögunni segir:
Starfshópurinn er einhuga um þessa tillögu í heild sinni, nema hvað varðar yfirfærslu starfsmanna í efstu stjórnunarlögum yfir til nýrrar stofnunar. Starfshópurinn vísar því til sveitarstjórnar að taka ákvörðun um hugsanlegar uppsagnir og ráðningar í efstu stjórnunarlögum þar sem einstaklingar innan starfshópsins eru vanhæfir til þeirrar ákvarðanatöku.
Ef ég skil þetta rétt, og mér gæti vissulega skjátlast þá á sveitarstjórn að taka ákvörðun um uppsagnir og ráðningar í efstu stjórnarlögum.
Sveitarstjórn tók málið fyrir á fundi og meirihlutinn ákvað eftirfarandi:
„Sveitarstjórn samþykkir það sem starfshópur leggur til og að engum starfsmanni verði sagt upp við sameiningu skólanna í eina stofnun. Samþykkt að vísa ákvörðun ásamt tillögu til skólaráða Hafralækjarskóla og Litlulaugaskóla til umsagnar.“
Ókey, þetta ætti að vera nokkuð ljóst. Það á ekki að segja neinum upp. Er það ekki nokkuð klárt?
Það næsta sem gerist er þetta. Þarna er verið að auglýsa störf sem eru setin. Það getur vel verið að það þurfi lögum samkvæmt að auglýsa stöðurnar en það hefur ekki verið gert hingað til, eða hvað? Ef einhver sækir um stöðu þá missir einhver vinnuna sína. Heitir það ekki uppsögn? Og þarna verður klárlega breyting í efsta stjórnunarlagi en sveitarstjórn hefur ekki tekið neina ákvörðun um slíkt.
Það getur vel verið að þetta sé sameiningunni óviðkomandi en ég er samt svolítið hissa.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Bréf til bankanna
Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...
-
Það er umræða núna í gangi um auglýsingar Kennarasambandsins og málflutning kennara, að við séum að væla og fara fram á samúð. Það fannst mj...