Látið ekki sakleysislegt útlitið blekkja!
Já, við fyrstu sýn virðist þetta ósköp eðlilegur köttur. En hún er það ekki!
Ég var hringd út um tvöleytið í dag því að þessi vargur, þessi glæpaköttur hafði ráðist á litlu, sætu kisustelpuna mína þar sem hún svaf í sakleysi sínu. Þær voru í fangbrögðum þegar litla systir sleit þær í sundur! Og litla, sæta kisustelpan mín var öll útklóruð með, ég er gjörsamlega miður mín, bitsár á bringunni. Svo það var brunað upp á Dýraspítala þar sem hún var sprautuð með pensilínsprautu. Það er ekki nóg með að verða fyrir svona svívirðulegu launsátri heldur þurfti hún að fara í bíl! Og fá sprautu! Á meðan skraðræðisgripurinn var heima og hrósaði sigri og þóttist aldeilis hafa tekist að hrekja keppinautinn að heiman.
Þegar við komum aftur heim og Snotra litla, fórnarlambið, faldi sig uppi í glugga og rétt gjóaði einu auga í genum rifu til að fylgjast með ofbeldisseggnum, þá lá Kolfinna í leyni fyrir Dúlla. Ég ætlaði að taka hana upp og ræða þessa hegðun
Ósköp er það aumt að þora ekki að koma fram undir nafni með blammeringar sínar á nafngreinda einstaklinga.
SvaraEyðaMaður á ekki að velta fyrir sér nafnlausum skít.
SvaraEyðaEn ég skil þig vel og satt að segja þá er þetta það versta sem kennararnir gátu gert. Samþykkt með naumum meirihluta (deja vu). Sama sagan og síðast.
Síðan eru kennarar gramir og fúlir og verða það næstu 4 árin og það springur svo með öðru verkfalli.
Þú hefur mína samúð.