Þá er Titlaballið búið. Fullt af titlum í boði og verðlaun. Ég fékk m.a.s. titil. Besti kennarinn. Það held ég nú. Var í öðru sæti í fyrra og var svo heppin að sá sem var í fyrsta sæti þá tók sér ársfrí. Steingrímur sagði reyndar:
Orður og titlar, úrelt þing-
eins og dæmin sanna-
notast oft sem uppfylling
í eyður verðleikann.
Það má vera en ég get ekki neitað að mér finnst þetta ekkert leiðinlegt.
Fékk kreditkortareikninginn í dag. Það var ekki gaman. Ekki mjög skynsamlegt greinilega að kaupa sér utanlandsferð og fara til tannlæknisins í sama mánuði.
Ég er tilbúin með kennsluefni morgundagsins. Ætla að kenna Etiquette.

og verður boðið upp á freyðivín, rauðvín og kampavín í tímanum? má ég koma ;-)
SvaraEyðaTil lukku með titilinn!
SvaraEyða