Látið ekki sakleysislegt útlitið blekkja!
Já, við fyrstu sýn virðist þetta ósköp eðlilegur köttur. En hún er það ekki!
Ég var hringd út um tvöleytið í dag því að þessi vargur, þessi glæpaköttur hafði ráðist á litlu, sætu kisustelpuna mína þar sem hún svaf í sakleysi sínu. Þær voru í fangbrögðum þegar litla systir sleit þær í sundur! Og litla, sæta kisustelpan mín var öll útklóruð með, ég er gjörsamlega miður mín, bitsár á bringunni. Svo það var brunað upp á Dýraspítala þar sem hún var sprautuð með pensilínsprautu. Það er ekki nóg með að verða fyrir svona svívirðulegu launsátri heldur þurfti hún að fara í bíl! Og fá sprautu! Á meðan skraðræðisgripurinn var heima og hrósaði sigri og þóttist aldeilis hafa tekist að hrekja keppinautinn að heiman.
Þegar við komum aftur heim og Snotra litla, fórnarlambið, faldi sig uppi í glugga og rétt gjóaði einu auga í genum rifu til að fylgjast með ofbeldisseggnum, þá lá Kolfinna í leyni fyrir Dúlla. Ég ætlaði að taka hana upp og ræða þessa hegðun
Hæ hæ Ásta, þetta er Hrund sem var í Fellaskóla í gamla daga:)
SvaraEyðaLangaði bara að kasta kveðju fyrst ég rambaði hingað inn og segja það sem ég átti alltaf eftir að gera þarna þegar ég útskrifaðist úr 10. bekk..
Bara að þú ert frábær, rosalega skemmtileg og ótrúlegt hvað þú náðir vel til krakkana (svona þegar við lærðum að koma til móts við þig á móti:) )
Gangi þér ofsalega vel í því sem þú ert að fara að gera í vetur og hafðu það gott!
kær kveðja Hrund
Þetta er mjög flott en setningin sést illa.
SvaraEyðaÞað er reyndar ágætt enda á enginn að lifa samkvæmt þessu. Það er enginn tilgangur með sumu, en öll reynsla hlýtur að enda með einhvers konar lærdómi.
Ég hugsa til þín, ég veit að þú átt erfitt, en vona innilega að þú látir þetta ekki buga þig.
Þetta kemur kannski hálfbjagað út en er vel meint. Það er alltaf svo skerandi ljóst að orð eru fánýt á svona stundum, en samt reynir maður.
Kær kveðja frá París.
Þakka ykkur báðum fyrir hlý orð og fallegar hugsanir:)
SvaraEyða