sunnudagur, ágúst 30, 2026
Bréf til bankanna
miðvikudagur, júlí 01, 2026
Kaffi á Ketilsbraut
Upp úr djúpi draumahallar
dansar skynjun vitundar.
Í eldhúsinu eitthvað kallar,
ókunnugur situr þar.
Við hans fætur Seifur sefur,
saklaust lítið kjánaprik.
Öldnu Dollý í höndum hefur
horfnum sjónum sælublik.
Engan lætur ótta finna,
ást og friður skín um loft.
Kæran vin þarf ekki' að kynna,
kallað höfum nafn hans oft.
Eins og hugsun heyri mína,
hlýlegt kemur bros á vör.
Sýnir hann mér hendi sína,
hræðilegt í lófa ör.
„Tómar mínar matarkistur.
Mötuneytis ghettó.
Má þér bjóða kaffi, Kristur,
kleinuhring úr Nettó?“
Undarlega feimna finn mig,
fundar okkar óverðug.
Því mín telur fremdin fá stig,
fé ég safna' af engum dug.
Kristur brosir kankvíslega:
„Kleinuhringur góður er.
Vegna tára þinna og trega
tyllti ég mér hér hjá þér.“
„Ég ber hvorki sorgir né sút,“
svara ég brött upp á lag.
Finn þá sáran hjarta í hnút,
harmsár minning um þann dag.
,,Áar hennar eftir líta,
óðal kallast Litli-Háls.
Sínum barnskóm búin að slíta,
Björg og Snati eru frjáls.
Reyndu núna' að njóta' og lifa,
Núið eina sem þú átt.“
Komið er í rökkrið rifa,
Rennur dagur fagur brátt.
Þegar yngri sonur minn var í fermingarfræðslu í vetur þá mættum við í Íhugunarmessu. Í messunni mælti séra Halla með að við lokuðum augunum og ímynduðum okkur að Jesús sæti við hliðina á okkur. Mér fannst þetta hugguleg tilhugsun og svo bankaði þessi hugmynd upp á. Ég lagði þetta frá mér á tímabili vegna ónefnds útlendings en hugmyndin var sífellt í kollinum.
miðvikudagur, apríl 22, 2026
Varðandi fána – Seinni hluti
Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur orðið stórkostlegt bakslag í kvenréttindabaráttunni. Hvar er fáninn fyrir kvenfrelsið? Hann sést hvergi. Það eru til einhverjir fánar en ekki neinn einn sameiginlegur eins og regnbogafáninn. Og nú verð ég að segja að þótt femínisminn hafi tekið LGBTQ+ undir verndarvæng sinn þá get ég ekki séð að LGBTQ+ hafi tekið kvenfrelsið undir sinn verndarvæng. Ég sé ekkert F (nema við séum partur af plúsnum) þannig að ég upplifi regnbogafánann ekki sem minn fána. Það er vissulega rétt að hinsegin börnum líður hvað verst í skólanum en stúlkum líður ekkert sérstaklega vel heldur.
Gervigreindin benti mér á þennan fána.
Fyrir nokkru kom
upp umræða um kynferðisofbeldi/-áreiti gagnvart stúlkum í framhaldsskólum. Hvar
er fáninn sem segir: „Við trúum brotaþolum“? Hann er náttúrulega ekki til en
það mætti alveg búa hann til.
Þá vantar líka fána
fyrir innflytjendur sem eru væntanlega ekki að upplifa sig neitt sérstaklega
velkomna með Útlendingastofnun á hælunum.
Kvenfrelsið stendur
hjarta mínu næst og mér finnst að það megi alveg beina athyglinni að því í
smástund. Það græða allir á því líka.
þriðjudagur, apríl 21, 2026
Varðandi fána – Fyrri hluti
Mig minnir að það hafi verið í borgarstjórnarkosningunum 2014 að Framsóknarflokkurinn dorgaði atkvæði í drullupotti múslimahaturs og náði tveimur fulltrúum inn í borgarstjórn. Þegar kosningum var lokið kannaðist Framsóknarflokkurinn ekkert við það að vera á móti mosku í Reykjavík. Ég ætla svo sem ekkert að halda því fram að ég vorkenni múslimahatandi kjósendum þessi svik en mér finnst rétt að fólk standi við orð sín og sé það sem það segist vera. En þetta var og er enn taktík þáverandi formanns Framsóknarflokksins og núverandi formanns Miðfloksins: Gefa í skyn, ýja að en ekki hafa neitt fast í hendi.
Nýverið „blöskraði“ varaformanni
Miðflokksins allir regnbogafánarnir út um allt og tjáði sig um það í stól
Alþingis. Í kjölfarið sendu fulltrúar flokksins á sveitarstjórnarstigi frá sér
yfirlýsingar sem si sona mótmæltu málflutningnum.
Mér skilst að fleiri hafi mótmælt
en viðurkenni að ég finn það ekki.
Þetta minnir mig á borgarstjórnartaktíkina.
Einn hendir einhverju fram, annar dregur úr. Allir kjósendur geta fundið
eitthvað við sitt hæfi en svo þarf ekki að standa við neitt.
En hver er stefna Miðflokksins í
hinseginmálum? Hún finnst undir flipanum Mannréttindi í stefnuskrá flokksins:
Mannréttindi
Miðflokkurinn telur að allir þegnar samfélagsins óháð
kyni, stöðu eða öðrum þáttum séu jafnir. Miðflokkurinn lítur á jafnrétti sem
mannréttindamál og hafnar því hvers konar mismunun.
Miðflokkurinn hafnar öfgafullri orðræðu um kyn og
kynvitund. Flokkurinn gerir engar athugasemdir við hvernig einstaklingar
upplifa sig en hafnar því að hugmyndir, tilfinningar, trú eða venjur þurfi að
breytast að þeirra kröfum og hvetur til að orðræðan snúist um hvernig þessir
einstaklingar fái lifað eðlilegu lífi í samfélaginu án þess að meirihluti
þjóðarinnar þurfi að kasta sinni trú, venjum, tilfinningum eða skoðunum.
Flokkurinn hafnar því að skólar og aðrar stofnanir
haldi að börnum áróðri um að þau geti orðið það „kyn“ sem þau kjósi. Hins vegar
ber að styðja við þau börn og foreldra þeirra glími þau við kynáttunarvanda.
Kynfræðsla verði eingöngu á forræði menntaðra kennara
eða heilbrigðisstarfsmanna eins og önnur fræðsla í skólum.
Er þetta ekki alveg skýrt? Nei? Nei,
þetta er nefnilega ekki skýrt. Þetta byrjar fallega „Allir jafnir.“ En svo er „öfgafullri
orðræðu“ hafnað. Hvað er öfgafull orðræða?
Það væri gott ef Miðflokkurinn
tæki af öll tvímæli um það hvar hann stendur í þessum málum. Núna virðist hann bara
vilja öll þau atkvæði sem hægt er fá og hikar ekki við að dorga þau upp úr gruggugum
vötnum.
föstudagur, september 27, 2024
Færsla Lögreglunnar á Norðurlandi eystra
Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhorfandi að þessu írafári öllu langar að benda á.
Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hefur tekið ákvörðun um að hætta rannsókn í máli er varðar meinta byrlun, afritun á upplýsingum af síma einstaklings og dreifingu á kynferðislegu myndefni. Brotið var tilkynnt lögreglu þann 14.05.2021.
Við rannsóknina fengu sjö einstaklingar réttarstöðu sakbornings. Sakarefnið var þrennskonar og beindust allir þættir að einum sakborningi en einn þáttur að öðrum sakborningum. Hér að neðan er gerð grein fyrir sakarefninu.
1. Líkamsárás, byrlun, 217. gr. eða 218. gr. almennra hegningarlaga. Einn aðili var undir rökstuddum grun um að hafa byrlað brotaþola lyf. Engin gögn í málinu gáfu lögreglu tilefni til að gruna aðra sakborninga um að hafa átt þátt í að byrla brotaþola. (feitletrun mín.)
2. Brot á 199. gr. a. almennra hegningarlaga. Í málinu liggur fyrir að sakborningur sem náði síma af brotaþola kveðst hafa afhent fjölmiðli símann þar sem síminn var afritaður. Sakborningur vissi þá að í símanum var kynferðisefni sem ólögmætt er að dreifa nema með samþykki. Sannað er að sakborningur sendi sjálfum sér kynferðislegt myndefni úr síma brotaþola. Ekkert liggur fyrir um að þeir aðilar sem meðhöndluðu símann og efni úr honum eftir að hann var afhentur fjölmiðlum hafi dreift þessu kynferðislega myndefni. (Feitletrun mín.)
3. Brot gegn 228. gr. og 229. gr. almennra hegningarlaga. Að því er varðar þennan kærulið beindist rannsóknin aðallega að því að upplýsa um hver hefði afritað innihald símans sem fenginn var með þeim hætti sem áður hefur verið lýst. Framburður sakbornings sem afhenti fjölmiðlum símann hefur verið stöðugur allan tímann sem rannsóknin hefur staðið um að hann hafi afhent fjölmiðlum símann og þar hafi síminn verið afritaður. Sakborningurinn hefur einnig verið stöðugur í framburði um að hafa upplýst þá sem tóku við símanum hvernig síminn væri til kominn og hver ætti símann. Í júlí síðastliðnum upplýsti sakborningur um að hafa afhent fréttamanni RÚV símann í húsnæði RÚV í Reykjavík. Sá hafi kallað til annan starfsmann RÚV sem tók við símanum og fór með hann til þriðja aðila sem hann gat ekki upplýst um hver hefði verið. Þessir starfsmenn RÚV hefðu verið með símann í sólarhring og sakborningur hefði komið daginn eftir á RÚV og fengið símann afhentan aftur.
XXV. kafli. Ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs.228. gr.
[Hver sem brýtur gegn friðhelgi einkalífs annars með því að hnýsast í, útbúa, afla, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heimildarleysi skjölum, gögnum, myndefni, upplýsingum eða sambærilegu efni um einkamálefni viðkomandi, hvort heldur sem er á stafrænu eða hliðrænu formi, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári, enda sé háttsemin til þess fallin að valda brotaþola tjóni.] 1)
Með hliðsjón af þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpi þessu sem og samspili 228. og 229. gr. almennra hegningarlaga telur nefndin æskilegt að einnig verði kveðið á um að ákvæði 3. gr. frumvarpsins eigi ekki við þegar háttsemin er réttlætanleg með vísan til almanna- eða einkahagsmuna. Er hér m.a. litið til þess að ákvæðið hamli ekki störfum og tjáningarfrelsi fjölmiðla, m.a. í þeim tilvikum þegar þeir fá aðgang að gögnum eða forritum sem hefur verið aflað í heimildarleysi og geti varðað almannahagsmuni. Hins vegar telur nefndin að um afmörkuð tilvik geti verið að ræða þegar um er að ræða einkahagsmuni og þurfi að meta heildstætt og túlka þröngt hvort refsileysisástæða eigi við í þeim tilvikum. Nefndin áréttar að XXV. kafli almennra hegningarlaga sætir nú endurskoðun. Telur nefndin rétt að þar til þeirri endurskoðun er lokið verði ákvæðin a.m.k. með þeim hætti sem lagt er til hér.
Niðurstöður rannsóknarinnar eins langt og hún nær eru helstar eftirtaldar:• Það liggur fyrir að einn sakborninga játaði* að hafa sett lyf út í áfengi sem hann færði brotaþola og hann drakk. Nokkrum klukkustundum síðar veiktist brotaþoli alvarlega. Ekki hefur tekist að sanna orsakasamband á milli byrlunar á lyfjum og veikinda brotaþola með óyggjandi hætti. Lögreglustjóraembættið á Norðurlandi eystra telur háttsemina varða við 217. gr. almennra hegningarlaga. Að því gefnu að brotið eigi aðeins undir 217. gr. gæti brotið verið fyrnt sem dómstólar hafa þó endanlegt mat á. Ef hægt væri að sanna orsakatengsl milli byrlunar og veikinda brotaþola er ekki líklegt að ákæruvaldinu tækist að sanna ásetning sakbornings til að valda brotaþola þeim skaða sem hann varð fyrir. Þá er vísað til andlegs ástands sakbornings á verknaðarstundu og eftirfarandi veikindi hans.** Af framangreindum ástæðum hefur verið ákveðið að hætta rannsókn á þessu sakarefni í málinu.
* Samt liggur bara fyrir rökstuddur grunur. Hér fer ekki saman hljóð og mynd.
** Mér finnst það þyngra en tárum taki að þessi vesalings kona fái ekki að hafa veikindi sín í friði. Og það voru ekki blaðamenn sem báru þau á torg.
• Lögreglustjóraembættið á Norðurlandi eystra telur sakarefnið um að dreifa kynferðislegu myndefni af brotaþola sé líklegt til sakfellis á hendur einum sakborningi. Brotið felst í því að sakborningur sendi sjálfum sér kynferðislegt myndefni af eiginmanni sínum úr síma hans. Vegna veikinda sakbornings leikur vafi á um hvort hann hafi verið sakhæfur á verknaðarstundu. Sakborningur hefur hafnað beiðni um að undirgangast sakhæfismat og því hefur verið ákveðið að hætta rannsókn á þessum þætti málsins.
• Sakarefni samkvæmt 228. og 229. gr. alm. hgl. lýtur að brotum á friðhelgi einkalífs meðal annars með því að hnýsast í, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heimildarleysi skjölum, gögnum, myndefni, upplýsingum eða sambærilegu efni um einkamálefni viðkomandi. Þar er afstaða Lögreglustjóraembættisins á Norðurlandi eystra að allir sakborningar í málinu gætu hafa sýnt af sér atferli sem getur flokkast undir brot á framangreindum ákvæðum. Sérstakar aðstæður sem varða einkahagsmuni eða almannahagsmuni geta gert framangreinda háttsemi refsilausa...
Bíð spennt, alveg spennt eftir öllum færslunum sem eiga eftir að koma eftir þetta fordæmi: "Sko, við gátum ekki sannað að Nonni hefði dreift nektarmyndum af Stínu en við erum alveg viss um að hann hefði getað gert það."
...Augljósar refsileysisástæður gætu almennt verið þær að aðili hafi verið að skipuleggja glæp eða játa á sig alvarlegan verknað í einkagögnum en endanlegt mat um slíkt liggur hjá dómstólum. Rannsóknin beindist hins vegar aðallega að því að reyna að upplýsa hverjir afrituðu símann, hvar og hvernig það var gert. Það liggur fyrir að birtar voru fréttir upp úr einkagögnum af símtækinu s.s. tölvupóstum, skjölum og spjallþráðum spjallforrita.
• Það er mat Lögreglustjóraembættisins á Norðurlandi eystra að ekki hafi tekist að sanna hver afritaði símann, hvernig og hver afhenti öðrum upplýsingar um einkamálefni brotaþola. Þeir sem birtu fréttir upp úr gögnum símans fengu réttarstöðu sakbornings auk þeirra sem sannað er að höfðu verið í samskiptum við þann sakborning sem afhenti símann til fjölmiðla. Sakborningar sem störfuðu hjá fjölmiðlum neituðu að tjá sig hjá lögreglu og afhentu lögreglu engin gögn. Það er réttur þeirra sem hafa fengið stöðu sakbornings.* Lögregla óskaði ekki eftir því við sakborninga að þeir upplýstu um heimildarmenn sína enda lá það fyrir frá upphafi rannsóknar hver heimildarmaðurinn var í máli þessu.
• Það er miður hve langan tíma rannsóknin tók en gildar skýringar eru á því. Rannsóknin var engu að síður samfelld. Veikindi eins sakbornings höfðu mikil áhrif á gang rannsóknarinnar sem og ágreiningur við sakborninga sem töldu sig ekki bera sömu skyldu og aðrir til að gefa skýrslu hjá lögreglu vegna stöðu sinnar sem blaðamenn.* Fjallað var um málið á þremur dómsstigum, auk þess sem gerðar voru vanhæfiskröfur á starfsmenn embættisins sem fjallað var um á tveimur dómsstigum og töfðu þessi málaferli rannsókn málsins mikið. Málið féll ekki undir forgangsmál í samræmi við almenn fyrirmæli ríkissaksóknara auk þess sem önnur atriði höfðu áhrif á rannsóknartímann. Ekki tókst að afla fullnægjandi stafrænna gagna þar sem þeim hafði verið eytt og réttarbeiðnir sem sendar voru erlendum tölvuþjónustu fyrirtækjum hafa enn ekki skilað árangri. Það liggur fyrir að ekki hefur tekist að sanna hver afritaði upplýsingar af síma í einkaeigu og með hvaða hætti þrátt fyrir að vísbendingar séu uppi um það. Af þessum sökum sem og vegna sjónarmiða um fyrningu hefur embættið ákveðið að hætta rannsókn í þessu máli gegn öllum sakborningum.
Embættinu er skylt samkvæmt sakamálalögum að taka til rannsóknar mál þar sem grunur er um refsiverða háttsemi óháð því hver það er sem tilkynnir brot eða er sakaður um brot. Embættið telur það hafa uppfyllt skyldur sínar. Aðilum máls hefur verið tilkynnt um málalok.Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra veitir ekki frekari upplýsingar um málið.
föstudagur, september 06, 2024
Haustmyrkrið
Þegar húmar haustið að
hugur tapar áttum.
Rúm og tími ráfa um
ryðst úr öllum gáttum.
Gamlir skuggar skríða fram
skaka kvísl og kyndlum.
Glámskyggn greina þykist þó
glóð í Churchill vindlum.
Reykfyllt stofa rís nú upp
á radar sýna minna.
Dáin von og drukkið fólk
drauma hvergi finna.
“Löngu liðið” hvísla ég
læðist fram úr vöknuð.
Finn í hjarta ást og eymd,
undarlegan söknuð.
laugardagur, ágúst 31, 2024
Meinlausu morðingjarnir
Eins og flesta rekur minni til þá gekk Covid 19 yfir heimsbyggðina fyrir nokkrum árum. Covid 19 er það sem í sögulegu samhengi er yfirleitt kallað plága. Þegar við skoðum söguna þá sjáum við að þegar plágur ganga yfir heimsbyggðina þá verður mikið mannfall. Því miður varð mannfall í þessari plágu eins og öðrum en mun minna en möguleiki var á. Það getum við þakkað vísindum og vísindafólki sem og ábyrgum stjórnvöldum í flestum löndum.
Vísindafólk er ekki
skyggnt, það hefur ekki forspárgáfu. Það metur aðstæður og upplýsingar hverju
sinni og leggur til aðgerðir byggðar á þeim upplýsingum sem liggja fyrir.
Stjórnvöld fá þessar tillögur í hendur og ákveða svo framhaldið. Mig minnir
mjög ákveðið að stjórnvöld hér á Íslandi ekki alltaf farið að fullu eftir
tillögum vísindafólks en að miklu leyti.
Auðvitað voru þetta mjög íþyngjandi aðgerðir. Frelsi okkar var heft. Auðvitað eru skiptar skoðanir á því hvernig á að bregðast við hverju sinni og það er eðlilegt. Það er eðlilegt að stjórnvöldum sé sýnt aðhald og þau gagnrýnd. Þannig á það að vera. En gagnrýnin verður að vera rökstudd og skynsamleg. Og það voru margir sem komu fram með slíka gagnrýni.
Það hins vegar að WHO sé að eitra fyrir
mannkyninu eða það sé verið að sprauta örflögum í fólk til að njósna um það er hvorki
rökstudd né skynsamleg gagnrýni. Ég eins og svo margir fleiri væntanlega sat
heima hjá mér með yfirlætisfullt vorkunnarbros á vörum og hugsaði: „Aumingja
fólkið.“ En þegar ungur, fílhraustur karlmaður sagði okkur, ginningarfíflunum,
að hann neitaði að vera með grímu því að hann væri jú ekki veikur þá fóru að
renna á mig tvær grímur. Það að hann sé ekki veikur þýðir ekki að hann sé ekki
að bera með sér smit. Við erum ekki öll
hraustir, ungir karlmenn og hann getur smitað okkur. Sum okkar voru í
krabbameinslyfjameðferð á meðan þessu stóð og hefðum illa þolað smit.
Mér var heldur ekki
skemmt þegar barnshafandi konur voru boðaðar í bólusetningu og mótmælandi bólusetninga
mætti og öskraði á þær að þær væru að „drepa börnin sín.“ Ég veit það alveg að þessar verðandi mæður
voru búnar að velta því mikið fyrir sér hvort þær ættu að þiggja bólusetningu eða ekki og hvaða áhrif hún hefði á börnin. Mér finnst þetta svo ljót framkoma ég á
eiginlega ekki til orð yfir hana.
Svo líður tíminn og
hann sýnir fram á að kannski voru sumar aðhaldsaðgerðirnar óþarflega strangar.
Það er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á. Ég efast alla vega ekki um að
þríeykið okkar og stjórnvöld hafi gert sitt besta með þær upplýsingar og
vitneskju sem lá fyrir hverju sinni.
Svo byrjaði að
gjósa og fólk var flutt af skjálftasvæðum. Mikið af andstæðingum bólusetninga
birtust þá og gagnrýndu aðgerðir stjórnvalda. Vísindamenn vissu ekkert hvað
þeir voru að gera. Þá hugsaði ég: „A-ha! Þetta er menntunarandúð.“ Svo átti sér stað hræðilegt slys, maður féll
niður um sprungu og lést. Ég get ekki
ímyndað mér skelfinguna og rekist ættingjar hér inn þá samhryggist ég og biðst
afsökunar á að vera að tala um þetta. Á þeim tímapunkti fannst mér ljóst að
vísindamenn hefðu svo sannarlega rétt fyrir sér og eina leiðin að hlýða þeim.
Samt hélt, og nú ætla ég að nota hið fordómafulla hugtak „þetta fólk“ áfram að
gjamma á samfélagsmiðlum um forræðishyggju stjórnvalda og vitleysi
vísindamanna. Ég sat heima hjá mér fyrir framan skjáinn, dolfallin. Það er
ljótt að segja það en ég ætla að segja það samt: Ég er komin á þá skoðun að „þetta
fólk“ er ekki einhver meinleysisgrey sem vita ekki betur. Þetta er vont fólk
sem vill öðrum illt. Það vill að fólk veikist og deyi. Það vill að fólk sé inni
í brennandi húsum, það vill að fólk falli niður um sprungur. Undir yfirskyni
góðmennsku og frelsisástar vill það glundroða og þjáningar
Ég er hætt að
burtskýra þessa hegðun sem einfeldni, heimsku eða menntunarandúð. Þetta er
illmennska.
sunnudagur, júlí 21, 2024
Vald ofbeldisins
Það er kona sem ég þekki, þetta er ekki flökkusaga ég þekki konuna og hef þetta frá fyrstu hendi. Það er sem sagt kona sem ég þekki sem var í sambandi með manni. Það eru sennilega komin ein tuttugu ár síðan þetta var. Sambandið gekk hraðar en konan raunverulega vildi en þau voru farin að búa saman stuttu eftir að sambandið hófst. Eftir það fór sambandið hratt niður á við og endaði með því að maðurinn lagði hendur á konuna. Sem betur fer var sambandið ekki langt, engin börn og engar fjárskuldbindingar sameiginlegar svo konan rak manninn á dyr. Hins vegar áttu þau flugmiða sem höfðu verið greiddir með kreditkorti konunnar. Skyndilega fær hún aukarukkun fyrir breytingu á flugmiðanum hans. Minnir að þetta hafi verið svolítil upphæð á þessum tíma. Að sjálfsögðu mátti ekki færa aukagjald á hennar kreditkort án hennar samþykkis. Konan hringir í flugfélagið og fær að tala við afgreiðslukonuna sem hafði samþykkt breytinguna. Ég veit ekki hvernig samtalið var nákvæmlega en mig grunar að konan hafi ekki verið ánægð. Það endar með því að afgreiðslukonan segir: "Það var miklu þægilegra að tala við hann." Því miður gerist það oft að fólk er slegið út af laginu þegar það fær svona ótrúlegt bull framan í sig en sem betur fer gerðist það ekki í þetta skiptið. Konan svaraði að bragði: "Já, auðvitað var hann miklu þægilegri. Hann var að fá þig til að fremja lögbrot á minn kostnað."
Þó nokkrum árum seinna var þessi maður til umfjöllunar í fjölmiðlum vegna ofbeldismála.
Það var miklu þægilegra að tala við hann.
Þegar fólk verður fyrir ofbeldi þá fer það í uppnám. Oft missir það öryggistilfinninguna sem það hafði og býr við stöðugan ótta. Fólk sem verður fyrir langvarandi ofbeldi endar í svokölluðu "survival mode". Það er alltaf viðbúið árás og er bara að reyna að lifa af. Ofbeldimaðurinn stjórnar atburðarásinni algjörlega. Hann veit hvenær hann ætlar að vera með djöfulgang, hann veit hvað hann ætlar að gera, hvar, hvenær og hvernig. Hann veit að hann ætlar að vera til friðs í nótt og getur því sofið sallarólegur. Fórnarlambið veit ekkert af þessu. Það veit ekkert við hverju má búast, hvar, hvenær eða hvernig og er því alltaf á nálum. Skiljanlega yfirtekur ofbeldið líf fórnarlambsins, það getur um lítið annað hugsað og talar um lítið annað. Það er algjörlega tætt og í stöðugu uppnámi.
Við vitum það öll að manneskja sem er í stöðugu uppnámi og er algjörlega tætt á sálinni er oft sögð "klikkuð" og þ.a.l. ómarktæk. Hugsið ykkur hvað þetta er gott fyrir ofbeldismanninn. Einstaklingur sem sýnir fullkomlega eðlileg viðbrögð við ofbeldi er dæmdur ómarktækur vegna þessara sömu viðbragða! En ofbeldismaðurinn sem er ekki tættur á sálinni og í uppnámi er svo rólegur og yfirvegaður.
Það er svo miklu þægilegra að tala við hann. Svo miklu þægilegra að trúa honum.
miðvikudagur, júlí 17, 2024
Heilaga vandlætingin
Fyrir nokkrum árum síðan setti ég fyrirspurn inn á Turn-it-in grúppu á Facebook. Turn-it-in er forrit sem við kennarar notum til að sjá hversu mikið nemendur nota af vefnum eða verkefnum annarra nemenda í sínum verkefnum. Þetta var fyrir tíð opinnar gervigreindar. Fyrirspurnin snerist um hvort ég gæti stillt forritið þannig að það tæki ekki við verkefnum sem færu yfir 30% í líkindum (sem sagt að meira en 30% kæmu frá öðrum en nemandanum sjálfum). Þetta var í rauninni já eða nei spurning með rökstuðningi. Já, það er hægt og er gert svona... Nei, það er ekki hægt og ég veit það af því að...
Fljótlega fékk ég "svar" frá manni. Hann hafði enga hugmynd um hvort þetta væri hægt, hins vegar vildi hann fá að vita af hverju ég vildi geta gert þetta. Honum fannst líka 30% frekar lítið svigrúm. Allt í lagi, honum má vissulega finnast það, ég var bara ekki að biðja um hans skoðun á þessu. Þetta var 100% tæknileg spurning ekki heimspekileg. Ég man ekki hvort ég svaraði þessu en ég man að þetta fór í taugarnar á mér. Hélt maðurinn virkilega að mér hefði allt í einu dottið þetta í hug bara si sona? Ég hafði að sjálfsögðu velt þessu fyrir mér og það var að sjálfsögðu ástæða fyrir því að ég vildi geta gert þetta.
Þetta er mjög algengt á samfélagsmiðlum (skal viðurkennt að ég nota aðallega Facebook). Fólk er að spyrja um eitthvað eða velta einhverju upp og fyrr en varir er fullkomna og heilaga fólkið mætt: "Ég myndi sko aldrei..."
föstudagur, júlí 12, 2024
Heimsókn í Reykjavíkurhrepp
Nýverið fórum við
yngri sonurinn til Reykjavíkur þar sem hann fór á námskeið. Ég er að undirbúa
hann fyrir forsetaframboð, ég ætla mér að verða skyld forseta! Námskeiðið var í
Ármúlanum þannig að við fengum að gista hjá ættingjum nálægt Laugardalnum.
Þegar allt þetta var skipulagt þá stóð ég í þeirri meiningu að bakverkurinn
yrði á undanhaldi á þessum tímapunkti og við mæðginin gætum bara gengið þennan
spöl. Svo fór nú ekki, bakverkurinn versnaði heldur og ég var nánast ógöngufær.
Þar sem við voru bíllaus í borginni þá voru góð ráð dýr. Ég ýki aðeins, við eigum góða að og okkur var
oft skutlað.
Samgöngur.
Engu að síður þá var
fólk í vinnu svo stundum þurftum við að redda okkur sjálf. Nú finnst mér nákvæmlega
ekkert að því að nota strætó svo ég kveikti á Klappinu og lagði af stað. Þegar
ég var í Reykjavík þá kostaði eitt far fyrir fullorðinn 630 kr. og ungmenni 315
kr. Ég sé að það hefur hækkað síðan upp í 650 kr. fyrir fullorðna og 325 kr. fyrir
ungmenni, fannst mér nú nóg um samt. Miðinn gildir í rúman klukkutíma svo það
er hægt að komast ansi langt og skipta um vagn. Það breytir því ekki að mér
finnst verðið hátt. Auðvitað er hægt að kaupa mánaðarkort og árskort en það
þjónaði litlum tilgangi fyrir vikudvöl.
Þótt ég sé
þokkalega tæknilæs þá er ég samt komin á sextugsaldur og ég átti stundum erfitt
með að skilja (kl)appið. Við ætluðum í eitt skipti í Kringluna og skv. appinu áttum
við að skipta um vagn á Skeggjagötu. Ég veit alveg sirka hvar Skeggjagata er,
hins vegar kom aldrei upp á skjánum stoppistöðin Skeggjagata sem varð til þess
að við fórum fram hjá. Við enduðum á endastöðinni þar sem okkur var skipað út.
Þegar ég spurði vagnstjórann hvar við gætum náð í vagn í Kringluna þá hafði
hann enga hugmynd um það og nánast skipaði okkur út. Ég man þá tíð þegar
vagnstjórar í Reykjavík þekktu leiðarkerfið eins og handarbakið á sér. Því er
ekki að heilsa lengur greinilega. O tempora, o mores!
Við komumst nú samt
í Kringluna. Þegar við ætluðum heim þá vildi drengurinn endilega prófa Hopp
hjól svo mamman lét sig hafa það að fara á eitt slíkt. Þá komst ég að því að
lengri ferðir eru dýrari á hopp hjólum en strætó. Styttri ferðir eru ódýrari. Orðin
klár á apparatið þá notaði ég Hopp hjólin stundum eftir þetta. Eins og áður
sagði þá eru styttri ferðir ódýrari og þetta er nokkuð þægilegur ferðamáti. Fyrir
utan holurnar á gangstéttum og vegum. Það þarf að fara varlega.
Nú er það augljóst
að Reykjavík er að reyna að gera einkabílnum örðugt fyrir. Endalausar
þrengingar á götum og lítið um stæði. Það er allt í lagi ef það kemur
eitthvað í staðinn. Því er ekki að heilsa. Strætó gengur með löngu
millibili og er frekar dýr. Það þarf alltaf að ganga einhvern spotta. Mín
persónulega skoðun; fjölga ferðum og lækka verðið, jafnvel hafa ókeypis.
Unglingarnir.
Eitt kvöldið fórum
við drengurinn á leikvöllinn við Langholtsskóla. Það var fallegt veður og
talsvert mikið af unglingum og börnum. Núna er ég komin á þann aldur að ég er
orðin hrædd við unglinga svo ég var nú kannski ekkert yfir mig hrifin. En þarna
söfnuðust þeir saman, sumir á vespum og
sumir veipandi Einhverjir piltar fundu svo leikfangabyssu sem einhver hafði
skilið eftir/gleymt/týnt og dunduðu sér í talsverðan tíma til að slátra
leikfangabyssunni. Þetta var eitthvað rafmagnsvætt og þeir hættu ekki fyrr en
mekkanóið var komið í tætlur og og batteríin út og suður. Ég sagði auðvitað
ekki neitt enda hrædd við unglinga en ég hneykslaðist óskaplega í hljóði.
![]() |
| Ég laumaðist líka til að taka mynd. |
Seinna keyrðum við systir mín fram hjá Unglingavinnunni þar sem mökkur af unglingum í gulum vestum potuðu í beð. Seinna um kvöldið keyrðum við aftur fram hjá beðinu og ég gat ekki séð að arfinn hefði eitthvað minnkað. Systur minni finnst þetta sætt, alveg eins og Hildi Eir.
Ég
er ekki alveg þar…
Heimsending.
Þar sem ég er þarna
ein heima einn daginn þá ákveð ég að prófa heimsendingu úr apóteki. Ég er ánægð
með þetta; ég get sent inn lyfjaendurnýjunarbeiðni í Heilsuveru, svo get ég
farið í Lyfjuappið og valið það sem mig vantar. Þegar ég er heima á Húsavík þá
get ég sótt það í apótekið sjálft en þarna í Reykjavíkurhreppi er hægt að fá
sent heim líka! Þvílíku dásemdar þægindin. Reyndar tímasetti ég þetta ekki rétt
og missti því af sendlinum en samt, þetta er hægt😊
Bíó.
Eitt kvöldið ákváðum við forsetaefnið að skella okkur í bíó og sjá Inside Out 2. Höfum það í huga að þetta er teiknimynd en vissulega fórum við að kvöldi til og á sýningu með ensku tali. Nú það er við manninn mælt að þarna mætir slæðingur af unglingum. Um miðja mynd tekur stúlkan sem situr skáhalt fyrir framan mig upp símann sinn! Hann lýsist auðvitað upp og truflar mig í bíó, ég borgaði mig inn! Og hvað er stúlkan að skoða? Neyðarskilaboð frá móður sinni? Nei. Hún er að skoða myndir af annarri stúlku. Og af því að síminn blastaði þarna upp nánast fyrir framan mig þá sá ég að þetta var svona upptillimynd með duckface svipnum. Ókey, ég get sagt ýmislegt um stöðu ungra stúlkna í heiminum, hún er ekki góð, og þær ómanneskjulegu kröfur sem til þeirra eru gerðar en, og þetta er mjög meiningarfullt en, það má alveg bíða með að skoða og læka þessar myndir sem svarar til einnar bíómyndar.
Það er erfitt að vera unglingur, ég veit það.
fimmtudagur, júní 06, 2024
Nokkrar færslur um framboð.
Ég birti hér nokkrar færslur af Facebook, lítillega uppfærðar.
I. Framboðið sjálft.
Af því að fólk hefur verið að lýsa undrun sinni á þeirri rosalegu frekju og tilætlunarsemi Katrínar Jakobsdóttur að ætla sér að fara beint úr stól forsætisráðherra í forsetastólinn þá finn ég mig til knúna að leggja orð í belg.
Katrín talaði um það opinberlega að hún hafi verið búin að ákveða að hætta
í stjórnmálum fyrir næsta kjörtímabil. Kannski talaði hún ekki um það
opinberlega fyrr en í forsetaframboðinu en og nú ætla ég bara að segja það
beint því það mun koma fram, við erum frænkur og hún var búin að tala um þetta
við sína nánustu. Þannig að nei, ég er ekki hlutlaus. Ég veit alveg nákvæmlega hvaðan Katrín
kemur.
Katrín sagði líka opinberlega að hún hefði hvatt Guðna Th. til að sitja
eitt kjörtímabil til. Það hefði nefnilega verið fullkomin tímasetning. Katrín
hefði hætt fyrir næstu þingkosningar sem eru 2025. Þá hefði hún haft þrjú ár
til hvíldar og stjórnmálaöldurnar hefði lægt og hún hefði getað boðið sig fram
til forseta 2028, 52 ára gömul. Þetta hefði verið fullkomið og með hreinum
ólíkindum að Katrín hin alvalda eða skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins og við í
„sóða-„ og „dauðasveitunum“ gátum ekki þvingað Guðna Th. til að sitja lengur.
En Guðni fékk bara alveg að ráða ráðum sínum sjálfur og ákvað að hætta.
Hvað átti Katrín að gera í þeirri stöðu? Og ég ætla ekki að taka undir
karlrembulegar fullyrðingar um valdasýki. Né heldur að forsætisráðherra megi
ekki bjóða sig fram. Allar fullyrðingar um slíkt eru rangar eins og þjóðhetjan
sjálf Ólafur Ragnar Grímsson kom
inn á í kosningasjónvarpinu.
Sumir segja að Katrín hefði átt að bíða. Setjum þá sviðsmynd upp: Halla
Tómasdóttir hefði verið kosin. Halla er 56 ára á þessu ári, hún getur vel setið
næstu 12 ár, jafnvel lengur. Átti Katrín að bíða í 12, 16 eða 20 ár? Eftir 20
ár er Katrín orðin 68 ára. Ef Katrín hefði ekki verið í framboði í þetta skipti
og fólk ekki ,,neyðst" til að kjósa taktískt þá hefði Halla Hrund getað
unnið. Halla Hrund er 43 ára. Auðveld 20 ár þar.
Þá hefur verið gagnrýnt að hún hafi ekki sagt strax af sér eftir ávarp Guðna
Th. og hafið forsetaframboðið. Tilkynning Guðna kom öllum á óvart og þá átti
Katrín eftir að hugsa málið og ræða það við fjölskylduna sína. Þá var
lokafrestur til að bjóða sig fram klukkan 12:00 þann 26.
apríl. Katrín var búin að tilkynna
framboð sitt vel innan þess ramma.
Katrín hefði getað boðið sig fram gegn sitjandi forseta eftir 4 ár. Er
það samt? Hvernig hefði það litið út? Það er hefð fyrir því að sitjandi forseti
sitji eins lengi og hann vill. Ástþór hefur að vísu neitað að samþykkja þá hefð
en sitjandi forseta hefur aldrei verið skákað.
Mér finnst það alveg augljóst að fyrst Katrín vildi láta á þetta reyna
þá var tíminn núna. Persónulega hefði ég viljað hafa hana áfram í stjórnmálunum
en ég virði það að hún sé orðin þreytt.
II. Orðræðan
(Vinsamlegast athugið! Í þessari færslu er beitt kaldhæðni. Fyrir þau
sem ekki vita hvað það er má sjá útskýringu hér.)
Eitt af því sem gekk linnulítið um netheima og gerir enn er sú
fullyrðing að Katrín Jakobsdóttir hefði látið „gabba sig“ til að gefa eftir
forsætisráðherrastólinn og fara í framboð til forseta. Af því að henni hefði
verið „lofaður“ forsetastóllinn.
Ah, gamla, góða kvenfyrirlitningin aftur og enn.
Svona orðræða hefur linnulítið verið í gangi frá því að Katrín kom fram á sjónarsviðið. Iðulega kölluð „Kata litla“ sem er að sjálfsögðu til þess ætlað að gera lítið úr henni. Fyrst í stað var talað um að Steingrímur J. stjórnaði henni á bak við tjöldin og nú í seinni tíð að Bjarni Ben stjórnaði.
Af því að auðvitað getur kona ekki stjórnað sér sjálf, hvað þá öðrum. (Fyrir utan þegar hún er alvalda og stjórnar t.d. allri fjölmiðlaumræðu.)
Katrín hefur verið í stjórnmálum í meira en tuttugu ár. Hún hefur setið
á Alþingi í sautján ár, var menntamálaráðherra i fjögur ár og forsætisráðherra
sl. sjö ár. Varaformaður VG í tíu ár og formaður sl. ellefu ár. Auðvitað, auðvitað,
veit þessi kona nákvæmlega ekkert um það hvernig lýðræðið virkar. Auðvitað
gleypir hún það bara hrátt þegar henni er „lofaður“ forsetastóllinn af því
auðvitað ber hún ekkert skynbragð á það að fyrst þurfi að fara fram kosningar.
Á sl. tuttugu árum hafa nefnilega bara farið fram sex Alþingiskosningar þar sem
VG hefur gengið misvel.
Og af því að hún er bara svona lítil kona þá getur Bjarni Ben auðvitað, auðvitað,
bara gabbað hana og snúið í hringi alveg eins og honum hentar.
En stundum er líka talað um það hvað hún er vel menntuð, og tilheyrir þá
einhverri neikvæðri elítu. Það náttúrulega ber Háskóla Íslands ekki gott vitni
að svona rosalega einföld og vitlaus kona skuli fara svona auðveldlega í gegnum
hann.
Nei, Katrín Jakobsdóttir tekur sínar ákvarðanir sjálf. Hún er bæði vel
menntuð og vel gefin og veit að sjálfsögðu hvernig lýðræðið virkar á Íslandi.
PS.
Ég vona að ég sé ekki að „hijacka“ einhverjum orðum úr femínismanum í
færslu um þessa voðalegu konu sem EKKERT, nákvæmlega EKKERT hefur gert fyrir
konur á Íslandi. Eða þannig.
Guði sé lof að þessi framúrskarandi femínisti vann!
III. Orð
Núna langar mig að tala um fyrirbærið -orð-.
Í forsetaþætti Heimildarinnar sagði Baldur Þórhallsson að haft hefði
verið samband við „okkur“ úr „herbúðum Katrínar“ og hann beðinn um, jafnvel
þrýst á hann að draga framboð sitt til baka.
Ég vil taka það strax fram að ég mun ekki væna Baldur um lygar. Hefði
Katrín ekki boðið sig fram þá hefði ég verið í miklum vandræðum með atkvæðið
mitt því mig langaði að fá konu í embættið en mig langaði líka mjög mikið að
kjósa Baldur.
Það hefur aldrei komið skýrt fram hvaða mengi þetta „okkur“ spannar og
því síður hugtakið „herbúðir Katrínar.“ Það er kannski vert að taka fram að
Katrín varð undrandi á þessum fréttum og ekki var hún leikkonan í hópnum.
Baldur sagði sem sagt ekki í þættinum að það hefði verið talað við hann
beint. Það var talað við „okkur.“ Það má því leiða að því líkum að einhver í
„herbúðum Katrínar“ hafi talað við einhvern í „herbúðum“ hans.
Við tökum eftir að hann talar ekki um „kosningateymi“ né
„kosningastjóra“. „Herbúðir“ er ansi vítt hugtak. Ég ætla að leyfa mér að halda
því fram að „herbúðir“ spanni ekki bara kosningastjóra og kosningateymi heldur
einnig dygga stuðningsmenn. Ég var yfirlýstur stuðningsmaður Katrínar og hef
því þá væntanlega verið í hennar „herbúðum“. Mér er það bæði ljúft og skylt að
taka það fram að ég hafði ekki samband við „herbúðir“ Baldurs og fór fram á að
hann drægi framboð sitt til baka.
Reyndar sýndist mér að honum fyndist meira úr þessu gert en var ætlun
hans. Mér gæti skjátlast.
Það var seinna gengið á Baldur og hann beðinn um nöfn og þá sagði hann
að þetta hefði verið einkasamtal og ekki eðlilegt að nefna nöfn. Hann hefði
verið að ræða þetta „almennt.“ Það má spyrja hversu eðlilegt það sé að varpa
fram ásökunum byggðum á einkasamtölum opinberlega. Ég held nefnilega að Baldur
hafi hlaupið á sig þarna og var svo að reyna að draga í land.
Það getur alveg verið að einhver úr „herbúðum Katrínar“ , ekki samt ég,
hafi haft samband við einhvern í „herbúðum Baldurs“ og lagt það til að Baldur
hætti við framboðið. Kannski var það í einkasamtali yfir kaffibolla eða jafnvel
inni á bar. En þetta var enginn þungavigtaraðili í kosningateymi Katrínar.
Sú fullyrðing hefur verið sett fram að Baldur hafi sagt hinum frambjóðendunum
hver þetta var. Sé það rétt og hafi þetta verið einhver þungavigtaraðili í
„herbúðum Katrínar“ þá væri Steinunn Ólína búin að segja okkur hver þetta var.
Á meðan þetta er eitthvað almennt einkasamtal ónefndra aðila þá er þetta
því miður bara dylgjur.
Bréf til bankanna
Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...
-
Það er umræða núna í gangi um auglýsingar Kennarasambandsins og málflutning kennara, að við séum að væla og fara fram á samúð. Það fannst mj...














