Það eina sem er verra en skólastefna Samstöðu er skólastefna Sveitunga.
Til er orðatiltæki sem er einhvern veginn á þá leið að fólk eigi að læra af reynslunni. Fólk er misduglegt við það en að læra nákvæmlegt ekkert er frekar sjaldgæft. Það tekst þó stundum eins og eftirfarandi stefnuyfirlýsing ber með sér.
Undanfarin tvö ár hefur Þingeyjarskóli verið rekinn í sveitarfélaginu. Einhvers konar hálfkáks sameining Hafralækjarskóla og Litlulaugaskóla, tvær starfsstöðvar undir einum stjórnanda. Reynslan af því er ömurleg. Hún er hreint hörmuleg. Hún er svo ömurleg að það er verið að kaupa utanaðkomandi hjálp fyrir starfsfólkið því líður svo illa. Samt er þessi sameining algjörlega byggð á hagsmunum starfsfólksins. Ef það er eitthvað sem er öruggt í lífinu fyrir utan dauðann og skattana þá er það þetta:
Það er ekki hægt að reka skóla í Þingeyjarsveit á nokkrum starfsstöðvum undir einum stjórnanda.
Stefna Sveitunga.
Því óvissuástandi sem nú ríkir varðandi skólastarf í Þingeyjarsveit þarf að linna.
Deili ekki við ykkur þarna.
Verulegur ágreiningur er innan sveitarfélagsins varðandi stefnu í fræðslumálum.
Þess vegna kjósum við fulltrúa til að taka erfiðar ákvarðanir fyrir okkur. Furðulegt að ekki einn einasti frambjóðandi skuli átta sig á þessu,
Ein forsenda þess að breytingar heppnist vel er að þær séu vel ígrundaðar og nauðsynlegra upplýsinga sé aflað.
Mikið rétt. Það er búið að ræða þetta fram og til baka í mörg ár og skrifa ÞRJÁR skólaskýrslur um málið. Einhvern tíma verður að hætta að ígrunda og taka ákvörðun.
Nokkrir valkostir eru fyrir hendi varðandi framtíð skólastarfs í Þingeyjarsveit og því er hafnað íbúakosningu í hluta sveitarfélagsins um einungis tvo valkosti þar sem fleiri möguleikar virðast til staðar.
Sammála því enda er ég sannfærð um að íbúakosning meðal hluta útsvarsgreiðenda sé kolólögleg.
Stefnt skal að því að sameina alla grunnskóla sveitarfélagsins (að meðtöldum leikskóladeildum, þremur eða fleiri og tónlistardeildum) í eina stofnun, með einum yfirmanni.
Fínt.
Í framhaldi af því þarf að gera kostnaðargreiningu á þeim valkostum sem fyrir hendi eru, leggja mat á félagsleg áhrif þeirra og taka tillit til hagsmuna barna í sveitarfélaginu.
Guð minn almáttugur! Hvaða endalausa ákvarðanafælni er þetta? Það er búið að ræða þetta ofan í kjölinn. Nokkrum sinnum! En þið fáið samt stóran plús fyrir að nefna börnin. Samstaða virðist ekki átta sig á að það eru börn í skólanum líka.
Einnig þarf að meta með hvað hætti hin mismunandi skólastig geta best stutt hvert annað.
Skoða þarf eftirtalda valkosti sérstaklega.
Já, já, allt í lagi, tímamörk eru alltaf ágæt.
Það eru tveir kostir í viðbót sem þyrftu nauðsynlega að vera í stefnunni.

- Einn skóli með þremur starfstöðvum og litlum breytingum öðrum en þeim að kennarar væru ráðnir að sameiginlegum skóla (sem gæti leitt til betri nýtingar á starfsliði). Bíddu, bíddu nú við! Við erum með reynslu af Þingeyjarskóla sem er rekinn með tveimur starfsstöðvum. Það gengur mjög illa. Hverjar, nákvæmlega, eru líkurnar á því að þetta gangi betur með þremur starfsstöðvum?
- Einn skóli á þremur starfstöðvum en 8. – 10. bekkur á einum stað. (Áfram reknar leikskóladeildir á þremur til fjórum stöðvum og tónlistardeild á hverri starfstöð.) Sama athugasemd og að ofan.
- Einn skóli á tveimur starfstöðvum. And, yet again.
Já, já, allt í lagi, tímamörk eru alltaf ágæt.
Það eru tveir kostir í viðbót sem þyrftu nauðsynlega að vera í stefnunni.
- Sameina Þingeyjarskóla strax undir eitt þak, því það fyrirkomulag er ekki að virka. (Please, stop flogging that dead horse.)
- Sameina skólana á einum stað undir einum stjórnanda. Það er nefnilega eina fyrirkomulagið sem er líklegt að gangi. Skólar sem hafa verið sameinaðir á sama stað, ganga vel.
Það skiptir engu máli hvar skólinn er.