laugardagur, janúar 10, 2015

Frelsið er yndislega andstyggilegt

Undanfarna daga hafa átt sér stað skelfilegir atburðir í París. Saklaust fólk hefur verið sallað niður af hryðjuverkamönnum. Ég er miður mín enda er lífið heilagt. París er líka háborg vestrænnar menningar í mínum huga. Það er verið að salla niður saklaust fólk viðs vegar annars staðar í heiminum og ég er búin að gleyma því þegar fréttinni lýkur. Svona er nú tvískinnungurinn í mér.

Talandi um tvískinnung.

Í París voru skopmyndateiknar vegnir sem höfðu gert skopmyndir, sumar ansi svæsnar, af Múhammeð spámanni og múslimum. Öfgamúslimar frömdu ódæðin. Mér þykir þetta gróf aðför að málfrelsinu. Og ég er ekki frá því að birta eigi myndirnar sem víðast.
Sumir vilja meina að klám sé tjáningarfrelsi. Ég er algjörlega ósammála því. Einhvers staðr hljóti að vera takmörk. Ef einhver myndi salla niður klámmyndaframleiðendur þá myndi ég örugglega fordæma voðaverkin en ég myndi ekki líta á það sem aðför að tjáningarfrelsinu.   Og ég myndi aldrei nokkurn tíma styðja að myndirnar þeirra væru birtar sem víðast. Er það tvískinnungur? Ég hreinlega veit það ekki.


Ég er vinstrisinnaður femínisti og kennari. Mér finnst það í lagi. Snorri í Betel var hómófóbískur og kennari. Mér fannst það ekki í lagi. Ég geri þann greinarmun að annars vegar sé um að ræða skoðanir en hins vegar manneskjuna sjálfa. En kannski er enginn munur.
Mér finnst Páll Vilhjálmsson subbupenni á meðan mér þykir Ragnar Þór Pétursson frábær. Mér finnst Ragnar samt ganga of langt þegar hann fer að draga atvinnu Páls inn í gagnrýni á málflutning hans. Kennarar afsala sér ekki skoðana-, mál- og tjáningafrelsi í staðinn fyrir kennsluréttindin.
Annað hvort mega allir tjá sig eða engir. Nei, bíðið, það var þetta með takmörkin...       

sunnudagur, janúar 04, 2015

Forgengileikinn

Það voru sem sagt áramót. Á slíkum tímamótum staldrar fólk við og lítur yfir farinn veg. Ég hafði enga sérstaka þörf fyrir það svo sem en svo lenti ég á netflandri mínu inni á síðu BBC sem hafði sett saman lísta yfir frægt fólk sem hafði dáið á árinu sem var að líða.

Það er stundum undarlegt hvernig hugurinn virkar en þar sem ég horfði á þetta fór ég að hugsa um, ekki einstaklingana heldur hvernig kynslóðirnar hverfa. Ég þykist þess t.d. fullviss að það sé enginn lifandi í dag sem barðist í fyrri heimsstyrjöldinni. 
Vitneskjan er skráð og lifir sem slík en reynslan sjálf er horfin. Eins og t.d. það fólk sem lifði og reyndi kreppuna miklu er ekki lengur ráðandi afl í heiminum. Þetta er því ekki bara horfinn tími, þetta er hverfandi reynsla.

Kynslóðin mín, fólk á fimmtugsaldri, er orðin valdakynslóðin. Ég sé jafnaldra mína, aðallega karlana auðvitað, í fréttatímum að segja okkur hvernig heimurinn virkar.
Hafið þolinmæði með mér núna.
Ég fór með krökkunum í gegnum Öldina öfgafullu eftir Dagnýju Kristjánsdóttur á haustönninni. 
Bókinni er skipt upp í áratugi. Þar opinberaðist fyrir mér að níundi áratugurinn er áratugurinn þar sem almennir Íslendingar kynnast lúxus. Allt í einu fórum við flest að hafa það gott. Uppakynslóðin átti sinn tíma þarna. Ég held að allir 2007 bissness strákarnir hafi setið blautir á bak við eyrun í bíó 1987 og dreymt um að verða Gordon Gekko þegar þeir yrðu stórir.

Verkalýðsbaráttan hafði skilað launabótum og betri vinnuaðstæðum. Mannréttindabarátta sjötta og sjöunda áratuganna hafði veitt okkur, ja, mannréttindi. Réttindi sem ungt fólk í dag telur sjálfsögð, svo sjálfsögð að það nennir ekki að mæta á kjörstað. Á níunda áratugnum var ekkert annað að gera en að uppskera vinnu og erfiði kynslóðanna á undan og njóta. Á þessum áratug, við þessar aðstæður, kemst núverandi valdastétt til vits og ára.
Er það slæmt? Ég hreinlega veit það ekki. Kannski er það bara hið besta mál að fólk upplifi það sem kreppu að þurfa að sætta sig við næstnýjasta iphoninn. Kannski er það hið besta mál að standardinn sé svo hár að við sættum okkur ekki við það eitt að hafa nóg að bíta og brenna. Að brauðstrit og erfiðleikar hverfi og gleymist.
Hins vegar er ég pínku ponsu lítið hrædd um að brauðstrit og erfiðleikar lifi góðu lífi en eitthvað annað sé að deyja drottni sínum.


föstudagur, janúar 02, 2015

Kennslufræðilegar spekúlasjónir

Mig langar að bæta mig sem kennara. Það verður að viðurkennast að ég hef helst beitt útlistunaraðferðinni, stend uppi við tjaldið og renni í gegnum glærupakka. Svo legg ég fyrir verkefni til að neyða nemendur til að lesa. Draumurinn er að nemendur mæti undirbúnir í tímann og að umræður skapist. Sá draumur rætist sjaldan. Því miður finnst nemendum ekkert sérstaklega gaman að lesa, og það einskorðast ekki við minn skóla. Og hins vegar þá eru nemendur misáhugasamir um að tjá sig. Yfirleitt eru einn til tveir nemendur sem taka þátt í „umræðunum“. Það eru auðvitað ekki miklar umræður og aðrir nemendur geta upplifað kennslustundirnar þannig að kennarinn sýni sumum nemendum meiri áhuga en öðrum.

Þá bendir Ingvar Sigurgeirsson á í bók sinni Litróf kennsluaðferðanna að það sé hálf tilgangslaust að eyða tíma í að staggla í gegnum bókina í tímum þegar nemendur eiga að lesa heima.*
Það er tvennt sem kemur til að ég hef hangið á þessari aðferð: Þetta er hin hefðbundna kennsluaðferð og hún er ósköp þægileg. Hins vegar, og þetta skiptir ekki síður máli, þá vil ég endilega „vinna vinnuna mína.“ Þegar ég er inni í kennslustofunni þá á ég að kenna. Ég er tiltölulega sannfærð um að ég sé ekki ein um þessa tilfinningu. En mikið er ég hrædd um að þetta sé einhver sú versta kennsluaðferð sem til er. 


Mig langar mjög mikið að breyta kennsluháttum mínum en það er erfitt að mjaka sér upp úr hjólfarinu. Ég veit heldur ekki alveg hvernig ég á að fara að því. Ég er t.d. að skrifa þetta bara til að hjálpa sjálfri mér að hugsa. Svo eru góð ráð auðvitað alltaf vel þegin.
Við kennarar í FSH fórum í heimsókn í Fjölbrautarskóla Snæfellinga í haust.  FSN er opinn skóli, kennt að mestu í einum sal og allt opið á milli. Ég veit ekki alveg hvort allir kennararnir séu búnir að kasta námsbókunum en einhverjir eru búnir að því. Kennarinn sem ég talaði mest við notaði enga bók heldur notaðist við leitaraðferðir og svo settu nemendur upp heimasíðu.
Mig langar að herma eftir þessu að ákveðnu leyti. Ég treysti mér ekki til að kassera bókinni, verð að hafa öryggisnet.
Það sem ég er að hugsa er að setja upp heimasíðu (og það eru hæg heimatökin fyrir alla með google-aðgang) þar sem að nemendur myndu síðan vinna inn útdrætti, glósur og ítarefni úr bókinni. Ef ég tek sem dæmi ÍSL403 þá myndi ég byrja á að setja upp í kassa h-in 5; hver, hvað, hvers vegna, hvar og hvenær. T.d svona:

Hver
Hvað
Hvers vegna
Hvar
Hvenær
Marteinn Lúther
Mótmælti því að katólska kirkjan gæti selt aflátsbréf
Ekki hægt að kaupa sig frá syndinni.
Spilling innan kirkjunnar
Þýskalandi
1483 – 1546

Þá myndi ég setja fram einhver verkefni og t.d. Gerið grein fyrir Jóni Arasyni og/eða Sviðsetjið aftöku Jóns og sona hans miðað við frásögnina í Rótum úr Skarðsárannál.
Innlifunaraðferðir og tjáning held ég að séu góðar þótt ekki sé nema bara til að breyta til og hafa gaman. Þarf að fá einhvern til að kenna okkur hringdans.

Svo með tímanum myndi nemendur sjálfir fylla inn í kassann. Sjálf myndi ég samt alltaf fara almennt yfir kaflana og draga fram aðalatriðin.
Ég las núna í jólafríinu áðurnefnda bók Ingvars Litróf kennsluaðferðanna. Þar talar hann um tvenndarnám eða tvenndarvinnu sem mér lýst vel á. Þá myndu tveir og tveir vinna saman annar sem gerandi (doer) hinn sem athugandi (observer). Þá vinnur annar nemkandinn en hinn metur og svo snýst það við. Ég er farin að nota svona jafningjamat svolítið, mér finnst nemendur átta sig betur á eftir hverju við erum að leita og hvað er verið að æfa.
Þá myndi ég líka nota hópavinnu talsvert t.d. púslaðferðina en Ingvar vinur minn bendir á að: „Alkunna er að fáar aðferðir duga betur til að læra námsefni en að þurfa að kenna það öðrum.“ (Ingvar, bls. 146)
Þetta er það sem ég er að spá og eins og áður sagði þá þigg ég gjarna góð ráð og ábendingar.

*Það eru skiptar skoðanir um heimanám. Nú er hins vegar verið að taka upp svokallaðar feiningar eða F-einingar í framhaldsskólum og heimanám er beinlínis byggt inn í þann útreikning.

sunnudagur, desember 28, 2014

Jóla-karlremban

Jólin, skv. nútíma túlkun og skilningi, ganga út á að fagna fæðingu frelsarans. Þetta eitt og sér er auðvitað mjög karllægt, karlímyndin Guð gefur mannfólkinu sinn eingetna son því til bjargar. Hins vegar hef ég alltaf litið á Jesú sem fyrsta femíníska kommúnistann svo, og ekki segja vinstri sinnuðum vinum mínum það, ég er alveg sátt við þetta Jesúdæmi allt saman. Það hefði lítið þýtt að senda hina eingetnu dóttur á þessum tíma.

Jólunum fylgja aðrir karlar sem okkur þykja bæði skrítnir og skemmtilegir, nefnilega sjálfir jólasveinarnir. Sjálf hef ég lagt þeim lið undanfarið að læðast inn á heimilið og lauma gjöfum í skó barnanna. Einhverra hluta vegna finnst okkur fullkomlega eðlilegt að ala það upp í börnum okkar að skrítnir karlar séu ægilega skemmtilegir og hið besta mál að þeir séu að læðupokast inni á heimilunum á meðan aðrir sofa. 


Það eru ekki bara jólasveinarnir. Nýverið sátum við mæðginin og horfðum á Kalla á þakinu. Þar á lítill drengur vin sem er frekar ókurteis og óþroskaður karl sem enginn veit um. Það eru fleiri svona sögur og myndir um vinfengi skrítinna karla og, aðallega, lítilla drengja. Sbr. Up og Skreppur seiðkarl.

Á sama tíma vörum við börnin okkar við ókunnugu fólki, sérstaklega karlmönnum. Erum við ekki að senda þeim afar misvísandi skilaboð?
Minna fer almennt fyrir skrítnum og skemmtilegum kerlingum. Má þó nefna til Mary Poppins og Fíu fóstru en þeim er samt kyrfilega plantað í hefðbundið kvenhlutverk fóstrunnar.
Ef við höldum okkur við jólahátíðina þá er hún nánast algjörlega eign karla. Grýla fær aðeins að troða inn sínu ljóta nefi en skemmtileg er hún ekki.


Í gær fór fjölskyldan á jólaball. Sungin voru hefðbundin jólalög, sömu lögin og ég gekk í takt við í kringum jólatréin á sínum tíma og eru enn sungin á öllum jólaböllum út um allt land. Víðfrægt er nú erindið: „...hann fékk bók en hún fékk nál og tvinna.“ Var að mig minnir einhver umræða um það á sínum tíma. Ég man ekki alveg hvort það var spilað en satt best að segja þá eru mörg hinna lítið skárri. Í laginu Nú skal segja eru kynhlutverkin alveg skýr.
Litlar stelpur vagga brúðu, æfa sig fyrir móðurhlutverkið á meðan strákarnir sparka bolta. Þeirra leikur er mun frjálsari og býður upp á fleiri möguleika. Þeir eru alla vega ekki að æfa sig fyrir föðurhlutverkið. Það má skjóta því hér inn í að ef leikir drengja snerust meira um að æfa sig fyrir föðurhlutverkið þá yrðu þeir kannski betri feður og börn ekki jafn berskjölduð fyrir skrítna föðurímynd eins og Kalla á þakinu eða Fagan.

Gömlu konurnar í Nú skal segja prjóna sokka því alltaf eiga konur að gera gagn. Gömlu karlarnir hins vegar mega dunda sér við að taka í nefið og hnerra svo hressilega; vera skrítnir og skemmtilegir.
Því skal þó haldið til haga að í Adam átti syni sjö er pabbi til staðar sem elskar alla syni sína og þeir elska hann. Eigi þetta að vera hinn fyrsti Adam má líklegt telja að einhverjar dætur hafi verið til staðar en hvort hann hafi elskað þær og þær hann er alveg látið liggja á milli hluta.
Kynhlutverkin í Nú er Gunna á nýju skónum eru líka alveg kýrskýr. Mamma er föst í eldhúsinu „eitthvað að fást við mat“, (gætum við mögulega sýnt vinnu kvenna meiri lítilsvirðingu?) á meðan pabbinn er viðutan, skrítinn og skemmtilegur að leita að flibbahnappinum sínum.

Mér er alveg sama þótt þetta séu „hefðir“ og „óþarfi að sjá það ljóta í öllu.“ Þetta eru ömurleg skilaboð sem við erum að senda börnunum okkar og ég mælist til að þessir textar verði endurskoðaðir (og upphefst nú ritskoðunarsöngurinn).
Ef hefðin er vond þá má og á að breyta henni.

fimmtudagur, desember 25, 2014

Allt sem hún vill...

Hið platónska ástarsamband okkar George Michael fagnar nú 30 ára afmæli. Það var sumarið 1984 sem Wake me up before you go-go skaust á topp flestra vinsældalista heimsins. Hresst og grípandi lag með auðveldu viðlagi. Og svo kom vídeóið. Jedúdda-mía, söngvarinn. Ekkert svona sætt hafði sést síðan súkkulaðið var uppgötvað. Þarna sprangaði hann um í míní stuttbuxum, tanaður með strípur og neongular grifflur. Ég fjórtán ára flækja með skömmustulegar hugsanir um karlmenn og gleðina og vandræðin sem þeim gátu fylgt. Örlögin voru ráðin.




Hvert topplagið fylgdi öðru; Careless Whisper, Freedom og Everything she wants. Öll þessi lög er að finna á annarri (seinni) plötu Wham!, Make it Big.

Ég tók að sjálfsögðu upp hvern einasta Skonrokk þátt til öryggis og það var eins og ég hefði himin höndum tekið þegar ég náði myndbandinu við Careless Whisper. Ég hélt að George gæti ekki orðið sætari en í Wake me up before you go-go en hann gat það. Úff...

En það var eitthvað sem truflaði mig. Strax sumarið ´84 var svolítið í textanum við Wake me sem ég skildi ekki. Textinn er um ungan mann sem á kærustu. Þegar hann er sofnaður læðist hún út til að dansa. Vinir hans hafa sagt honum frá því og hann biður hana um að vekja sig frekar og taka sig með. Allt ágætt hingað til. Svo kemur millikafli, aðeins rólegri, kaflinn í vídeóinu þar sem George er mega sætur. (Og sést að ofan.)

Cuddle up, baby, move in tight,
We’ll go dancing tomorrow night,
It’s cold out there, but it’s warm in bed,
They can dance, we’ll stay home instead.

Sögumaður textans, strákurinn, kvartar undan því að stelpan læðist út á meðan hann sefur. En hann vill greinilega ekki fara út að dansa, hann vill frekar vera heima að kúra. En hvaða stúlka kvartar undan kærasta sem vill frekar halda henni heima og kúra? Það er bara sætt, er það ekki?
Setningin um kuldann kallast líka á við „rómantíska“ textann; Baby,it‘s cold outside.

Næsti hittari var Careless Whisper. Lagið lýsir angurværri eftirsjá manns sem hefur haldið fram hjá kærustunni sinni. Textinn er að vísu ókyngreinanlegur eins og svo margir eftir Michael enda var hann fastur inni í skápnum á þessum árum en í myndbandinu eru það stúlkur sem leika kærustuna og viðhaldið svo við höldum okkur við það.
Stúlkan sem leikur kærustuna er ósköp sæt en heldur venjuleg. Stúlkan sem tælir George er hins vegar ægileg skutla, sannkallað femme fatale. Í myndbandinu „tekur“ hún hann ;) Við venjulegu stelpurnar áttuðum okkur alveg á því hvað þurfti til til að halda gæjanum.


Næsta lag var Freedom. Þar er það stúlkan sem fer illa með strákinn, rígheldur fram hjá honum og hlær svo bara. Þessi texti er sá fyrsti af þó nokkrum sem lýsa vantrausti og tortryggni gagnvart konum.
Everything she wants var ekkert að leyna óttanum við þessar konur.

Some people work for a living,
Some people work fun,
Girl I just work for you.
They told me marriage was a give and take.
Well you show me you can take, you’ve got some givin’ to do.
And now you tell me that your having my baby.
I’ll tell you that I’m happy if you want me to,
But one step further and my back will break,
If my best isn’t good enough,
Then how can it be good enough for two.
I can’t work any harder than I do.

Sögumaðurinn í textanum virðist ekki vera George sjálfur sem átti skítnóg af peningum heldur bara venjulegur ungur maður. She textans eða hún er algjör afæta sem ætlast til að aumingja strákurinn þræli og púli bara fyrir hana. Vinnur hún sjálf ekkert? Svo verður hún ófrísk eins og sá möguleiki hafi bara hreint ekkert verið ræddur við hann, eiginmanninn sjálfan. Sögumaðurinn, karlinn, er saklaust fórnarlamb þessarar vondu konu.Hann er orðinn svo útkeyrður af vinnuhörku eftir sex mánaða hjónaband að hann heldur að hann sé hættur að elska konuna . Það er bara tímaspursmál hvenær hann fer. Samúðin er öll hjá honum og fullkomlega eðlilegt að hann yfirgefi þessa barnshafandi konu sem getur ekki unnið fyrir sér.
Textinn á að lýsa lífi venjulegs fólks og á þessum tíma sem og í dag eru karlmenn með hærri laun en konur og hluti af kvöð karlmannsins ,,að skaffa." En í staðinn fyrir að gagnrýna rót vandans, samfélagið, er ráðist að konum eins og þær beri einhliða ábyrgð á hefðunum. Alveg eins og getnaði.



Þetta sama þema kemur fram í Credit Card Baby sem einnig er á Make it Big plötunni.

You can have my credit card, Baby,
But keep your red hot fingers off my heart. Lady,
All I know is what I see,
You’re getting what you want.
Girl, It ain’t just me.
No matter how you cry,
I’m not giving any love away,
Do you think I’m crazy,
All I know is what I see.
But what can I do,
When you pretend that you’re in love with me,
Baby.


Það má svona eftir á fabúlera um það að George Michael var að reyna að fela samkynhneigð sína í kastljósi frægðarinnar. Fólki fannst eðilegt og hefur gert kröfu um að hann sæktist eftir einhverju sem hann kærði sig ekkert um.  Við táningsstelpurnar með glýjuna í augunum vissum það hins vegar ekki á þeim tíma. Við vorum bara að fá skilaboð frá vinsæla sæta stráknum sem hafnaði okkur af því við vorum ekki nógu góðar.
Að varpa kvenóttanum yfir á samkynhneigð höfundarins er líka ansi ódýrt. Heimurinn elskaði þessi lög, samþykkti og fagnaði boðskapnum. Tony Parsons segir í ævisögunni Bare:

'Everything she wants' was and remains one of the best songs ever written about a bad marriage... Claustrophobic, meaty and mature, 'Everything she wants' ached with the sound of love wearing off. If the sentiments of the song were alien to the singer – the death of marital passion, the drudgery of the working world, another little mouth on the way – then he still managed to convey them with total conviction. (Parsons, 132)

Í þessari sömu ævisögu lýsir George aðstæðum í New York um það leyti sem hann er að slá í gegn og semja vinsælustu lögin sín og hugsunum samfara þessum aðstæðum:




Hið tvöfalda siðferði er auðvitað alveg skelfilegt.
En, þrátt fyrir allt, ástin er eins og hún er og ég elska George Michael enn og mun væntanlega gera áfram. Enda batnaði þetta allt saman þegar hann kom loksins út úr skápnum og gat verið hann sjálfur ♥

Það geta ekki allir verið gordjöss.



miðvikudagur, desember 24, 2014

Jólin

Jæja gott fólk og vont og allt þar á milli. Óska ykkur gleðilegra jóla og góðra stunda. Gangið hægt um gleðinnar dyr og verið stillt. Ég ætla að reyna það.

Bestasta jólalag allra tíma.


sunnudagur, desember 21, 2014

Undarleg uppsögn

Í títtnefndri fundargerð sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar frá 18. des. sl. segir:
Auglýst verður eftir skólastjóra frá 1. mars 2015, sem mun sjá um að skipuleggja starfsmannahald og móta innra starf skólans. Honum til aðstoðar munum við ráða faglegan ráðgjafa.
Þar sem þessi breyting er stjórnvaldsákvörðun gilda ákvæði stjórnsýslulaga um uppsagnir starfsmanna. Munum við því ekki segja öllum upp eins og við höfðum ráðgert heldur fara eftir meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Þar segir; „Stjórnvald skal því aðeins taka íþyngjandi ákvörðun þegar lögmætu markmiði, sem að er stefnt, verður ekki náð með öðru og vægara móti. Skal þess þá gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til.“
Nú verður að spyrja: Hvers vegna í ósköpunum á að segja skólastjóranum upp? Það var fyllsta ástæða til að segja skólastjóranum upp 2012 þegar skólarnir voru sameinaðir enda áttu sér þá stað skipulagsbreytingar í yfirstjórn skólanna en það er engin ástæða til þess nú. Það er bara einn skólastjóri til staðar. Og miðað við að sveitarstjórnin vísar til ákvæða stjórnsýslulaga um að ekki verði teknar íþyngjandi ákvarðanir þá er vandséð af hverju segja þarf upp skólastjóranum.
Ekki nema auðvitað að talið sé að núverandi skólastjóri sé ekki vandanum vaxinn en það er ekki nokkur ástæða til að ætla það því í umsögn Fræðslunefndar frá 11. des. sl.  segir:
Fræðslunefnd telur þessa breytingu geta gert góðan skóla enn betri bæði faglega og félagslega fyrir nemendur.
Fræðslunefnd telur skólann góðan. Svo vitnað sé í amerískan frasa; If it ain't broken, don't fix it.

Nú má flestum vera ljóst að ég fagna þessari ákvörðun persónulega en ég hlýt að fordæma þessi vinnubrögð. Skólastjórinn hefur nefnilega ekki eina einustu ástæðu til að ætla neitt annað en að sveitarstjórn Þingeyjarsveitar styðji hann og hans embættisfærslur.
Í fyrsta lagi þá hefur Fræðslunefnd lagt blessun sína yfir öll hans verk.
Í öðru lagi sá sveitarstjórn ekki nokkra ástæðu til áminningar eftir að dómur féll í ,,Gróumáli" og telur þar með ekkert athugavert við vinnubrögð þar.
Í þriðja lagi birti fyrrverandi oddviti Samstöðu opinbera stuðningsyfirlýsingu við skólastjórann í Akureyri Vikublaði (sic.) 16. jan. sl. eftir að gagnrýni mín rataði þar inn. Tel ég eðlilegt að ætla að oddviti stjórnmálaafls sé talsmaður þess.
Í fjórða lagi báru núverandi sveitarstjóri og formaður fræðslunefndar fullt traust til skólastjórans til að vera dómari í eigin sök. Það verður að teljast mikið traust og erfitt að ætla að það sé óverðskuldað að mati sveitarstjóra og formanns fræðslunefndar.
Í fimmta lagi tók núverandi þriðji maður á lista Samstöðu upp á því að eigin sjálfdæmi að rita tilfinningamikla grein til stuðnings skólastjóranum í kjölfar gagnrýninnar og umræðunnar. Miðað við viðbrögðin hlýtur að mega ætla að mikil og almenn ánægja sé með störf skólastjórans.
Í sjötta og síðasta lagi sá sveitarstjórn ekki nokkra ástæðu til að gagnrýna fjármálastjórn skólans í kjölfar svartrar skýrslu Haraldar L. Haraldssonar um fjármál skólans. Núverandi oddviti lét m.a.s. hafa eftir sér opinberlega að skýrslan sýndi aðeins: ,,ákveðna óhagkvæmni."
Ekki er að sjá að neitt hafi gerst síðan sem skýrir það af hverju skólastjórinn er allt í einu fallinn í ónáð.

Engin áminning, engin gagnrýni ekkert tiltal, bara ánægja og svo búmm! Sagt upp.
Það er alveg sama hver á í hlut, þetta eru óþolandi vinnubrögð. Ég get ekki séð neitt annað en að enn ein stjórnsýslukæran sé á leiðinni. Og það með réttu.


Bréf til bankanna

Háæruverðugu lánveitendur. Nú er ég bara venjulegur launþegi á Íslandi. Ég er ekki fædd í rétta ætt, ekki gift inn í rétta ætt og styð ekki ...