Þetta er ósköp falleg stúlka en jafnréttisbaráttuna á Íslandi vantaði þetta ekkert óskaplega.
Krossinn sem ég ber
Það er ungur maður á facebook sem hefur gaman að því að tilkynna hvaða dagur er. Það er bara fínt, þetta er falleg sál og ég læka þetta yfirleitt hjá honum . Hins vegar fékk ég sting í hjartað í dag . Á þessum degi fyrir sextán árum síðan lá ég inni á spítala og h a fði þegar verið í þrjá d aga. Það var verið að reyna að framkalla fæðingu litlu stúlkunnar minnar sem ég var gengin með 24 vikur en í sónar þremur dögum áður kom í ljós að það var enginn hjartsláttur. Stúlkan var dáin. Það átti eftir að taka tvo daga í viðbót að n á að framkalla fæðinguna. Í fimm daga gekk ég vitandi með dána barnið mitt. Hún var auðvitað búin að vera dáin lengur, ég bað um skoðun því ég hætti að finna hreyfingar. Ég veit að einstaklingur sem hefur aldrei gengið með barn, hvað þá fætt, getur skilið þetta. Að finna barnið hreyfa sig og sparka og svo hættir það. Að fæða barn og það er dauðaþögn. Við foreldrarnir vorum niðurbrotnir. Ég dró mig í hlé og grét. Pabbinn var reiður út í heiminn. Ég gat ekk
Hefur þetta eitthvað meiri áhrif á jafnréttisbaráttuna heldur en þegar málaður snyrtipinni úr Keflavík er kosinn Herra Ísland?
SvaraEyðaAlveg sammála þér. Reyndar finnst mér hún óttalega barnaleg í útliti þó sæt sé. Vonandi verður þetta ekki til að valda bakslagi í jafnréttisbaráttunni ;Þ
SvaraEyðaÞegar Hófí og Linda voru kosnar alheimsfegurðardrottningar þá urði fegurðarsamkeppnir mjög vinsælar og hafnar yfir gagnrýni. Svona kroppakeppnir eru náttúrulega yfirmáta hallærislegar hvort kynið á í hlut. Það er samt kostur að fyrst það er ekki hægt að útrýma þessu að bæði kynin séu þá þátttakendur/fórnarlömb.
SvaraEyðaÞetta blogg kom í DV í dag. Þriðjudaginn þrettánda.
SvaraEyðaÆ, af öllum mínum frábæru færslum að þurfa að velja þessa.
SvaraEyðaGaman að heyra (sjá) frá þér Gísli:)