Leiguhúsnæði vort er illa vindþétt og hátt til lofts. Eins og allir vita þá leitar hiti upp svo það er frekar kalt alltaf í íbúðinni. Þess vegna kyndi ég talsvert mikið. Í morgun brá svo skemmtilega við að allir ofnar heimilisins voru kaldir. Ég var vissulega sannfærð um að þetta væri samsæri sem beint væri prívat og persónulega gagnvart mér. Þegar ég kom á meðferðarheimilið var hins vegar verið að snúa þeim nemendum við sem áttu að fara í skólann því dælan sem dælir heita vatninu var biluð svo kalt var í öllu húsnæði á skólalóðinni. Hins vegar var hlýtt á meðferðarheimilinu svo ég var eini kennarinn sem kenndi í dag. Ég fór auðvitað engum hamförum í kennslunni, frekar fúl yfir þessu ef eitthvað var. Svo við fórum bara út í snjókast og ég var kaffærð og svona. Það var ekki hægt að búa til snjókall. Núna er hins vegar búið að laga dæluna og hlýtt heima við. Ég slapp við tímana eftir hádegi:)

Ummæli

  1. Frí eftir hádegi er nú ágætt

    SvaraEyða
  2. Jájá, enda er ég ekkert að kvarta... mikið. Bara aðeins. Hefði alveg verið til í að fá starfsdag og undirbúa. Ég fór auðvitað ekki heim um hádegi, losnaði bara við kennsluna.

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir