Þegar maður á um tvennt að velja, vont eða verra, hvort velur maður þá? Ef við höfnum þessari MT2 þá lendum við undir gerðardómi sem er með skýrar forsendur í lögum um engar launahækkanir. Ef við samþykkjum þetta þá fáum við að hlusta á að við höfum valið þetta. Grunnskólakennarar eiga ekki að fá neina leiðréttingu á launum sínum. Undarlegt alveg að það sé hægt að dragast aftur úr en engan veginn hægt að komast á fyrri stað. Ef við höfnum þessu verður þá ekki sagt að við höfum valið gerðardóm? Það er náttúrulega ekki hægt að velja það sem er búið að neyða yfir mann með lögum. En eins og málflutningurinn hefur verið þá er von á öllu. Þetta er ömurleg staða.
Krossinn sem ég ber
Það er ungur maður á facebook sem hefur gaman að því að tilkynna hvaða dagur er. Það er bara fínt, þetta er falleg sál og ég læka þetta yfirleitt hjá honum . Hins vegar fékk ég sting í hjartað í dag . Á þessum degi fyrir sextán árum síðan lá ég inni á spítala og h a fði þegar verið í þrjá d aga. Það var verið að reyna að framkalla fæðingu litlu stúlkunnar minnar sem ég var gengin með 24 vikur en í sónar þremur dögum áður kom í ljós að það var enginn hjartsláttur. Stúlkan var dáin. Það átti eftir að taka tvo daga í viðbót að n á að framkalla fæðinguna. Í fimm daga gekk ég vitandi með dána barnið mitt. Hún var auðvitað búin að vera dáin lengur, ég bað um skoðun því ég hætti að finna hreyfingar. Ég veit að einstaklingur sem hefur aldrei gengið með barn, hvað þá fætt, getur skilið þetta. Að finna barnið hreyfa sig og sparka og svo hættir það. Að fæða barn og það er dauðaþögn. Við foreldrarnir vorum niðurbrotnir. Ég dró mig í hlé og grét. Pabbinn var reiður út í heiminn. Ég gat ekk
Þú segir bara það sem satt er.
SvaraEyðaÞað er auðvelt fyrir mig að segja þetta, þar sem ég er ekki kennari og þarf ekki að þiggja kennaralaun. En.... Ég vil trúa því að það væri ekki hægt að þvinga mig með hótunum til að samþykkja eitthvað sem ég væri búin að fella áður. Frekar myndi ég gangast undir gerðardóm en að gera það. Ég hefði þá alla vega ekki samþykkt kúgunina með eigin undirskrift.
SvaraEyða