Hvað er eiginlega í gangi með þetta veður? Ég man ekki eftir svona endalausu ofsafrosti og brjálviðri lon og don. Þetta eyðileggur alveg fyrir mér göngutúrana. Viss um að þetta tengist gróðurhúsaáhrifum á einhvern hátt. Eða með öðrum orðum: Þetta er á einhvern hátt eyðileggingu manna að kenna.
Þarf ekki að fara að vinna fyrr en á morgun mér til nokkurrar furðu. Ekki svo að skilja að ég sé neitt ósátt enda önnum kafin við að lesa Íslandsklukkuna. Skrambi er hann góður kallinn. Þessi kall er líka góður. Fékk hana í jólagjöf og glugga í hana við og við.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir