Almáttugur. Rétt búin að vera hér í tvo daga og strax orðin alræmd í Aðaldalnum. Kann DV reyndar afskaplega litlar þakkir að styggja fyrir mér bráðina! Vona bara að blaðið berist ekki hingað á landsbyggðina.
Látið ekki sakleysislegt útlitið blekkja!
Já, við fyrstu sýn virðist þetta ósköp eðlilegur köttur. En hún er það ekki!
Ég var hringd út um tvöleytið í dag því að þessi vargur, þessi glæpaköttur hafði ráðist á litlu, sætu kisustelpuna mína þar sem hún svaf í sakleysi sínu. Þær voru í fangbrögðum þegar litla systir sleit þær í sundur! Og litla, sæta kisustelpan mín var öll útklóruð með, ég er gjörsamlega miður mín, bitsár á bringunni. Svo það var brunað upp á Dýraspítala þar sem hún var sprautuð með pensilínsprautu. Það er ekki nóg með að verða fyrir svona svívirðulegu launsátri heldur þurfti hún að fara í bíl! Og fá sprautu! Á meðan skraðræðisgripurinn var heima og hrósaði sigri og þóttist aldeilis hafa tekist að hrekja keppinautinn að heiman.
Þegar við komum aftur heim og Snotra litla, fórnarlambið, faldi sig uppi í glugga og rétt gjóaði einu auga í genum rifu til að fylgjast með ofbeldisseggnum, þá lá Kolfinna í leyni fyrir Dúlla. Ég ætlaði að taka hana upp og ræða þessa hegðun
varstu birt?
SvaraEyðaÉg er reyndar farin að halda að þú verðir samkennari konu sem ég kannast við... þarf samt að kanna málið því landafræði mín íslensk er ekki upp á marga fiska. En hún fer í búðir á Húsavík þannig að þið hljótið að vera á svipuðum slóðum, er það ekki?
Er nokkur hætta á því að DV berist í óbyggðirnar.
SvaraEyðaJá, nemendur mínir fyrrverandi sáu færslu í DV.
SvaraEyðaÉg er ca. 20 mínútur á Húsavík svo það getur meira en verið.
hvað heitir skólinn?
SvaraEyðaÉg kenni reyndar ekki í skólanum sjálfum heldur á Árbót sem er meðferðarheimili en tilheyrir kennslulega Hafralækjarskóla.
SvaraEyðaVar þetta í DV í gær? Verð að fletta blaðinu aftur.
SvaraEyða