Í títtnefndri Húsasmiðjuferð lenti ég í því að sogast mjög ákveðið að einum rekkanum og þurfti að hafa mig við að spyrna við fótum. Það er komið jólaskraut í Húsasmiðjuna. What is happening to me!?
Látið ekki sakleysislegt útlitið blekkja!
Já, við fyrstu sýn virðist þetta ósköp eðlilegur köttur. En hún er það ekki!
Ég var hringd út um tvöleytið í dag því að þessi vargur, þessi glæpaköttur hafði ráðist á litlu, sætu kisustelpuna mína þar sem hún svaf í sakleysi sínu. Þær voru í fangbrögðum þegar litla systir sleit þær í sundur! Og litla, sæta kisustelpan mín var öll útklóruð með, ég er gjörsamlega miður mín, bitsár á bringunni. Svo það var brunað upp á Dýraspítala þar sem hún var sprautuð með pensilínsprautu. Það er ekki nóg með að verða fyrir svona svívirðulegu launsátri heldur þurfti hún að fara í bíl! Og fá sprautu! Á meðan skraðræðisgripurinn var heima og hrósaði sigri og þóttist aldeilis hafa tekist að hrekja keppinautinn að heiman.
Þegar við komum aftur heim og Snotra litla, fórnarlambið, faldi sig uppi í glugga og rétt gjóaði einu auga í genum rifu til að fylgjast með ofbeldisseggnum, þá lá Kolfinna í leyni fyrir Dúlla. Ég ætlaði að taka hana upp og ræða þessa hegðun
Anda djúpt og endurtaka : Það er nóvember, það er nóvember...
SvaraEyðaIss, láttu það bara eftir þér og kallaðu það heilsársskraut, svona eins og ég geri með seríuna mína. ;)
SvaraEyða