Það er alveg yyyndislegt... gluggaveður. Fór í bæinn að sækja miðana mína og það var örtröð í bænum. Tók þvílíkt langan tíma að komast inn á Laugaveginn svo ekki sé talað um að komast niður hann líka. Engin stæði neins staðar, náttúrulega svo við lögðum í bílastæðishúsi og þurftum að ganga smá spotta og það var bara ískalt. En alla vega, hvað er fólk að gera svona mikið í bænum í skítakulda? Næ þessu ekki alveg.

Er að fara á árshátíð svo ég baðaði mig í tilefni dagsins. Byrjaði á því að skvetta sjampói í augað á mér og svo þegar ég var að skola augað eftir baðið þá dúndraði ég hausnum í kranann. Ég verð sem sagt rauðeygð með kúlu á enninu á árshátíðinni í kvöld. Júbbí-jei.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Krossinn sem ég ber

Vandamál og lausnir