laugardagur, október 10, 2015

"Með hverjum viltu ekki vinna?"



Það er alltaf vont þegar þarf að segja upp fólki og eðlilegt að gera þá kröfu að til slíks sé vandað. Sérstaklega í fámennu sveitarfélagi þar sem atvinna hvað þá sérhæfð er ekki á hverju strái.
Í vor þurfti að segja upp kennurum og stjórnendum við Þingeyjarskóla í Þingeyjarsveit. Til þessara uppsagna kom vegna sameiningar Þingeyjarskóla í eitt hús en hann hafði verið rekinn á tveimur starfsstöðvum frá 2012.  Samfélagið er smátt og nánast allir þekkja alla. Eðlilegast hefði verið (að mínu mati, um þetta má deila) að segja öllum upp og auglýsa svo þær stöður sem ætla mætti að þyrfti við eins-húss-skóla. Til að fyrirbyggja misskilning vil ég taka fram að ég hefði ekki sótt um, ég get illa hugsað mér að vinna hjá Þingeyjarsveit eins og sakir standa. En með því að auglýsa stöður þá hefðu fleiri getað sótt um og eðlileg (og tímabær) endurnýjun hefði getað átt sér stað.

Ákveðið var að fara ekki þessa leið heldur segja upp skólastjóranum umfram lagaskyldu og ráða nýjan. Þrátt fyrir talsverðar deilur og særindi innan sveitarfélagsins ákvað sveitarstjórnin ekki að fá utanaðkomandi aðila til að sjá um ráðningu skólastjórans, eins og t.d Capacent, heldur ákvað að sjá um ráðninguna sjálf. Sem má þykja heldur undarlegt þar sem hún vill ekki vera um of með nefið ofan í stjórnsýslunni!

Nýr skólastjóri var ráðinn og virðist ráðningin ágætlega óhlutdræg. Hins vegar fékk nýi skólastjórinn að hefja störf sín á því að segja upp fólki.
Það var sem sagt ákveðið að sumum yrði sagt upp. Nýja skólastjóranum til aðstoðar var fengin utanaðkomandi hjálp svo allrar sanngirni sé gætt.

Ég veit svo sem ekki nákvæmlega hverjir sáu um viðtöl og tóku lokaákvörðun um uppsagnir, hins vegar virðist viðkomandi hafa tekist á nánast yfirnáttúrulegan hátt að klúðra öllu sem hægt var að klúðra.

Fyrst bárust okkur fréttir að bréfum sem innihéldu hinar ómerkilegustu dylgur. Bréfasendingin var fóðruð með því að fólk ætti andmælarétt við uppsagnir en að láta dylgjur ráða för þykir mér ómaklegt.
En hvaðan komu þessar dylgur? Í haust birtist viðtal við kennara sem var sagt upp og nefndi hann að honum hefði m.a. verið fundið til foráttu að vera svo erfiður í samstarfi. Þar með var orðið ljóst að samstarfsfólk var spurt um hvert annað.

Þetta hef ég fengið staðfest frá fleiri en einum og fleiri en tveimur aðilum. Í starfsviðtölunum sem tekin voru við fólk var borin fram spurning einhvern veginn svohljóðandi:

„Er einhver sem þér finnst erfitt að vinna með?“

Ja-há.
Fyrst persónulegt álit fólks á hvert öðru var tekið inn í jöfnuna þá langar mig að spyrja:

  • Voru foreldrar spurðir að því hverjir þeir vildu að kenndu börnunum þeirra?
  • Voru nemendurnir spurðir um hvaða kennarar þeim þættu góðir?
  • Var horft til námsárangurs og/eða vellíðunar nemenda?

Eða var bara samstarfsfólkið spurt?
Hverjum gat mögulega dottið í hug að fólk sem stendur frammi fyrir því að missa lífsviðurværið sitt og jafnvel búsetugrundvöll í sveitarfélaginu sé heppilegur dómari á fólkið sem það er að keppa við um stöður?

Ég veit ekki hvort fólk vissi af þessari spurningu fyrirfram en það vissi auðvitað af henni eftir fyrsta viðtal.
Hvað ætli að gerist í aðstæðum sem þessum þar sem fólk getur ekki bara gefið sjálfu sér plús heldur öðrum mínus? Og ef mínusarnir eru nógu margir...

Nú vil ég taka fram að ég áfellist ekki fólk sem er að berjast fyrir lífsviðurværi sínu. Ég áfellist hins vegar fólk sem skapar svona aðstæður og setur fólk í svona stöðu.
Þetta eru forkastanleg vinnubrögð.


mánudagur, október 05, 2015

Leikur að tölum - framhald.

Ég ákvað að skoða aðeins betur þessar tölur um starfslokasamningana og setja inn í sniðmát.
Ef það er rétt hjá mér (svona sirka) að hver kennari kosti um 420 þús. á mánuði þá myndi hann vera að fá brúttó 321.249,-.

Það er undir kjarasamningum. Á vef KÍ er launareiknivél og þegar ég set inn í hana e.k. meðaltal af kennurunum þremur þá kemur þetta út.





Hver kennari ætti því, að meðaltali að vera með um 400 þús. brúttó. Það þýðir að heildarkostnaður sveitarfélagsins er ca. 511 þús. á mánuði vegna hvers kennara.

Set BHM sem stéttarfélag þar sem KÍ er ekki í boði og stutt orlof. 


Sé miðað við að laun skólastjórnenda séu 600 þús. eins og gert var í fyrri færslu þá væru brúttólaunin tæp 460 þús.


Ég leyfi mér að álykta að þetta standist ekki. Skv. opinberum gögnum var skólastjórinn fyrrverandi með 683.042 á mánuði á síðasta ári. Ef við miðum við þá tölu þá er kostnaður vegna skólastjórans á mánuði á starfslokatímabilinu 893.006. (Kannski eru aðrar tekjur inni í þessari tölu svo við skulum hafa fyrirvara á því.)


Núna skulum við halda að aðstoðarskólastjórinn hafi verið með um 500 þús. brúttó á mánuði. (Bara af því að það er hugguleg tala.) Þá er heildarkostnaður vegna hans tæp 640 þús. á mánuði.




Þannig að það er bara tvennt sem kemur til greina:

Það er verið að snuða fólkið um biðlaunaréttinn, og hann er ótvíræður. 

Þótt ég trúi ýmsum til alls þá trúi ég því ekki að fólk hafi verið snuðað með starfslokasamningunum svo þá er bara eitt eftir:
Starfslokasamningarnir kosta sveitarfélagið ívið meira 30,5 milljónir. Ég myndi halda að þeir kosti lágmark 34, 4 milljónir. 
Mér finnst líklegt að þeir kosti meira því af hverju ætti að gera starfslokasamninga þegar biðlunaréttur gildir. Þá var inni í samningunum afsal á kærurétti (þess vegna lá á að aðstoðarskólastjórinn skrifaði undir samninginn áður en tilkynnt var um ráðningu skólastjórans fv. í nýtt stjórnunarstarf) sem og afsal á fimm ára forgangsrétti í sambærilegt starf. Ekki afsalar fólk sér réttindum fyrir ekki neitt. 

Það má leiðrétta mig ef ég er að reikna vitlaust, ég vann þetta talsvert hratt.

föstudagur, október 02, 2015

Leikur að tölum

Í gærkvöldi benti fréttamiðillinn 641.is á ansi látlausa og lítt uppgefandi klásúlu í fundargerð sveitarstjórnar frá 1. okt. sl. Þar reynist leynast upphæð starfslokasamninga sem gerðir voru við þrjá kennara og tvo skólastjórnendur Þingeyjaskóla í vor. Samanlögð er upphæðin 30,5 milljónir. Núna væri auðvelt að deila þessari upphæð í 5 hluta en við vitum að henni er ekki skipt jafnt á milli. Ég fór þá leið að leggja saman mánuðina sem eru skv. mínum útreikningum 56  (6+8+12+12+18). Mér skilst að einn einstaklingur hafi verið í 70% starfi svo miðað við það er verið að borga 53.7 heila mánuði. (8x0,7=5,6) Ef við deilum svo 30,5 milljónum í 53,7 fáum við meðaltalið (rétt tæplega) 568 þús. per einstaklingur á mánuði brúttó. Þessu er að sjálfsögðu ekki skipt svona en ef við gefum okkur að kennararnir séu með 420 þús á mánuði til að vanætla ekki þá eru skólastjórnendurnir tveir með um 600 þús. á mánuði. Þetta eru svo sem engar óskaplegar tölur og eðlilegt að fólk fái bætur fyrir atvinnumissi. Það sem er hins vegar ekki í lagi er klásúlan sem skv. heimildum 641.is er í samningunum á þá leið að fólk haldi starfslokagreiðslunum þrátt fyrir að það fái aðra vinnu. Og annar skólastjórnandinn sat ekki atvinnulaus eitt einasta sekúndubrot heldur gekk beint inn í sérhannaða stöðu í þessum nákvæmlega sama skóla. Fullkomlega eðlilegt að sumir fái tvöföld laun á kostnað okkar útsvarsgreiðenda. Fullkomlega.


Til að bæta gráu ofan á svart þá gengur sú saga að nýja kerfið í Þingeyjarskóla gangi nú ekki betur en svo að búið sé að stækka stöður flestra kennara. Fylgir sögunni stöðuhlutföll upp á vel rúmlega 100%. Við skulum hafa það á tæru að öll vinna kennara yfir 100% er yfirvinna. Sé þessi saga sönn þá erum við útsvarsgreiðendur í Þingeyjarsveit að borga starfslokasamninga hjá kennurum sem voru „óþarfir“ í eins-húss-Þingeyjarskóla og yfirvinnulaun hjá hinum af því vinnan er svo mikil! Næs...
Það er nú gott að það voru sparaðar spjaldtölvur við nemendur unglingadeildar Stórutjarnaskóla. Það hlýtur að vega upp á móti þessum útgjöldum öllum. Þessum mjög svo einstefnusinnuðu útgjöldum öllum.



En það er ekki bara verið að moka peningum í núverandi, fyrrverandi og fyrrverandi-næstum-því- fyrrverandi-áframverandi  starfsfólk Þingeyjarskóla, nei, það er verið að moka peningum í húsnæðið sjálft líka. Veitir svo sem ekkert af, það vita allir. Hins vegar læddi ólyginn því að að það væri ekkert verið að hengja sig mikið á fjárhagsáætlunina sem er auðvitað öllu verra ef rétt reynist.
En við skulum ekki blekkja okkur, við vitum alveg hvert er næsta skref. Sameining Þingeyjarskóla og Stórutjarnaskóla er næst á dagskrá. Eins og staðan er í dag þá hentar Stórutjarnaskóli miklu betur undir sameinaðan skóla. En þessi sameining verður ekki nefnd fyrr en líður að næstu sveitarstjórnarkosningum eftir tæp þrjú ár. Það er hægt að laga húsnæði Þingeyjarskóla heilmikið á þremur árum. 



sunnudagur, september 13, 2015

Að vera hæf eður ei

Ég hef talsvert velt fyrir mér eftir 5 ára reynslu sem óhæfur starfskraftur hvað hæfi sé og hvernig það er metið. Mér finnst alveg eðlilegt að gera kröfu um hæfi en það verður að vera kýrskýrt í hverju það felst. Það getur ekki bara verið "eitthvað óljóst". Fyrirtækið/stofnunin verður að setja sér skýrar reglur um til hvers sé ætlast og skilgreina það. Sbr. eineltisáætlanir. Það er ekki nóg að tilkynna að "einelti verði aldrei liðið" og kalla svo allt einelti "smá stríðni". Eða "fjölelti". Hvað sem það orðskrípi merkir.
Mér hefur því miður fundist "hæfið" iðulega byggjast á persónulegri skoðun þess sem metur. Þess vegna finnst mér algjörlega ótækt að verkalýðsfélög séu virkilega að semja á þá leið að einstaklingar geti "samið" við sína yfirmenn um hærri laun. Á meðan ekki er skýrt hvað er metið þá eru sumir í náðinni og aðrir ekki.
Sé starfskraftur ekki að "standa sig" miðað við skýran ramma um hvað felst í því, ber yfirmanni að veita honum aðstoð og ráðleggingar. Taki starfskraftur sig ekki á eftir það ber að veita honum áminningu. Taki hann sig enn ekki á er hægt að segja honum  upp.  Eftir-á-kjaftasögur um vanhæfi eru algjörlega ólíðandi vinnubrögð.
Vegna þessara hugleiðinga varð ég mjög glöð þegar ég rakst á þessa tilvitnun nýverið:
"Ah yes, but you see, “quality” is the new racism. It’s a code word. “Not good enough” is a code word for the exclusion of parties that used to be excluded on a more candid basis."
                   Barbara Kirshenblatt-Gimblett


föstudagur, september 11, 2015

Það er vont og venst illa

Jæja, þá eru þó nokkur sveitarfélög búin að lýsa yfir áhuga sínum á því að taka á móti flóttamönnum. M.a. nágranni okkar Norðurþing. Er það vel. Þingeyjarsveit er ekki þar á meðal. Málefnið hefur ekki einu sinni verið rætt í sveitarstjórn. Við hefðum getað verið með þeim fyrstu. En auðvitað ekki, guð forði okkur nú frá því að gera eitthvað gott. Og alveg sérstaklega frá því að fjölga íbúum í Þingeyjarsveit.
Hvorki með því að taka á móti flóttamönnum né ýta á kynjajafnréttisfræðslu í skólum sveitarfélagsins. Nei, við skulum endilega flæma stúlkurnar okkar í burtu og strákana á eftir. Höfum ekkert við þetta unga fólk að gera.

Um daginn var fundur um Heimaslóðarverkefnið. Ekki sást þar einn einasti fulltrúi atvinnumálanefndar enda skiptir landbúnaður í Þingeyjarsveit engu máli. Þessir örfáu bændur skila hvort sem er svo litlu í útsvarskassann. Nei, atvinnumálanefnd er upptekin af ljósleiðaravæðingu af því það kemur ferðaþjónustunni svo vel að geta rukkað fyrir nettengingu í hverju herbergi. Og ferðaþjónustan skilar svo miklu í kassann. Við sáum það öll á tekjulistanum um daginn.
Nei, það gæti nú eiginlega læðst að vondri konu sá lúmski grunur að það sé bara enginn vilji fyrir því að fjölga í sveitarfélaginu. Hver gæti nú mögulega verið ástæðan fyrir því?
Kannski sú að í fámenninu dafnar spillingin? Að það sé auðveldara að koma réttum aðilum á spenann?
Það myndi auðvitað aldrei líðast í fjölmennara sveitarfélagi að meirihluta-sveitarstjórnarfulltrúi og frænka hans fengju að ganga í óauglýstar stöður á sama tíma og annað fólk er enn með uppsagnarbréfið í höndunum.

Helvítis asnar.



fimmtudagur, september 03, 2015

Auglýsingaskylda starfa

Af engri sérstakri ástæðu langar mig til að fjalla aðeins um auglýsingaskyldu starfa í grunnskólum.
Meginreglan* er sú að auglýsa skal öll laus störf kennara. Á því eru þó ákveðnar undantekningar.
 
Í kjarasamningi grunnskólakennara14. grein segir:




Get ég ekki betur séð en að auglýsingaskyldan sé nokkuð skýr.
Nú hefur sá leikur verið leikinn sums staðar að ráða "tímabundið" í stöðu og framlengja svo ráðninguna. Eða að ráða bara í hlutastarf og stækka svo starfið. Það má vera að svona æfingar séu ekki beinlínis lögbrot en siðlausar eru þær.
Enda hef ég ekki nokkra trú á öðru en svona æfingar heyri til undantekninga. Gott fólk í góðu samfélagi gerir sér að sjálfsögðu ekki leik að því að fara í kringum lögin. Og heiðarlegt og hæft fólk vill ekki fá starf með þessum hætti.




*Stutt skilgreining: Meginreglur laga eru óskráðar reglur sem ályktað verður um á grundvelli einstakrar réttarreglu, fleiri réttarreglna, heils réttarsviðs eða laganna í heild
Ef tiltekin meginregla er skráð (sbr. t.d. 65. gr. STS) breytist réttarheimildarleg staða reglunnar
Eftir skráningu styðst hún við settan rétt

föstudagur, ágúst 28, 2015

Að meta hæfi

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að rifja upp áratugalanga sameiningar(hörmunga)sögu
grunnskóla í núverandi Þingeyjarsveit. Við skulum samt, að gefnu tilefni, rifja upp andstyggilegar og vita þarflausar bréfasendingar sveitarstjóra Þingeyjarsveitar til fjögurra kennara Þingeyjarskóla í vor.
Það lá ljóst fyrir að segja þyrfti upp kennurum (ekki skólastjóra) vegna fyrirhugaðs flutnings grunnskóladeilda Þingeyjarskóla á eina starfsstöð. Fjórir einstaklingar voru valdir út og fengu áðurnefnd bréf. Skv. 641.is eru bréfin vægast sagt undarleg:
Í bréfunum eru settar fram dylgjur um hvers vegna viðkomandi kennarar séu ekki nógu góðir kennarar til að gegna áfram störfum við Þingeyjarskóla á komandi skólaári. Bréfin eru í raun óformleg uppsagnarbréf, en kennurunum er þó gefin kostur á því að andmæla innihaldinu.
Tilgangur þessara bréfasendingar er óljós enda óþarfi í uppsagnaferli að senda svona bréf. 
Að vísu tókst einum aðila að andmæla efni bréfsins og hélt vinnu. Skelfing hlýtur starfsgleðin þó að vera takmörkuð eftir svona trakteringar. Finnst mér þessi aðferðafræði til háborinnar skammar svo ég segi það hreint út. Þá hef ég fyllstu ástæðu til að ætla, án þess þó að fullyrða neitt þar um, að viðkomandi kennarar hafi fengið starfslokasamninga og þá ágæta einmitt vegna þessara ófaglegu og klúðurslegu vinnubragða. Væri það bæði rétt og sjálfsagt. Mér sem útsvarsgreiðanda finnst þó að sameiginlega sjóði okkar mætti nýta til þarfari verka en að þrífa upp mistök kjörinna sem handvalinna fulltrúa sveitarfélagsins.

En svo ég snúi mér nú að gefna tilefninu.
Í gær birtist á visir.is viðtal við Corneliu Thorsteinsson en hún er ein af kennurunum* sem var sagt upp í vor. Viðtalið er tekið vegna umræðu um byrjendalæsi en það sem stakk mig var þetta:
...þegar skipulagsbreytingar voru gerðar á skólanum í vor var gerður starfslokasamningur við Corneliu.
„Ástæðan sem mér var gefin er að ég hafi verið minna hæf en aðrir. En einnig að ég væri erfið í samskiptum og samstarfi.
(Feitletrun mín.)
Í vor þegar þessi ósköp gengu á var talað um dylgjur, jú, ég áttaði mig á því. En í bréfinu sem sent var segir:
Fram hefur farið samanburður á hæfi allra starfsmanna skólans. Eftir yfirferð gagna og þeirra upplýsinga sem fyrir liggja, bendir vinna sem farið hefur fram á vegum sveitarstjórnar vegna skipulagsbreytinga til þess að aðrir starfsmenn standi þér framar þegar kemur að því að ákveða hverjir muni áfram gegna störfum við Þingeyjarskóla.
Ég veit ekki hreinlega hvað ég hélt en sennilega vildi ég ekki trúa því sem ætti þó að blasa við. En eftir að ég las þetta viðtal þá hlýt ég að spyrja:

Hvaðan koma þessar upplýsingar? Hver segir að konan sé erfið í samskiptum og samstarfi? Hverjir  gætu mögulega haft þessa skoðun og komið henni á framfæri aðrir en samstarfsfólk konunnar?
Fólk sem er að keppa við hana um vinnuna!

Við erum öll mannleg, við vitum öll hvaða þýðingu þetta hefur. Ég álasa ekki fólki fyrir að reyna að halda lífsviðurværi sínu. En ég álasa svo sannarlega því ,,fagfólki" sem batt svona um hnúta. Það hlýtur hver heilvita maður að sjá að svona vinnubrögð geta ekki gengið enda vona ég svo sannarlega að mér skjátlist. Í guðs bænum segið að mér skjátlist!

En það hlýtur að vekja furðu að þau fyrstu fjögur sem voru valin koma öll úr Litlulaugadeild. Okkur finnst öllum betra að vinna með fólki sem við erum vön að vinna með og það voru fleiri starfandi í Hafralækjardeild. Einn kennari bjargaði sér fyrir horn eins og áður sagði og þá lenti kennari úr Hafralækjardeild í niðurskurðinum. En aðeins eftir, takið eftir, að um þessa tilhögun var efast á opinberum vettvangi og dregið í efa að hún stæðist lög um meðalhófsreglu.
Þá verður líka að teljast undarlegt að einstaklingar sem yfirgáfu Hafralækjardeild í vor, hvort sem það var sjálfviljugt eða óviljugt, eru komnir aftur til starfa í óauglýstar stöður.
Einhverjum verr innréttuðum en mér gæti dottið í hug orðið "slagsíða." En ekki mér. Ég trúi á tilviljanir.

Megi vináttan blómstra.

*Þeim hjónum var sagt upp. Heimilið var sem sagt svipt báðum fyrirvinnum sínum. Stay classy, Þingeyjarsveit.

Varðandi fána – Seinni hluti

  Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...