Sýnir færslur með efnisorðinu Kettir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Kettir. Sýna allar færslur
mánudagur, mars 30, 2009
miðvikudagur, mars 11, 2009
þriðjudagur, mars 10, 2009
Köttur fæst gefins
Hann er blindur en hefur ekki hugmynd um það. Æðir þ.a.l. um, út og upp um allt. Þar sem hann sér ekkert þá ryður hann flestu um koll. Mjög auðvelt að rekja slóðina eftir hann.

Hann stendur staðfastlega í þeirri meiningu að hann fái ekki nóg að borða og situr því um ruslafötuna í eldhúsinu. Fellir hana um koll og hleypur svo með matarleifar út um alla íbúð.
Hann trúir því einnig að hann eigi ömmustólinn og reynir að klóra þann sem sest í hann. (Barnið). Honum finnst gaman að leika sér að fótum fólks. Situr fyrir þeim í launsátri og hangir svo á þeim nokkur skref.
Hann skilur ekki hugtakið ,,gæludýr". Hann er sannfærður um að hann eigi að bíta og klóra alla sem koma nálægt honum.
Hann er með mjólkuróþol, fær niðurgang. Kúkar þar fyrir utan reglulega á gólfið.
Kannski ekki versti köttur í heimi en fer mjög nálægt því. Anybody?
Treður sér alls staðar.
mánudagur, mars 09, 2009
föstudagur, febrúar 27, 2009
Kona og köttur
Glámur: Mjáááá!!! Ég er svoooo svangur!!!
Ég: Glámur, það er fullt af mat í kringum diskinn þinn. Hvernig stendur á því eiginlega?Glámur: Ég sé frekar illa og rek trýnið bara á kaf í matarlyktina.
Ég: Þá hlýturðu að vita að það er fullt af mat í kringum diskinn. Borðaðu hann bara.
Glámur: Borða af gólfinu?
Ég;: Já, ekki hendi ég öllum þessum mat. Það er kreppa.
Glámur: En.. Ég get ekki borðað af gólfinu.
Ég: Af hverju ekki?
Glámur: Ókey, ég vil ekki vera klöguskjóða en... Það er einhver hérna á heimilinu sem kúkar reglulega á gólfið.
miðvikudagur, febrúar 25, 2009
The suicidal cat
Kötturinn er búinn að læra á kassann. Hins vegar tók hann upp á þeim óskunda um daginn að byrja að skíta, einu sinni á dag, við hliðina á kassanum. Í alvöru. Why? Fyrst hélt ég að hann væri svona mikil pempía að þegar það væri kominn kúkur í kassann þá bara væri hann orðinn of skítugur fyrir hann. Ég væri ekki nógu snögg að skófla þessu upp. Búin að vera mjög passasöm en þetta heldur áfram. Í gær þreif ég kassann með Ajax og setti nýjan sand. Ströng hreinlætisskilyrði af hans hálfu eru augljóslega ekki málið því í dag kúkaði hann, aftur og enn, við hliðina á hreina kassanum með nýja sandinum. Elsku vinur, þetta er of mikill skapgerðargalli til að við hann verði unað. Núna notar þú kassann eins og á að nota hann, eða...
mánudagur, febrúar 23, 2009
Kisinn
Eftir að kisi lærði á kassann þá varð hann fastur heimilismeðlimur. Hann fékk sýklalyf sem löguðu niðurganginn og hefur örugglega hjálpað honum að læra á kassann, honum verður ekki jafnbrátt í loðbrók og áður. Hins vegar er orðið ljóst að hann er með einhvers konar mjólkuróþol því ég gaf honum rest af pelanum hans lilla í gær og það skilaði sér rennandi. AB mjólk er hins vegar í lagi. Hann er líka farinn að færa sig upp á skaftið, hefur uppgötvað það að heimurinn er í nokkrum hæðum og hann er farinn að
fikra sig upp á aðra hæð. Jólarósinni var formlega slátrað í gær. Verst þykir mér að finna ekki nafn á hann. Við erum búin að máta nokkur og þau bara passa ekki. Ég hef aldrei lent í þessu áður, kattanöfn hafa alltaf komið nokkurn veginn af sjálfu sér. Þannig að ef þið hafið hugmyndir þá þætti mér mjög gaman að fá þær.
föstudagur, febrúar 13, 2009
Nafnið
Ég hef verið að velta fyrir mér hvað við eigum að kalla köttinn. Kisi, er að verða mjög fast í sessi en eitthvað er það nú snautlegt. Stevie finnst mér ekki passa við hann, Hómer ekki heldur.
Ég hef verið að segja og hlæja að sögunni þegar hann elti mig í skúringunum og var alveg yfir sig bit og hneykslaður á dellunum í hornunum. Þá laust því niður: Geir.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Kaffi á Ketilsbraut
Upp úr djúpi draumahallar dansar skynjun vitundar. Í eldhúsinu eitthvað kallar, ókunnugur situr þar. Við hans fætur Seifur sefur, sakl...
-
Mér finnst borgaralegar fermingar asnalegar.
-
Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhor...
-
Er Whitney Houston þema í Idolinu næsta föstudag? Mér heyrist það á öllu svona ,,handan við vegginn." Ég er að reyna að vera afskaplega...