Færslur

Sýnir færslur frá maí 24, 2015

Um umræðu og fréttaflutning.

Mynd
Það má kannski undrum sæta að ég ætli að dæma um hvað sé fréttnæmt og hvað ekki rétt eftir að hafa nánast samþykkt að allt sem fólk hafi áhuga á sé frétt. En það er stundum svona. Ég get alveg verið sammála því að það er ekki gott ef þingmaður fer í ferðalag á vegum íslenska ríkisins að hann drekki sig svo fullan að hann æli yfir samferðafólk sitt. Þá finnst mér ekki sjálfgefið að þingmaðurinn eigi endilega við áfengisvandamál að stríða þótt hann drekki sig útúrfullan einu sinni. Ekki einu sinni þótt hann sé í Framsóknarflokknum. Og kannski er hann veikur , þótt um það séu skiptar skoðanir. Hins vegar er ég ekkert viss um að þetta eigi endilega erindi í fjölmiðla. Annað sem mér finnst ekki eiga erindi í fjölmiðla eru veikindi fólks. Það er vissulega fréttnæmt þegar fyrrverandi forsætisráðherra fellur frá. Að við séum að fylgjast með dauðastríði hans svona nánast í beinni finnst mér ekki í lagi. Var ekki vitað að maðurinn lægi fyrir dauðanum? Var það ekki þess vegna sem þessi fr