Hér var þrettándabrennu frestað eins og á öðrum stöðum á landinu. Hins vegar var kvöldkaffinu ekki frestað og er sit ég nú sæl uppfull af köku og heitu súkkulaði. Ég lét nammið samt alveg eiga sig og tel mig þ.a.l. hafa staðið mig ágætlega í átakinu. Já, whatever! Af tælingarmálum er það að frétta að nú er ég á mjög lymskufullan hátt að reyna kveikja þá hugmynd hjá manninum að reyna við mig. Hann er ekki alveg að ná því. Er alvarlega að íhuga að gefa honum bókina How to seduce a single woman called Ásta ef hann fer ekki fljótlega að fatta hintin. Annars er barkvöld á morgun. Vona að allir hinir einhleypu mennirnir í sveitinni mæti svo ég geti kannað möguleikana á varamanni.
Færslur
Sýnir færslur frá janúar 1, 2006
- Fá tengil
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Við systur skelltum okkur á Potterinn áðan. Það fór bara allur dagurinn í það. Skemmti mér vel fyrir utan tímabilið þegar litli drengurinn fyrir aftan mig sparkaði reglulega í sætið mitt. Ég hvessti mig tvisvar en fullorðna manneskjan við hliðina á honum fattaði ekkert fyrr en ég nefndi þetta hléinu. Myndin er nú ekki beinlínis fyrir svona lítil börn svo ég skil vel að honum hafi leiðst greyinu. En mér leiddist ekki og á ekki þetta barn og því ekki í mínum verkahring að hafa ofan af því. Og hana nú! Mikið rosalega er Ralph Fiennes að verða flottur með aldrinum.