Færslur

Sýnir færslur frá júlí 17, 2005
ALL THE WAY   Writer(s): cahn/van heusen When somebody loves you It’s no good unless he loves you - all the way Happy to be near you When you need someone to cheer you - all the way Taller than the tallest tree is That’s how it’s got to feel Deeper than the deep blue see is That’s how deep it goes - if it’s real When somebody needs you It’s no good unless he needs you - all the way Through the good or lean years And for all the in between years - come what may Who know where the road will lead us Only a fool would say But if you’ll let me love you It’s for sure I’m gonna love you - all the way, all the way
Sólbað aftur. Er definetly að taka lit. Ekki enn byrjuð að pakka! ,,Spákonan" er búin að segja mér hvernig bóndinn minn sem bíður eftir mér lítur út. Very nice:)
Eins undarlega og það kann að hljóma þá eyddi ég deginum í sólbaði. Ekkert að pakka neitt enda flyt ég ekki fyrr en eftir hálfan mánuð. Hva...
Mynd
You scored as Severus Snape . Well you're a tricky one aren't you? Nobody quite has you figured out and you'd probably prefer it stayed that way. That said you are a formidable force by anyone's reckoning, but there is certainly more to you than a frosty exterior and a bitter temper. Severus Snape 75% Harry Potter 75% Albus Dumbledore 75% Hermione Granger 70% Sirius Black 70% Remus Lupin 70% Ron Weasley 55% Draco Malfoy 55% Ginny Weasley 50% Lord Voldemort 30% Your Harry Potter Alter Ego Is...? created with QuizFarm.com Þótt ég hafi séð allar myndirnar þá´á ég eftir að lesa bækurnar. Mér finnst dálítið gaman að eiga þær inni.
Búin að skila inn síðustu virðisaukaskýrslunni vegna framkvæmdanna til Skattstjóra. Nú á ég bara eftir að tilkynna bankanum um nýjan gjaldkera í stóra húsfélaginu og þá get ég hætt að hugsa um þessi húsfélög. Loksins, loksins. Fékk líka ágætis tilboð í búslóðaflutningana sem ég held ég taki.
Þetta er nú meira dásemdarveðrið enda bara útstáelsi á manni. Fór með litlu systur að skoða hross og aldrei þess vant var ekki rok á Kjalarnesinu. Svo fórum við upp í bústað og reyttum arfa. Voða gott fyrir sálina að vera svona í tengslum við náttúruna:) Gerði merka uppgötvun í dag. Þegar viðgerðir stóðu yfir hér um árið þá borgaði hver stigagangur sinn hluta fyrst í byrjun. Í eitt skiptið var venjulegur þjónustufulltrúi í fríi og afleysingafulltrúinn borgaði allan reikninginn en ekki bara okkar hluta. Þess vegna fékk verktakinn alltof mikið borgað og það dekkaði næsta reikninginn. Svo að er ekki skrítið að ég finni ekki kvittunina fyrir þeim reikningi. Mér er svo létt við þessa uppgötvun að mér er eiginlega alveg sama þótt ég hafi eytt síðastliðnum fjórum dögum í að leita að þessari kvittun og sett bankann í það líka.
Fínasta afmælisveisla. Klassískt peruterta svíkur aldrei. Var að sækja bílinn á verkstæðið eftir straujunina við staurinn. Góð lexía fyrir svona bessewissera-road rage ökumann eins og mig. Skrambi dýr samt:( Fleiri kassar komnir í hús. Þá er hægt að byrja að pakka fyrir alvöru.
Mynd
Fyrir 28 árum fæddist þessi skvísa og þar með var ég allt í einu orðin stóra systir líka. Ætla að birta þessa dásamlegu mynd líka sem var tekin uppi í Lækjarbotnum. Tekin á sama augnabliki og pabbi er að standa á haus úti á túni og litla systir er að skríða í gegnum girðinguna. Ótrúleg, alveg. Til hamingju með afmælið!
Fór í Apple búðina í dag og ætlaði að kaupa Office 2004 : Mac pakkann en hann var sem betur fer ekki til. Komst að því að þetta kostar rétt tæpar 20.000,- kr. og næg eru fjárútgjöldin samt! Keypti í staðinn imic sem er rosa sniðugt tengi sem ég set í tölvuna og tengi plötuspilarann við og ætti að geta yfirfært allar vinylplöturnar mínar á disk núna. Komst að vísu að því eftir að hafa barist við að losa hann í entertainment center (og slasað mig á þumlinum sem er enn aumur eftir bílflautuna) að plötuspilarinn er bilaður. Damn... Þarf að skella honum í viðgerð fyrir brottflutning. Ætla ekki að ræða meira um konur íslam í bili. Er að lesa mér til um efnið á milli þess sem ég pakka og geng frá praktískum málum. Talandi um það þá fór ég í bankann í dag og bað um afrit af greiðslukvittun eða einhverja sönnun þess efnis að reikningurinn hefði verið greiddur. Mundi ekkert bankanúmer, engar kennitölur og engin aðgangsorð. Ég held í alvöru að litla systir sem var með mér hafi skammast sín fyrir
Ákveðnir trúarhópar sem kenna sig við kristni fara fram á að kynin eigi ekki að líta eins út. Konur eigi að vera með sítt hár og helst að ganga í pilsi og whatever. Ég verð nú bara að segja það eins og er að ef fólk sér ekki þessi risa brjóst og rass í gegnum vinnuskyrtuna mína og gallabuxurnar þá er eitthvað hjá þeim í ólagi.
Ég ætla að viðurkenna það strax að ég veit ekki neitt. En ég bý í þessum heimi og hryðjuverk í Evrópu ógna mér. Þ.a.l. er ég á móti þeim. Ég er reyndar á móti stríði, ofbeldi, árásum og átökum almennt. Fólk á að geta gert út um deilur sínar á annan hátt. Mér finnst Bandaríkin og Vesturveldin skipta sér alltof mikið af hlutum sem þeim koma ekki við. Ég skil t.d. ekki af hverju fv. Júgóslavía gat bara ekki fengið að útkljá sínar deilur svo að sigurvegari stæði uppi. Þannig hafa lönd og þjóðir alltaf orðið til. Ég held að afskiptin hafi orðið til þess eins að málin eru óútkljáð og stutt í illindi. Enda verið koma upp deilur hjá aðfluttum nemendum hér á landi. Það má vera að þessi skoðun sé í mótsögn við það að ég sé á móti stríði en ég held samt ekki. Ef mál eru kominn í þann farveg að ekki er hægt að útkljá þau öðruvísi þá sé best að hafa helv.. stríðið og klára það. Ekki láta þetta malla í ár og áratugi til þess eins að láta það enda í öðru stríði. Mannfallið verður meira. Stofnun Ísrae
Ég er komin með algjört ógeð á þessu pappírsfargani. Þetta verður samt að vera þokkalega sorterað áður en ég fleygi því í hausinn á nýju gjaldkerunum. Ég er samt alveg sannfærð um að þetta sé óþarfi og megi henda meirihlutanum af því. Ég á bara mjög erfitt með að henda. Finn ekki skrambans kvittunina sem ég þarf til að fá virðisaukann endurgreiddan. Kannski getur bankinn hjálpað mér með það. Netbankinn getur það ekki. Shit! Pása er dæmið.
Mynd
Sköllóttir súkkulaðistrákar Var að horfa á Once upon a time in Mexico mér til gleði og ánægju. Hef alltaf gaman af því þegar fullt af sætum og myndarlegum mönnum er safnað saman í eina mynd. Interview with the Vampire: The Vampire Chronicles slær nú samt allt út í þeim geira. Jemundur eini, sætleikinn sem lak af tjaldinu. Eina skiptið sem Tom Cruise hefur ekki purrað mig. Banderas leikur líka í Once upon a time... en það er farið að slá svolítið í kallinn. Eldast illa þessir Spánverjar. Hins vegar voru Johnny Depp og Enrique Iglesias í myndinni. Johnny Depp er náttúrulega bara klassískt sjarmatröll og Enrique er alveg ofsalega sætur. Fyrst til að byrja með sá ég aldrei neitt nema þennan brúna blett í andlitinu á honum en svo þegar ég fór að gægjast á bak við blettinn þá kom þessi sæti strákur í ljós. Eini gallinn við þessa sætu stráka er sá að þeir eru farnir að missa hárið. Nú finnst mér ekkert athugavert við það að karlmenn missi hárið, held að meirihlutinn geri það með tímanum. M