Fór með bílinn í skoðun í dag. Hann flaug í gegn athugasemdalaust. Ég sagði við skoðunarmanninn að þetta væri bara í fyrsta skipti sem ég ætti bíl sem færi athugasemdalaust í gegnum skoðun. ,,Er þetta í fyrsta skipti sem þú átt Subaru?" spurði hann þá. Já, reyndar. Ég virðist hafa rambað á rétt. En alla vega. Á meðan ég beið eftir skoðuninni þá skrapp ég í verslunina Hjá Hirti . Eins og eighties börnin muna þá var sú verslun mjög ,,in" á sínum tíma og má nú muna fífil sinn fegurri. Engu að síður tókst mér að eyða peningum þarna eins og á flestum stöðum öðrum þessa dagana. Og ekki nóg með það heldur fann dálítð (veit ekki alveg hvað ég á að kalla það) sem ég hef leitað að. Þegar Helga kenndi mér í Langholtsskóla þá hékk uppu á vegg hjá henni svona heilræði um uppeldi barna og þessu hef ég verið að leita að. Það sem stendur á myndinni sem ég keypti Hjá Hirti er svohljóðandi á útlenskunni: Children learn as they grow If a child lives with criticism, He learns to condemn. If a c