Færslur

Sýnir færslur frá febrúar 23, 2014

Af lýðræði og svoleiðis smotteríi.

Mynd
Nei, þessi færsla er ekki um ESB. Eins og allir vita verða sveitarstjórnarkosningar í vor. Í síðustu kosningum voru boðnir fram hér í Þingeyjarsveit tveir listar; listi Samstöðu og Framtíðarlistinn. Ef ég man rétt, og við skulum hafa fyrirvara á minni mínu sem og því sem ég hef heyrt,  ég studdi nefnilega ekki lista Samstöðu og tók ekki þátt í starfi hans, þá hélt Samstaða opna málefnafundi þar sem allir íbúar sveitarfélagsins voru velkomnir. Þessi vinnubrögð voru alveg frábær og á Samstaða heiður skilið fyrir þau. Ég veit ekki hvernig var raðað á listann en, og hér treysti ég á sögusagnir svo við skulum hafa fyrirvara á þessu, það gekk um sveitina að það hefði ekki náðst samstaða um oddvita. Addi Ben var reiðubúinn að leiða listann en fékk ekki meirihluta. Þess vegna var Ólína Arnkels fengin til að leiða listann þó svo að hún hafi gefið það út að hún vildi hætta. Núna berast fréttir af því að Árna Pétri hafi verið ,,boðið" þriðja sætið á listanum og Addi Ben ,,verði" í