Skrifað 2020 og sent til sveitarstjóra Þingeyjarsveitar sem hefur ekki enn svarað erindinu. Til þess er málið varðar. Þannig er mál með vexti að eiginmaður minn, Marteinn Gunnarsson, á 1/3 í Hálsbúi ehf. sem er að Hálsi. Búið á hann með tveimur bræðra sinna. Árið 2010 byggðum við hjónin einbýlishús á Hálsi og skuldsettum okkur í kjölfarið. Fyrir þremur árum komu upp leiðindi sem leiddu til þess rúmu ári seinna að Marteinn hætti að vinna á búinu. Til að sjá fyrir okkur og börnum okkar stundum við vinnu utan heimilis og einnig höfum við rekið ferðaþjónustu í gegnum miðilinn Airbnb. Airbnb vinnur eftir svokölluðu umsagnakerfi og stjörnugjöf. Því hærri einkunn sem gestgjafi fær því hærra lendir hann í leitarniðurstöðum. Því hærra sem eignin lendir í leitarniðurstöðum því líklegra er að hún sé bókuð. Þetta veit starfandi bóndi, hann hefur sjálfur verið með eign inni á síðunni. Við áttum okkur að sjálfsögðu á að bændur heyja um sumur og stundum verður veðurs vegna að vinna lengi
Frúin sem var flæmd frá Hálsi ásamt fjölskyldunni sinni.