Færslur

Sýnir færslur frá ágúst 11, 2019

Já, þetta er ofbeldi

Mynd

Gámaþjónusta Norðurlands tekur þátt í ofbeldinu

Mynd
Eins og allir lesendur vita er forkastanleg staða uppi á Hálsi. Meðeigendur mannsins míns neita samstarfi, sáttum, kaupum og eða sölu. Það eina sem upp á er boðið er að fjölskyldan flytji úr af heimili sínu, húsinu sem við byggðum, fyrir rétt tæpum 10 árum síðan. Yngri bróðirinn er móðgaður vegna smámuna og honum hefur tekist að sannfæra hinn um guð má vita hvað. Hinn vinnur alla vega stöðugt gegn eigin hagsmunum og leyfir Lilla að blóðmjólka búið. Ég veit ekki til þess að við höfum gert Hinum eitthvað, nema hvað hann varð gróflega móðgaður þegar við sögðumst vilja borga Lilla meira fyrir hans hlut þar sem hann hefur lagt meira af mörkum til búsins. Það vita það allir að það er rétt. Hinn hefur alla tíð verið mjög iðinn við að koma sér undan verkum. Í apríl byrjaði Hinn að vinna hjá Gámaþjónustu Norðurlands. Áður höfðu báðir mennirnir á bílnum alltaf komið út og sinnt verkunum en núna kom bara annar út, Hinn sat inni í bílnum. Íronískt í ljósi okkar reynslu en greinilegt að