föstudagur, júní 06, 2008

Tinni og tíminn

Ég pantaði tvær Tinnabækur frá Amazon um daginn. Þetta eru safnbækur þannig að það eru tvær til þrjár sögur í hverju hefti. Ég pantaði hefti eitt og tvö, svona til að byrja með. Það er rauður borði utan um fyrra heftið sem á stendur Collectors volume eða eitthvað þvíumlíku. Í því sem ég er að rífa þetta af sé ég að þetta stendur aftan á borðanum:

An essential volume for collectors
This volume includes the first two stories about Tintin created by Hergé, Tintin in the land of the Soviets (1929) and Tintin in Congo (1931).
Both books are very much of their time. In his portrayal of the Belgian Congo, the young author reflects the colonial, paternalistic attitudes of his era.
Some of today's readers may find his stereotypical portrayal of the African people offensive.

Ég veit hreinlega ekki hvað mér á að finnast. Ég hélt að flestir áttuðu sig á því að bækur væru börn síns tíma. En það er alla vega svo komið að Tinni er kominn með varnaðarstimpil.

fimmtudagur, júní 05, 2008

Út af með dómarann.

Ég held að það sé orðið nokkuð ljóst að íslenskir dómstólar eru að drepast úr kvenfyrirlitningu. Það er í alvöru búið að dæma þessum drulludela miskabætur.
Dæmin eru nú orðin ófá: Konan sem reitti manninn til reiði. Stúlkan sem sagði ekki nei og var þ.a.l. ekki nauðgað...
Þetta ætti kannski ekki að koma á óvart miðað við yfirmann dómsmála í landinu.

Færsla Lögreglunnar á Norðurlandi eystra

Það mun mér hæfara fólk fjalla um þessa færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra en það eru nokkrir hlutir í þessu sem mig sem almennur áhor...