Færslur

Sýnir færslur frá ágúst 30, 2015

Auglýsingaskylda starfa

Mynd
Af engri sérstakri ástæðu langar mig til að fjalla aðeins um auglýsingaskyldu starfa í grunnskólum. Meginreglan* er sú að auglýsa skal öll laus störf kennara . Á því eru þó ákveðnar undantekningar.   Í kjarasamningi grunnskólakennara14. grein segir: Get ég ekki betur séð en að auglýsingaskyldan sé nokkuð skýr. Nú hefur sá leikur verið leikinn sums staðar að ráða "tímabundið" í stöðu og framlengja svo ráðninguna. Eða að ráða bara í hlutastarf og stækka svo starfið. Það má vera að svona æfingar séu ekki beinlínis lögbrot en siðlausar eru þær. Enda hef ég ekki nokkra trú á öðru en svona æfingar heyri til undantekninga. Gott fólk í góðu samfélagi gerir sér að sjálfsögðu ekki leik að því að fara í kringum lögin. Og heiðarlegt og hæft fólk vill ekki fá starf með þessum hætti. * Stutt skilgreining: Meginreglur laga eru óskráðar reglur sem ályktað verður um á grundvelli einstakrar réttarreglu, fleiri réttarreglna, heils réttarsviðs eða laganna í heild • Ef