fimmtudagur, maí 26, 2005

Þá er Titlaballið búið. Fullt af titlum í boði og verðlaun. Ég fékk m.a.s. titil. Besti kennarinn. Það held ég nú. Var í öðru sæti í fyrra og var svo heppin að sá sem var í fyrsta sæti þá tók sér ársfrí. Steingrímur sagði reyndar:
Orður og titlar, úrelt þing-
eins og dæmin sanna-
notast oft sem uppfylling
í eyður verðleikann.

Það má vera en ég get ekki neitað að mér finnst þetta ekkert leiðinlegt.

Fékk kreditkortareikninginn í dag. Það var ekki gaman. Ekki mjög skynsamlegt greinilega að kaupa sér utanlandsferð og fara til tannlæknisins í sama mánuði.

Ég er tilbúin með kennsluefni morgundagsins. Ætla að kenna Etiquette.

miðvikudagur, maí 25, 2005

Síðasta félagsstarfskvöldið. Get ekki sagt að ég sé ofboðslega sorrý, svekkt og sár yfir því.

þriðjudagur, maí 24, 2005

Það er merkilegt hvernig vaninn og utanbókarlærdómurinn fer með mann. Nú hef ég aðallega kennt islensku og ensku og hef talað um það við nemendur að enskan sé ekki skrifuð eins og hún er borin fram. Hins vegar hefur mér alltaf fundist íslenskan vera þannig. Í dag kom ég aðeins að því að kenna lestur og það er bara miklu meira en að segja það að læra að lesa. Fyrst fórum við í gegnum hvað stafirnir hétu og hvað þeir segðu. Það var alveg á kristaltæru svo þá var byrjað að lesa. Setningin: ,,Hvað varstu að segja?" hljómar nógu einföld en fyrir barn sem er að læra að lesa þá er hún dálítið snúin. Hún er nefnilega borin fram : ,,Kvað vastu að seija?" Og það eru fleiri orð sem eru til vandræða. Er búin að öðlast aðeins meiri skilning á lestrarörðugleikum.
Þar er umsóknin farin á vegum veraldarvefsins. Spurning um að semja aðra og senda.
Gö-vöð! Sat bara í makindum hjá mútter að glápa á Survivor og CSI og þá er klukkan bara að verða tólf! Hvað á þetta að þýða? Þessi tvöfaldi Suvivor þáttur ruglar tímaskynið hjá manni. Gott að Tom skyldi vinna btw. fyrst Steph var dottin út. Samstöðuleysið hjá kvenfólkinu fer samt í taugarnar á mér.
Ferilskráin er tilbúin með dyggri aðstoð. Það er samt ekki sniðugt að hafa tvö controlfrík við eina tölvu þótt það hafi sloppið í þetta skiptið. Þá er ekkert eftir en að senda umsóknina og krossleggja fingur. Er sennilega búin að eignast hvolp:)

mánudagur, maí 23, 2005



Þetta finnst mér með betri tónleikaplötum sem ég hef heyrt. Gæti staðið í einhverju sambandi við að þetta var plata 2 sem ég keypti. Sú fyrsta var vissulega Egó Ímynd.

sunnudagur, maí 22, 2005

I was on fire last night. Ég beygði mig yfir kerti og kveikti í hárinu á mér. Ekki nógu mikið samt til að leysa dilemmuna sem ég er í um hvort ég eigi að klippa mig stutt eður ei. To cut or not to cut. Mikið svakalega er vond lykt af brenndu hári annars.
Úrslitin í Júró voru svo sem allt í lagi. Mér hafði einhvern veginn tekist að heyra ekki gríska lagið fyrr en í verðlaunaflutningnum en það er svo sem bara allt í lagi. Ég er ánægð með hvað rokkið er að læða sér inn í kepnnina en keppendur mega ekki verða mikið fáklæddari en orðið er. Hálf asnalegt að banna Júróvissíonn innan 18. Fer þessi nektar- og klámvæðingarbóla ekkert að springa bráðlega? Þetta hlýtur að vera að ná hámarki.
Af því að ég er að lesa um siðferðisboðskap í Disney þá er ég dró ég fram Beauty and the Beast.
-Lafou, I have been thinkin.
-A dangerous passtime
-I know.

Dásamleg alveg.

Varðandi fána – Seinni hluti

  Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...