föstudagur, október 22, 2004

Skellti mér á skyggnilýsingarfund í gær. Það var bara gaman. Það kom ekki múgur og margmenni í heimsókn til mín. Skil að sjálfsögðu ekkert í því. Ég var næstum því búin að láta búa til fyrir mig stjörnukort um daginn. Tel auðsýnt að það er eitthvað að.

Ætla að drífa mig og kaupa Troy út á kredit og slefa yfir Brad Pitt. Að vísu hélt ég alltaf með Hektor og Trójumönnunum hér í gamla daga þegar ég átti teiknimyndasöguna en sá sem leikur Hektor er bara ekki nógu sætur.

2 ummæli:

  1. Hann er VÍST sætur! Eric Bana er alvöru karlmaður. Reyndar eru þeir báðir flottir. :)

    SvaraEyða
  2. Æ, það er eitthvað sem ég fíla ekki. Og er samt með alvarlegt skegg-fetish.

    SvaraEyða

Varðandi fána – Fyrri hluti

  Mig minnir að það hafi verið í borgarstjórnarkosningunum 2014 að Framsóknarflokkurinn dorgaði atkvæði í drullupotti múslimahaturs og náði...