föstudagur, mars 04, 2005

Ég er veik heima, hjá mömmu. (Oh, come on! Það er glatað að vera ein veik heima.) Mér líður að vísu ágætlega, nema þegar ég hreyfi mig, þá fer eitthvað af stað. Ég hreyfi mig þá bara mest lítið, ég meika það. Það er heldur ekki gott þegar Snotra leggst ofan á magann á mér. Snotra er alveg yfir sig ángð að hafa mig í heimsókn.
Það fer í taugarnar á mér að vera veik. Ég gengst upp í því að vera hörkutól sem veikist aldrei og mætir í vinnuna no matter what. En... Tilhugsunin um að gubba í miðri kennslustund var ekki freistandi. Falleg mynd, ekki satt?

3 ummæli:

  1. oooohh, láttu þér batna! Ég er einmitt búin að vera með magapest frá því á mánudaginn og er hreint ekki alveg laus við hana. :-(

    SvaraEyða
  2. Andstyggilegt að fá gubbupest. Vonandi batnar þér sem fyrst. :)

    SvaraEyða
  3. Þakka ykkur kærlega:)

    SvaraEyða

Varðandi fána – Seinni hluti

  Ég er fullkomlega sátt við regnbogafánann og megi hann flagga sem viðast. Hins vegar finnst mér umræðan og baráttan ansi einhæf. Það hefur...